Fréttablaðið - 23.10.2007, Page 19

Fréttablaðið - 23.10.2007, Page 19
Óhætt er að fullyrða að lífshorfur íslenskra kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein séu með þeim bestu sem þekkist í heiminum og flestar konur læknast af sínum sjúkdómi. Skurðaðgerð er oftast fyrsta stig meðferðarinnar eftir að sjúkdómsgreiningin er ljós. Þá er krabbameinið úr brjóstinu fjar- lægt og í sömu aðgerð einnig eitlar úr holhönd sömu megin. Í flestum tilfellum reynist nægjanlegt að taka krabbameinið ásamt aðliggj- andi eðlilegum brjóstavef (fleyg- skurður) en stundum er nauðsyn- legt að fjarlægja allt brjóstið. Geislameðferð er oftast beitt í kjöl- far fleygskurðar og eru lífshorfur þeirra sem fara í fleygskurð og geislameðferð sambærilegar því þegar brottnám brjóstsins er fram- kvæmt. Undanfarin ár hafa í Evrópu orðið miklar framfarir í skurðmeð- ferð brjóstakrabbameina og í nokkrum löndum eru brjóstaskurð- lækningar orðnar sérstök undir- sérgrein skurðlækninga. Áfram er auðvitað mikilvægast að leitast sé við að sjúkdómurinn sé læknaður, en jafnframt hafa þróast nýjar aðferðir í brjóstaskurðlækningum („oncoplastik“) þar sem notast er við tækni lýtaskurðlækninga. Þá er meinið skorið burt með því sjónar- miði að valda sem minnsta lýti án þess að það komi að nokkru leyti niður á árangri meðferðarinnar. Í stórum brjóstum er t.d. unnt að fjarlægja krabbameinið og minnka brjóstið í leiðinni með því að notast við hefðbundnar brjóstaminnkunar- aðferðir lýtaskurðlækninga. Heil- brigða brjóstið er minnkað á sama hátt og sjúka brjóstið síðan geislað eftir aðgerðina. Í minni brjóstum hafa verið þróaðar aðferðir til að koma í veg fyrir afmyndun brjósts- ins í kjölfar fleygskurðar (brjósta- mótun). Þegar fjarlægja þarf allt brjóstið er stundum hægt að byggja það upp í sömu aðgerð ef konan óskar eftir því. Ef líkur eru taldar á að framhaldsmeðferð muni reyn- ast nauðsynleg eftir brottnám brjóstsins, er oftast mælt með því að klára hana áður en brjóstið er byggt upp að nýju. Brjóst eru byggð upp með annaðhvort eigin vef konunnar eða þá að gervi- brjósti er komið fyrir undir húð og vöðvum. Uppbygging brjósta eftir brottnám og brjóstamótun geta s.s. verið talsvert umfangsmeiri en hefðbundnar brjóstakrabbameins- skurðaðgerðir og felast stundum í aðgerðum á báðum brjóstunum til að koma í veg fyrir ósamræmi á útliti og stærð. Þó að aldur og almennt heilsufar skipti máli er alltaf leitast við að koma til móts við óskir kvenna. Þessi þróun í brjóstaskurðlækningum getur haft mjög jákvæð áhrif á lífsgæði kvenna þó að þau séu vissulega einstaklingsbundin. Á meðan einni konu finnst óhugsandi annað en að brjóst hennar sé byggt upp að nýju eftir brottnámið finnst þeirri næstu alveg hægt að venjast því að ganga með gervibrjóst í brjósta- haldaranum og getur ekki hugsað sér að fara í aðra aðgerð! Brjóstaskurðlæknir sem hefur sérhæft sig á þessu sviði þarf að taka tillit til og koma til móts við mismunandi kröfur þessara kvenna og að búa yfir tæknilegri færni til að bjóða upp á brjósta- uppbyggingu og brjóstamótun. Jafnframt krefjast þessar aðgerð- ir meiri undirbúnings af hálfu skurðlæknisins og konunnar. Þegar að aðgerðinni kemur verða konunni að vera fyllilega ljósir kostir og gallar (og hugsanlegar hættur) aðgerðarinnar og hún verður að hafa haft tíma til þess að fá öllum sínum spurningum svarað. Þetta getur verið tíma- frekt ferli og kallar á aukna sér- hæfingu þess starfsfólks sem vinnur við meðferð brjóstakrabba- meina. Í flestum tilfellum er þörf á því að fjarlægja holhandareitla sam- fara brjóstaaðgerðinni. Það er þátt- ur í meðferð krabbameinsins en gerir einnig kleift að rannsaka hvort krabbamein hefur borist í eitlana. Slík vitneskja hjálpar til við að meta útbreiðslu sjúkdóms- ins og gefur mikilvægar upplýs- ingar um frekari framhaldsmeð- ferð (lyf- eða geislameðferð). Undanfarin ár hefur nýjum og skil- virkari aðferðum verið beitt við brottnám holhandareitla. Þær fel- ast í því að fjarlægja s.k. „varð- eitil“, en það er sá eitill sem líkleg- astur er til að hafa í sér krabbamein (meinvarp) ef það hefur dreifst út fyrir brjóstið. Varðeitillinn er síðan skoðaður með smásjárrannsókn meðan á aðgerðinni stendur og ef krabbamein er til staðar í honum eru fleiri eitlar fjarlægðir úr hol- höndinni. Á hinn bóginn er þeim konum, sem ekki eru með krabba- mein í þessum eitli hlíft við frekari eitlatöku, en langvarandi handar- bjúgur getur fylgt holhandareitla- töku. Ljóst er að margs er að gæta áður en brjóstaskurðaðgerð er framkvæmd. Uppbygging brjósta við brottnám, brjóstamótun sam- fara fleygskurði og varðeitlabrott- nám eru mikilvægar nýjar skurð- aðgerðir sem nú eru viðhafðar í skurðaðgerðum á brjóstakrabba- meini. Þessar nýju skurðaðferðir bæta ekki lífshorfur en hafa haft mikil áhrif á lífsgæði kvenna með brjóstakrabbamein. Stafgöngunámskeið hefjast 30. október n.k. stafgönguþjálfi, 616 85 95. stafgönguþjálfi, 694 35 71. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á: Taktu þátt í æsispennandi keppni um dans ársins og þú gætir slegið í gegn hjá íslensku þjóðinni! ERT ÞÚ DANSHÖFUNDUR ÁRSINS? sem allir geta lært sem hægt er að kenna á stuttum tíma sem allir vilja dansa Semdu dans ... Allir geta tekið þátt – glæsileg verðlaun nánari upplýsingar á www.fm957.isFagfélag danskennara Dansráð Íslands UNDANKEPPNI Í VETRARGARÐINUM Í SMÁRALIND 20. OKTÓBER OG ÚRSLIT 27. OKTÓBER 2007!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.