Fréttablaðið - 23.10.2007, Page 37
Borgarleikhúsið frumsýnir
á fimmtudagskvöld leikritið
Ræðismannaskrifstofan
eftir Jo Strömgren. Sýning-
in fer fram á bullmáli.
Leikritið fjallar um starfsmenn
rússneskrar ræðismannaskrif-
stofu í litlu og ónefndu landi. Þau
lifa einangruðu lífi: síminn hringir
ekki, póstur kemur sjaldan og föð-
urlandið er víðs fjarri.
Höfundur og leikstjóri sýning-
arinnar er Jo Strömgren. Hann
segir leikritið gerast við dularfullar
aðstæður. „Ræðismannaskrifstof-
ur eru staðir sem almenningur
hefur ekki mikla vitneskju um.
Fólkið í leikritinu lifir einangruðu
lífi og fyrir vikið tekur skrifstofan
á sig óvinveittan blæ. Verkið kann-
ar hversu skelfilega fólk getur
farið að hegða sér ef það lifir nógu
lengi við slíkar kringumstæður.
Leikritið tekst á við alvarlegan
þátt mannlegrar hegðunar, en
gerir það á gamansaman hátt.“
Jo segir hugmyndina að verkinu
hafa kviknað út frá frægum skil-
yrðingatilraunum Pavlovs á hund-
um. „Þegar maður fer í leikhús og
sér verk eftir einhvern andans
jöfur eins og til dæmis Ibsen þá
öðlast maður trú á mannkynið.
Maður fer að halda að fólk sé hugs-
andi tilfinningaverur. Í þessu leik-
riti sýni ég aftur á móti að við
erum frekar eins og hundarnir
hans Pavlovs. Við erum frumstæð
og látum stjórnast af vissum
grunnhvötum.“
Sýningin fer fram á bullmáli en
það er ekki í fyrsta skipti sem Jo
semur þess háttar verk. „Bullmál-
ið er aðferð sem ég beiti vegna
þess að ég vil að áhorfendur taki
virkan þátt í að skynja sýninguna.
Ég veit til þess að sumir leikhús-
gestir koma í leikhús og loka aug-
unum og hlusta bara á flutning
textans. Bullmálið tryggir það að
áhorfendur nota bæði augu og
eyru til þess að skilja leikritið þar
sem aðstæðurnar sem leikararnir
eru í skipta líklega meira máli en
textinn sjálfur. Ekki síður býður
bullmálið upp á að áhorfendur
leggi hver sína túlkun í verkið.
Áhorfendur koma því út af leikrit-
unum mínum með ólíkar upplifan-
ir í farteskinu.“
Dagskrá til heiðurs
Jónasi Svafár, skáldi
og myndlistarmanni,
sem lést árið 2004,
verður haldin á
fimmtudagskvöld kl.
20 í sal Reykjavíkur-
akademíunnar, Hring-
braut 121. Aðgangur er
ókeypis og öllum
opinn.
Á samkomunni flyt-
ur Benedikt Hjartar-
son erindi um Jónas og
lesin verða ljóð eftir
hann. Einnig mun
hópur myndlistar-
manna og rithöfunda
flytja eftir sig verk, og er það
hugsað sem nokkurs konar fram-
hald eða ítrekun á þeim samslætti
listgreina sem Jónas stundaði í
verkum sínum.
Í bókum sínum birti Jónas
bæði ljóð og myndir en þó án
þess að annar þátturinn
væri í þjónustu hins,
eins og oft vill verða
um myndskreytingar
bóka, heldur ríkir þar
markviss heildarhugs-
un. Jónas vann því með
bókina sem miðlunar-
form og útkoman varð
oftar en ekki hrein-
ræktað bókverk.
Kvölddagskráin á
fimmtudag er haldin í
tengslum við sýningu á
teikningum eftir Jónas
sem nú stendur yfir í
Hoffmannsgalleríi, en
það er einmitt til húsa á
sama stað og Reykjavíkur-
akademían. Myndirnar á sýning-
unni eru flestar frá sjötta áratug
síðustu aldar og í þeim birtast
þau átök á milli hlutbundinnar og
óhlutbundinnar myndlistar sem
þá stóðu sem hæst.
Til heiðurs Jónasi Svafár
vinbud.isHva› er gott me› ?