Fréttablaðið - 29.10.2007, Page 20
Eignakjör ehf. á Akureyri hafa húsið til sölu. Skálafell
á Vaðlaheiði stendur á 7.739 fermetra eignarlóð gegnt
Akureyri og er húsið staðbyggt, norskt timburhús frá
árinu 2005. Neðri hæð hússins er 109 fermetrar og ris er
55,6 fermetrar. Grunnflötur bílskúrs er 51,6 fermetrar auk
millilofts og er því um 216 fermetra að ræða.
Lýsing: Á neðri hæð er forstofa, þvottahús/geymsla,
baðherbergi, hjónaherbergi, hol, stór stofa með vand-
aðri JOTUL kamínu og rúmgott eldhús með vönduðum
heimilistækjum og innréttingu. Hiti er í gólfum á neðri
hæð og eru þau flísalögð. Veggir á baðherbergi og þvottahúsi eru flísalagðir upp í loft og í bað-
herbergi á neðri hæð er sturta. Í risi eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Parket
er á gólfi og útgengt úr holi á svalir. Flísar eru upp í loft og að hluta á gólfi í baðherbergi og er þar
nuddbaðkar í gamaldags stíl. Hiti er í gólfi á neðri hæð bílskúrs og er hann einangraður en óinn-
réttaður. Á millilofti skúrsins er gott rými og útsýni. Í húsinu er öryggiskerfi tengt bruna-, gas- og
vatnsskynjurum og er það líka þjófavarnarkerfi. Einnig er loftskiptikerfi og varmaskipti á vatni og
myndast því ekki kísill á krönum og hreinlætistækjum. Á Svalbarðseyri er góður leik- og grunnskóli
og var vegur 828 allur byggður upp sumarið 2007 og sett á hann bundið slitlag. Frá Skálafelli er
um tíu mínútna akstur til Akureyrar og því stutt í alla þjónustu.
Norðurland: Rammgert og rómantískt norskt timburhús
Skálafell á Vaðlaheiði: Tæplega 8.000 fermetra lóð gegnt Akureyri
Danfoss ofnhitastillar
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Háþróuð og notendavæn
hitastýring sem veitir
þægilega húshitun og
hámarks orkusparnað
Við erum leiðandi í
framleiðslu ofnhitastilla