Fréttablaðið - 23.10.2007, Side 18

Fréttablaðið - 23.10.2007, Side 18
Margir námsmenn hafa náð að bæta árangur sinn töluvert eftir setu á hraðlestrarnámskeiði. „Ég kenni aðferð til að fara á markvissari hátt í gegnum lestrarefnið þannig að við nýtum tímann okkar betur, förum hraðar í gegn og skiljum efnið aðeins betur,“ segir Jón Vigfús Bjarnason, skólastjóri Hraðlestrarskólans, og nefnir sem dæmi að meðalárangur á námskeið- unum sé þreföldun til fjórföldun á lestrarhrað- anum á sama tíma og fólk nái að skilja efnið 25- 35 prósent betur. „Það eru auðvitað til einstaklingar sem fara langt yfir þetta en lág- marksárangur hjá okkur er tvöföldun á lestrar- hraða og námskeiðin eru með árangurs- ábyrgð.“ Jón Vigfús segir hraðlesturinn einn og sér auð- velda fólki að flýta sér í gegnum textann en í Hraðlestrarskólanum sé einnig lögð mikil áhersla á að skilningurinn fylgi með. „Við förum þess vegna í ákveðna punkta varðandi náms- tækni og blöndum því saman við hraðlestur- inn,“ segir hann. „Hóparnir á námskeiðunum eru almennt mjög blandaðir en það er þó mikið um náms- fólk og fólk úr atvinnulífinu sem þarf að kom- ast yfir mikið efni. Auðvitað koma líka ein- staklingar sem vilja komast loksins yfir jólabækurnar, Laxness eða eitthvað annað sem það á eftir að lesa,“ segir Jón og bætir því við að allir sem sótt hafi námskeiðin tali um að þeir lesi meira en áður. „Námsmenn hafa til dæmis tíma til að lesa sér til skemmtunar fyrir utan námsbækurnar og foreldrar tala um að unglingarnir þeirra séu allt í einu lagstir í bækur.“ Í Hraðlestrarskólanum er boðið upp á sex vikna námskeið sem Jón segir duga vel til að festa efnið í sessi. „Svo er líka boðið upp á þriggja vikna hraðnámskeið og blönduð fjar- námskeið sem eru tiltölulega nýbyrjuð hjá mér. Þá mætir fólk í fyrsta tímann og restin er svo í gegnum fjarkennslu á fjarkennsla.is.“ Lesið og lært hraðar Matreiðslunámskeið verður haldið í Manni lifandi næsta fimmtudag. Heilsukostur er heiti mat- reiðslunámskeiðs sem haldið verður í Manni lifandi frá klukkan 18 til 21 fimmtudaginn 25. október. Námskeiðið er í formi fyrirlesturs og sýni- kennslu, kynntar verða upp- skriftir og ráðleggingar veittar um heilnæmt hráefni. Heilsufæði fyrir alla

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.