Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 23.10.2007, Qupperneq 33
[Hlutabréf] Gengi hlutabréfa féll í Kauphöll Íslands í gærmorgun en jafnaði sig þegar leið á daginn. Þetta var í takt við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í gær. Úrvalsvísitalan féll um rúm tvö prósent skömmu eftir að viðskipti hófust en nokkru minna í Evrópu, þar af um 1,12 prósent í Bretlandi og 1,28 prósent í Þýskalandi. Mest lækkaði gengi í FL Group, eða um 4,4 prósent. Gengi Exista féll um 3,7 prósent og Kaupþing um 2,5 prósent. Taktur lækkanahrinunnar var sleginn í Bandaríkjunum á föstudag en þá féll Dow Jones-vísitalan um tæp 2,7 prósent. Hlut að máli eiga dræm uppgjör fjármálafyrirtækja fyrr í vikunni og vísbendingar um að áhrif af samdrætti á fasteignalánamarkaði vestanhafs muni bíta í hagvöxt á næstu misserum. Fjárfestar gerðu því ráð fyrir að lækkunin myndi smita frá sér til annarra markaða í byrjun vikunnar og gekk spáin eftir. Í gær voru liðin 20 ár frá svarta mánudeginum svokallaða en þá féll Bandaríkjamarkaður um heil 23 prósent á einum degi. Ekki liggur fyrir um ástæður þess þá en almennt er talið að um snarpa leiðréttingu á hlutabréfa- verði hafi verið að ræða. Rauður dagur víða um heim Kristján Kristjánsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group. Starfs- mönnum var tilkynnt um ákvörð- unina í gær. Kristján, sem áður var í Kastljósi Sjón- varpsins, var ráðinn til starfa hjá félaginu í fyrrahaust og hefur því starf- að hjá félaginu í rétt rúmt ár. Starfslok Kristjáns koma í kjölfar þess að Halldór Krist- mannsson viðskiptafræðingur, sem áður sinnti samskiptamálum fyrir Actavis, var ráðinn fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group í síðasta mánuði. Halldór tók yfir starfssvið sem áður voru á könnu Kristjáns en honum er ætlað að bera ábyrgð á öllum sam- skiptamálum FL Group, þar á meðal samskiptum við fjárfesta, fjölmiðla, innri samskiptum og ímyndaruppbyggingu félagsins. Kristján hættur hjá FL Group MP Pension Fund Baltic, dótturfé- lag MP fjárfestingarbanka, hefur hafið starfsemi í Litháen. Félagið mun bjóða almenningi í Litháen upp á viðbótarlífeyrissparnað. Meginmarkmið félagsins verð- ur að örva frjálsan lífeyrissparn- að í Litháen og upplýsa litháískt samfélag um ágæti lífeyrissjóða segir í fréttatilkynningu. Þar segir að litháíski lífeyrissjóðamarkað- urinn sé tiltölulega skammt á veg kominn í þróun lífeyrismála, eink- um hvað varðar þriðju stoðar líf- eyrissjóði. Það eru einkareknir líf- eyrissjóðir sem gefa launafólki færi á að greiða frjáls viðbótarið- gjöld. Mikill munur er á Íslandi og Lit- háen hvað varðar þróun lífeyris- sjóðsmála. Eignir lífeyrissjóða í Litháen nema um 1,2 prósentum af vergri landsframleiðslu en um 120 prósentum á Íslandi. MP til Litháen Byr sparisjóður gerði hluthöfum Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna hf. (VSP) tilboð um kaup á rekstri félagsins. Hluthafafundur Verð- bréfaþjónustu sparisjóðanna sam- þykkti að taka tilboðinu. Í frétta- tilkynningu segir að kaupverðið sé trúnaðarmál. Verðbréfaþjón- ustan til Byrs Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókhálsi 5 – Sími 517 8050 Ný Beretta Frá því í fyrra hafa allir talað um Beretta Xtrema2. Nú kynnum við Beretta Urika 2. Ný og endurbætt Beretta Urika með sjálfhreinsibúnaði og hröðustu skiftingunni á markaðnum. Beretta Urika 2 Synthetic. Kick Off bakslagsvörn í skefti. Sjálfhreinsibúnaður. Hraðasta skiftingin á markaðnum. Taska fylgir ásamt þrengingum, ólarfestingum og hallaplötum. Verð aðeins 144.900 eða aðeins 12.588 á mánuði í 12 mánuði vaxtalaust. (Innifalið í mánaðagreiðslum er 3% lántökugjald og færslugjald kortafyrirtækja) Þú færð úrval Beretta skotvopna í Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Einnig úrval af glæsilegum Beretta lífstílsfatnaði í Veiðimanninum Hafnarstræti 5 Munið vinsælu gjafabréfin okkar Beretta Ultralight Deluxe Léttasta tvíhleypan á markaðnum. Aðeins 2,8 kg. Vönduð hnota og fallegt útflúr á húsi. Taska, þrengingar og fleira. Verð aðeins 189,900 eða aðeins 16.450 á mánuði í 12 mánuði vaxtalaust. Beretta White Onyx Glæsileg alhliða yfir / undir veiðibyssa frá Beretta. Taska, þrengingar og fleira. Verð aðeins 179.900 eða aðeins 15.591 á mánuði í 12 mánuði vaxtalaust. Beretta 682 Gold E Sporting. Einhver vinsælasta keppnisbyssan frá Beretta á Íslandi mörg undanfarin ár. Glæsileg tvíhleypa, velbúin fylgihlutum. Verð aðeins 249.800 eða 21.581 á mánuði í 12 mánuði vaxtalaust. Beretta Urika 2 Xtra Grain. Sérstaklega valin og meðhöndluð hnota í skeftum. Sjálfhreinsibúnaður. Hraðasta skiftingin á markaðnum. Taska fylgir ásamt þrengingum, ólarfestingu og hallaplötum. Verð aðeins 139.900 eða aðeins 12.158 á mánuði í 12 mánuði vaxtalaust.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.