Fréttablaðið - 27.12.2007, Síða 4
4 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
SAMKEPPNISMÁL Íslensk fyrirtæki
geta í auknum mæli neitað Sam-
keppniseftirlitinu um aðgang að
gögnum sem merkt eru sem trún-
aðarmál sjálfstætt starfandi lög-
fræðinga. Þetta segir Margrét
Gunnarsdóttir lögmaður um
nýjan dóm Evrópudómstólsins
sem féll 17. september síðastlið-
inn.
Samkvæmt dómnum eru það
aðeins gögn milli sjálfstætt starf-
andi lögmanna og skjólstæðinga
sem falla undir trúnaðarsam-
band. Þau gögn eru því undan-
þegin rannsóknum samkeppnis-
yfirvalda, en ekki gögn milli
innanhússlögmanna og fyrir-
tækja. Margrét býst þó við að
dómnum verði áfrýjað til annars
dómstigs.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
fyrir tæki hafi hingað til ekki neitað
eftirlitinu um gögn á þessum for-
sendum. „Í íslenskum lögum eru
ekki skýr ákvæði um þetta og það
hefur ekki reynt á þetta í ákvörðun-
um eftirlitsins hingað til,“ segir Páll
Gunnar. „Það verður bara að koma í
ljós þegar þar að kemur hvernig
þetta verður túlkað hérlendis.“ - sgj
Fyrirtæki geta neitað samkeppnisyfirvöldum um aðgang að trúnaðargögnum:
Geta borið fyrir sig trúnað
HÚSLEIT Fyrirtæki geta borið fyrir sig
trúnaðarsamband við lögfræðinga
og neitað að afhenda samkeppnis-
yfirvöldum gögn.
EFNAHAGSMÁL „Ég held að þetta sé
í fyrsta skipti sem seðlabanka-
stjórinn viðurkennir að það hafi
kannski ekki allt verið rétt sem
þeir hafa haldið fram,“ segir
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands
Íslands. „Það er vonandi að hann
sé eitthvað aðeins farinn að sjá
það sem við höfum talað um.“
Í viðtali við Davíð Oddsson
seðlabankastjóra í Ríkis-
útvarpinu sagði
hann að eftir á
að hyggja mætti
segja að Seðla-
bankanum hefði
ekki tekist
nægilega vel
upp í aðgerðum
sínum gegn
verðbólgu á
árinu. Í ljós
hefði komið að
hagvöxtur hefði
verið mun meiri
en upplýsingar
voru um á þeim
tíma. Þannig
mætti vera vitur
eftir á.
„Við erum
búnir að vera að
benda á það í
nokkurn tíma að
staðan sem
hefur verið síð-
ustu tvö ár sé
afleiðing feyki-
lega mikilla
framkvæmda
sem ollu því að
lánsfé streymdi
til landsins og
fór inn í hag-
kerfið. Efna-
hagsstjórnin hefur ekki verið
merkileg; menn hafa setið með
hendur í skauti og horft á fjár-
magn streyma inn án þess að
reyna að stjórna því.“
Guðmundur segist telja að með
þessu viðtali sé Davíð í fyrsta
skipti að viðurkenna það sem
menn hafi verið að benda á varð-
andi efnahagsstjórn landsins.
Í viðtalinu sagði Davíð einnig
að árið hafi verið gott fyrir
Íslendinga. Atvinnuleysi hafi
verið lítið, kaupmáttur fari mjög
vaxandi og eignamyndun sé
mikil. Þótt mismikið fari til hvers
og eins hafi margt jákvætt
gerst.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
Íslands, segir erfitt að taka undir
með Davíð nema einblínt sé á
meðal talið. „Hvað sem eigna-
myndun líður fer misskiptingin
vaxandi, þar sem helmingur
þjóðar innar hefur mátt þola
skerðingu kaupmáttar. Staðan er
þannig í dag að ungt fólk eða fólk
með meðaltekjur hefur ekki ráð
á því að eignast þak yfir höfuð-
ið,“ segir hann.
„Ef menn vilja einblína á með-
altalið getur maður tekið undir
með Davíð að það hafi verið mjög
gott, en meðaltalið dekkar mikla
misskiptingu frá því að hafa það
gríðar lega gott í að hafa það
skítt.“
Ekki náðist í Vilhjálm Egils-
son, framkvæmdastjóra Sam-
taka atvinnulífsins, við vinnslu
fréttarinnar. salvar@frettabladid.is
Segir Davíð loks viðurkenna
slælega stjórn efnahagsmála
Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að seðlabankastjóri hafi í viðtali viðurkennt það sem aðrir hafi
lengi bent á varðandi slaka efnahagsstjórn landsins. Misskipting fer vaxandi, segir framkvæmdastjóri ASÍ.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, segir stöðuna í dag vera afleiðingu
feykilega mikilla framkvæmda sem ollu því að lánsfé streymdi til landsins og fór inn í hagkerfið.
GUÐMUNDUR
GUNNARSSON
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
SUÐURLAND Algengt er að
fyrirtæki gefi starfsmönnum
sínum jólagjafir en afar fátítt er
að sveitarfélög gefi íbúum
sínum gjafir. Hreppsnefnd
Ásahrepps var hins vegar í
jólaskapi og gaf eintak af
nýútkominni Holtamannabók á
hvert lögbýli í hreppnum.
Samkvæmt Agli Sigurðssyni
varaoddvita er um um það bil
sextíu býli að ræða og segir
hann að nú þegar hafi um tveir
þriðju bókanna verið sóttir.
„Þetta er heimildasöfnun og
metnaður að hafa skrá yfir íbúa
til framtíðar,“ segir Egill.
Bókin, sem er 680 blaðsíður, er
hin þriðja í bókaflokki um íbúa í
Rangárvallasýslu. Er hún byggð
á frumdrögum Valgeirs Sigurðs-
sonar en Ragnar Böðvarsson og
Þorgils Jónasson skrifuðu
bókina sem gefin er út af
Sveitarfélaginu Rangárþingi
ytra. - ovd
Íbúar fá Holtamannabók:
Ásahreppur
gefur jólagjöf
DAVÍÐ ODDSSON
BRETLAND Vísindamenn á vegum
breskra yfirvalda hafa lagt til að
trúðaskreytingar skuli bannaðar
á barnadeildum spítala, vegna
þess að trúðar skelfi börn.
Rannsókn sem gerð var á 250
börnum á aldrinum fjögurra til
sextán ára leiddi í ljós að öllum
börnunum 250 var illa við
trúðatengdar myndir í herbergj-
unum. Jafnvel táningarnir sögðu
trúðana „ógnvekjandi“.
Að því er fram kemur í
blaðinu The Daily Telegraph
getur trúðafælni (e. coulro-
phobia) valdið kvíðaköstum,
andnauð, hjartsláttartruflunum
og ógleði hjá þeim sem þjást af
fælninni. - sh
Trúðar skulu burt af spítölum:
Trúðar hættir
að vera fyndnir
LÖGREGLUMÁL Grindvískum
ungmennum tókst ekki að
skemmta sér yfir ólöglegri
jólabrennu þetta árið eins og oft
undanfarin ár. Lögreglan á
Suðurnesjum var kölluð út í
fyrrinótt eftir að eldur var borinn
að bálkesti í bænum en þegar
hana bar að hafði eldurinn verið
slökktur.
Lögreglan hafði aukinn
viðbúnað í bænum vegna reynslu
undanfarinna ára, en nokkrum
sinnum hefur komið til stimpinga
milli lögreglu og ungmenna sem
telja lögreglu og slökkvilið spilla
gleði sinni og reyna að hindra
slökkvistarf. - sh
Lögregla bjóst við jólabrennu:
Engin dólgslæti
í Grindavík í ár
GENGIÐ 21.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
121,4348
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
63,64 63,94
126,32 126,94
91,4 91,92
12,248 12,32
11,386 11,454
9,683 9,739
0,5615 0,5647
99,39 99,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500