Fréttablaðið - 29.10.2007, Side 42

Fréttablaðið - 29.10.2007, Side 42
Tveir tímar mættust á Stóra sviði Þjóðleikhússins á dög- unum. Leikhópur Skilaboða- skjóðunnar, sem frumsýnd verður í nóvember, átti stefnumót við fyrirrennara sína. Skilaboðaskjóðan var síðast sett upp í Þjóðleik- húsinu árið 1994, þegar Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður leikstýrði hópnum. Í ár er það Gunnar Helgason sem leikstýrir nýjum hópi leikara, sem tók stefnumótinu við forvera sína fagnandi. „Okkur hefur alltaf tekist mjög vel að starfa saman frá því við vorum í Purrki Pillnikk. Það er líka kjörið að innsigla okkar gamla samstarf með þessum hætti,“ segir rithöf- undurinn Bragi Ólafsson, sem hefur gefið út bókina „Mátunar- klefinn og aðrar myndir“ með félaga sínum úr Smekkleysu, Einari Erni Benediktssyni. Trjávöxtur og kirkjugarðar eru áberandi í nýju bókinni, sem hefur að geyma hinar ýmsu teikningar og orðmyndir. Þótt bókin sé sú fyrsta sem þeir félagar gefa út saman hafa þeir lengi starfað saman í bókaútgáfu því Einar Örn hefur myndskreytt margar af bók- arkápum Braga. „Við settum saman eins konar bók árið 1984 með teikningum og textum sem við hættum við að gefa út. Síðan höfum við alltaf orðað það af og til að búa til eitthvað saman. Við byrjuðum með seríu hjá Smekkleysu með litlum bókum og hugmyndin okkar passaði í það. Ég hef lengi verið aðdáandi Einars sem teiknara þannig að ég spurði hvort hann væri ekki til í þetta,“ segir Bragi. Þrátt fyrir að plötuútgáfa hafi alla tíð verið í aðalhlutverki hjá Smekkleysu hefur bókaútgáfa einnig komið við sögu í rekstrinum og er bók Braga og Einars hluti af smáritaútgáfu fyrirtækisins. Á sama tíma kemur út bókin Sjónvilla með textum eftir ljóðskáldið og þýðandann Óskar Árna. Innsigla samstarfið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.