Fréttablaðið - 23.10.2007, Síða 24
23. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Flestir þekkja þá dásamlegu tilfinningu að
ganga á dúnmjúku gólfteppi, en sú tíska að
teppaleggja stofur er að ryðja sér til rúms aftur
meðal landsmanna.
„Flestir teppaleggja eitt til tvö rými í híbýlum sínum
og æ fleiri velja teppi á stofur sínar, sjónvarpshol og
jafnvel hjónaherbergið,“ segir Olgeir Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Gólfefna ehf-Teppalands, um leið og
hann vísar til föðurhúsanna þeirri staðhæfingu að tepp-
um fylgi meiri rykvandamál en harðari gólfefnum.
„Þýsku og dönsku ofnæmissamtökin mæla með textíl-
efnum á gólf sé einhver á heimilinu með rykofnæmi.
Ryk fellur óhjákvæmilega alltaf til í húsum. Teppi
bindur ryk á meðan ryk á flísum og parketti fýkur
um og þyrlast á eftir þeim sem ganga um og barnið
skríður í því. Það gleymist svo stundum að það þarf að
þrífa gólfteppi eins og önnur gólfefni,“ segir Olgeir og
bendir á að hægt sé að fá teppi í öllum gæðaflokkum og
á verðbilinu 400 til 14.000 krónur fermetrann.
„Mest er keypt af vönduðum einlitum ullartepp-
um og ljósir litir eru vinsælastir, en við sjáum þess
merki að sterkari litir, eins og appelsínugulir, kónga-
bláir eða svartir með kavíaráferð eru að verða vin-
sælli og koma meira inn. Svo er alltaf einn og einn
sem vill láta sérvefa fyrir sig munstur, og lykkju-
teppi í breskum sveitastíl njóta mikilla vinsælda,“
segir Olgeir og minnist rósóttu teppanna sem margir
muna eftir í stássstofum ömmu og afa hér áður fyrr.
„Blómmunstruð teppi eru dýrari því vefnaður er
flóknari í framleiðslu. Hins vegar er alltaf ákveð-
inn hópur sem kaupir þau vegna þess hve teppin eru
praktísk, en mynstrin voru upphaflega gerð til að
fela óhreinindi, eins og kolaryk úr skóm gesta á hótel-
um. Mynstruð teppi lengja líftíma teppa um helming,
en vönduð ullarteppi halda sér vel í tuttugu ár,“ segir
Olgeir og telur upp helstu kosti þess að velja teppi
umfram önnur gólfefni.
„Teppi eru umhverfisvæn á þann hátt að hiti getur
verið allt að tveimur gráðum lægri en þar sem er
parkett. Teppi eru hlý og einangrandi, og þau veita
mikið öryggi gagnvart slysum á heimilum þar sem
þau taka af föll sem geta orðið að stórslysi á harðari
gólfefnum.“
thordis@frettabladid.is
Dúnmjúk, umvefjandi
og örugg teppaspor
Kóngablá og appelsínugul teppi eru að ryðja sér til rúms.
Mest er keypt af einlitum ullarteppum og eru ljósu litirnir vinsælastir.
Olgeir Þórisson, framkvæmdastjóri Gólfefna ehf-Teppalands,
með myndarlegt úrval gólfteppa í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bára Gunnlaugsdóttir, innanhússarkitekt hjá Ormsson
sem býður upp á úrval af HTH innréttingum, segir að
hvítur háglans sé enn leiðandi þó að nú séu dekkri viðar-
tegundir farnar að koma inn í bland við hvíta litinn.
„Límtrésborðplötur eru orðnar mjög vinsælar í eldhús
og gefa hlýju í bland við háglansinn en plöturnar eru
í góðri þykkt og mjög vandaðar,“ segir Bára og bætir
því við að vaskar séu fræstir í plötuna auk spanhellu-
borða, innbyggðra kaffivéla, vínkæla og combi-ofna
sem séu jafnan ofarlega á óskalista viðskiptavina.
„Það er mikilvægt að huga að innréttingum íbúðar-
húsnæðis strax í upphafi því allar innréttingar heimilis-
ins hafa jafn mikið vægi, og heildarmynd þeirra end-
urspeglar persónulegan stíl hvers og eins,” segir Bára
og bætir við: „Á næstu misserum fáum við væntan-
lega að sjá meiri áherslu lagða á hlýleika og mýkri
línur þar sem klassísk hönnun er útfærð í nýjan bún-
ing.” - sig
Hvítt er enn vinsælast
Bára Gunnlaugsdóttir innanhúsarkitekt og Helga Nína
Aas, tækniteiknari hjá Ormsson, aðstoða viðskiptavini
við að finna réttu innréttinguna í Ormsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA