Fréttablaðið - 23.10.2007, Page 39
Miklir eldar geisa nú í
Malibu í Los Angeles. Þar
býr fjöldinn allur af Holly-
wood-stjörnum, sem nú
eru í viðbragðsstöðu vegna
hættunnar.
Eldurinn berst hratt á milli staða
sökum mikilla vinda sem kenndir
eru við Santa Ana og blása yfir-
leitt um borg englanna á haustin.
Því þurfa allir sem í borgarhlutan-
um búa að vera í viðbragðsstöðu
því erfitt er að segja fyrir um hvar
eldinn ber næst niður. Talið er að
upptök eldsins megi rekja til þess
að loftlínur hafi slitnað og kveikt í
þurrum gróðri á sunnudag. Slæmir
þurrkar í Kaliforníu undanfarnar
vikur bæta ekki úr skák.
Britney Spears er kannski fræg-
asti íbúi Malibu, en hún er langt
því frá eina stjarnan sem hefur
skotið rótum á svæðinu. Jennifer
Aniston, Courteney Cox og David
Arquette búa öll í Malibu, eins og
Tom Hanks og Rita Wilson, Sting
og Bill Murray, svo einhverjir séu
nefndir.
Í gær bárust fréttir af því að
Malibu Castle, sem er eitt þekkt-
asta kennileitið á svæðinu, hefði
brunnið til kaldra kola, ásamt
kirkju í nágrenninu. Heimili
Grease-leikkonunnar og söngkon-
unnar Oliviu Newton-John var í
mikilli hættu af eldinum og var
fjölskylda hennar flutt af svæð-
inu. Þá var heimili James Camer-
on, leikstjóra Titanic, ásamt ann-
arra mynda, einnig í hættu og
fjölskylda hans flutt á öruggan
stað.
Um tvö hundruð heimili hafa
þegar verið rýmd og mörg hundr-
uð fleiri eru í hættu. Þar á meðal
eru heimili leikaranna Sean Penn
og David Duchovny, en allir þurfa
þó að vera í viðbragðsstöðu.