Fréttablaðið - 27.12.2007, Qupperneq 12
12 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Kvenkyns lögreglumenn
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Fj
öl
di
77 8275 98
2003 2004 2005 2006
Nýr sendiherra Frakklands,
Olivier Mauvisseau, segir
gamla ósk hafa ræst er
hann var skipaður í stöð-
una. Hann segir franska
herinn og frönsk stjórnvöld
líta á þátttöku í eftirliti með
lofthelginni hérlendis sem
kærkomið tækifæri til að
auka tengslin við Ísland.
Fyrstu orrustuþoturnar sem hafa
munu bækistöðvar á Keflavíkur-
flugvelli eftir að þær bandarísku
hurfu þaðan sumarið 2006 verða
franskar. Frönsk flugsveit mun í
vor stunda æfingar og eftirlit í
íslenzku lofthelginni um nokkurra
vikna skeið, innan ramma sam-
komulags um lofthelgieftirlit sem
Ísland hefur gert við NATO. Þar
sem það er söguleg nýlunda að
franskar herþotur athafni sig á
Íslandi er Mauvisseu fyrst spurð-
ur hvort koma þeirra endurspegli
nýja stefnu af hálfu Frakklands-
stjórnar; hvort hún sé með því að
senda þoturnar hingað að leita
eftir virkara samstarfi við Íslend-
inga um öryggis- og varnarmál?
Áhugi á öryggi norðurslóða
„Þegar Ísland kom fyrst fram með
boðið innan NATO um að NATO-
þjóðir sendu flugsveitir til þátt-
töku í lofthelgieftirliti og æfing-
um á Íslandi frá og með vorinu
2008 vakti það strax mikinn áhuga
innan franska hersins. Að því
komst ég þegar ég fór á fundi í
ráðuneytum og í höfuðstöðvum
hersins í París eftir að ákveðið
hafði verið í haust að ég tæki við
sem sendiherra í Reykjavík,“
svarar Mauvisseau.
„Allir viðmælendur mínir, bæði
í höfuðstöðvum hersins, í varnar-
málaráðuneytinu og á alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins,
höfðu orð á því hversu áhugavert
þetta væri, bæði hernaðarlega og
sem tækifæri til að eiga skoðana-
skipti við Íslendinga um öryggis-
mál á Norður-Atlantshafssvæð-
inu,“ segir sendiherrann. „Þeir
voru sem sagt bæði áhugasamir
um hernaðarlegan þátt verkefnis-
ins og hið pólitíska samráð sem
því fylgir.“
Spurður hvort bráðnun heim-
skautsíssins og horfurnar á auk-
inni skipaumferð um norðurslóðir
og nýju kapphlaupi um auðlindir í
Norðurhöfum eigi þátt í þessum
áhuga franskra stjórnvalda svarar
Mauvisseau að vissulega sé það
svo. „Við Frakkar látum okkur
þetta sjálfsagt minna varða en
þær þjóðir sem næst liggja Norður-
höfum, svo sem Norðurlönd, Kan-
ada, Rússland, jafnvel Bretland,
en afleiðingar loftslagsbreytinga
eru mjög í brennidepli umræð-
unnar í Frakklandi sem endur-
speglast meðal annars í þeirri
nýju áherzlu sem Sarkozy forseti
hefur boðað á umhverfismál. (...)
Við deilum þessum áhyggjum,“
segir Mauvisseau.
Rótgróinn Íslandsáhugi
Spurður hvað hafi orðið til þess að
hann leitaði eftir því að verða
sendiherra í Reykjavík svarar
Mauvisseau á lýtalausri íslenzku:
„Það er löng saga.“ Hann hafi alizt
upp í Suður-Frakklandi og strax á
æskuárum fengið mikinn áhuga á
löndum sem voru hvað ólíkust
heimahögum hans. Þannig hafi
hann fengið áhuga á Norðurlönd-
um, einkum á menningu og tungu
Norðurlandaþjóðanna, sem hafi
vaxið og dafnað frá þeim tíma.
Í fyrstu Íslandsheimsóknina
kom Mauvisseau fyrir nærri
þremur áratugum, árið 1978, en þá
var hann enn í námi. Hann kveðst
hafa heimsótt landið oftsinnis
síðan og á þeim tíma sem hann
þjónaði í sendiráði Frakka í Ósló
fyrir um fimmtán árum hafi hann
bæði lært vel norsku en gert sér
jafnframt far um að læra íslenzku,
af persónulegum áhuga. Þá kunn-
áttu hyggst hann bæta enn, nú
þegar hann er orðinn sendiherra
hér.
„Þegar ég kom hingað fyrst árið
1978 hefði ég ekki getað ímyndað
mér að 30 árum síðar yrði ég
sendiherra lands míns hér. En
þeim mun ánægjulegra þykir mér
að það skuli vera raunin. Það er
virkilega eitthvað sem er mér per-
sónulega dýrmætt,“ segir hann.
Óskar sér nánari samskipta
Mauvisseau segist stoltur af þeirri
staðreynd að Frakkar hafa haft
sendiráð á Íslandi allt frá stofnun
lýðveldisins; þjóðirnar tvær eigi
sér mjög langa og farsæla sögu
tvíhliða samskipta. En hann segist
samt myndu óska sér að tengslin
væru enn nánari.
„Hvað stjórnmálatengsl varðar
myndi ég óska mér að sjá nánari
samskipti milli ráðamanna.
Franskur forseti hefur til að
mynda ekki komið hingað í opin-
bera heimsókn síðan Francois
Mitterrand gerði það árið 1991,“
bendir hann á.
Að sínu mati séu mörg svið þar
sem þjóðirnar tvær geti eflt sam-
skiptin. „Við höfum nefnt öryggis-
og varnarmál, en ég tel okkur hafa
fullt erindi til að efla tengslin á
sviðum eins og sjávarútvegsmál-
um, viðskiptum og ferðamálum,
svo dæmi séu nefnd, auk Evrópu-
mála, auðvitað. Frakkar munu
fara með formennskuna í Evrópu-
sambandinu á síðari árshelmingi
2008 og vonumst við til góðra
skoðanaskipta um þau mál við
íslenzk stjórnvöld,“ segir hann og
bætir við að menningarhátíðin
„Franskt vor“ sem efnt var til hér
í vor sem leið sé dæmi um við-
burði sem efla menningartengsl
þjóðanna.
Tækifæri til efldra tengsla
OLIVIER MAUVISSEAU Nýr sendiherra Frakka er sannkallaður Íslandsvinur sem oft
hefur komið hingað til lands síðan árið 1978. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TIL KEFLAVÍKUR Mirage 2000-orrustu-
þota franska flughersins, en slíkar vélar
verða væntanlega í frönsku flugsveitinni
sem í vor ríður á vaðið með lofthelgi-
eftirlit í nafni NATO hér á landi.
NORDICPHOTOS/AFP
„Ég hef ekki hugmynd um það út frá
hverju þeir ganga,“ segir Árni Berg-
mann um ákvörðun tímaritsins Time
að velja Vladimír
Pútín Rússlandsfor-
seta mann ársins.
„Ég var að horfa á
heimildarmynd um
feril Pútíns og það
var sýnt hvernig
menn umgangast
hann með lotningu
og vinsemd. Það er
aðallega vegna þess
hvað hann situr á
miklu gasi og mikilli olíu. Þannig að
þetta er aðallega hylling til olíukóngs-
ins Pútín. Í raun og veru felst styrkur
Pútíns, bæði innanlands og utan, í
því hvernig hann hefur endurheimt
undir ríkið yfirráð yfir olíuiðnaðinum
og hvernig hann hefur notað þau
yfirráð til að fóðra þá auðkýfinga sem
honum eru vinsamlegir. Hann hefur
notað olíuyfirráðin til að gera Rúss-
land sterkara í hinu alþjóðlega tafli.
Olíuverð hefur hækkað og því eru
Rússar betur settir í alþjóðaviðskipt-
um en áður. Menn hafa alltaf falleg
orð um lýðræði og mannréttindi, en
þegar verið er að velja svona mann
sem mann ársins snýst það meira um
hvort hann situr á olíu eða ekki. Menn
rífa ekki kjaft út af mannréttindum
nema við þá sem lítils mega sín.“
SJÓNARHÓLL
VLADIMÍR PÚTÍN, MAÐUR ÁRSINS
Hylla olíu-
kónginn Pútín
ÁRNI BERG-
MANN
Rithöfundur
[Frakkar eru] bæði áhuga-
samir um hernaðarlegan
þátt verkefnisins og hið pólitíska
samráð sem því fylgir.
OLIVIER MAUVISSEAU
SENDIHERRA FRAKKLANDS
Um tvö hundruð lítrar af efni sem innihélt
saltpéturs sýru að 53 prósentum lak úr tanki á
Hesthálsi fyrir viku. Slökkviliðið hafði mikinn
viðbúnað vegna slyssins og menn í eitur-
efnabúningum unnu í talsverðan tíma við að
hreinsa upp efnið.
Hvað er saltpéturssýra?
Saltpéturssýra heitir á fræðimáli vetnisnítrat
og hefur efnaformúluna HNO3. Hrein salt-
péturssýra er litlaus vökvi, sem verður að
föstu efni við 42 gráðu frost. Saltpéturssýra
litast gul eða rauð við upplausn natríum-
díoxíðs í henni. Saltpéturssýran var uppgötv-
uð um aldamótin 800 af arabíska efnafræð-
ingnum Abu Musa Jabir ibn Hayyan.
Í hvað er saltpéturssýra notuð?
Sýran er meðal annars talsvert notuð á tilraunastofum. Hún
er notuð í sprengiefni, svo sem nítreóglysserín og
TNT. Þá er hún notuð í áburðarframleiðslu, við
að hreinsa og leysa upp málma, seld til nota í
hreinsivörur og nýtt til að hreinsa matvæla-
og mjólkurframleiðslu. Þegar hún blandast
saltsýru (HCl) er hún eitt fárra efna sem geta
leyst upp gull og platínu. Þá er hún notuð
við litagreiningu á heróíni og morfíni.
Er hún hættuleg?
Já, saltpéturssýra er varasöm í meira lagi. Hún
er eitruð og mjög ætandi og getur valdið fólki
alvarlegum brunasárum. Þá getur kviknað í saltpéturs-
sýru ef hún kemst í samband við ýmis lífræn efni, svo sem
terpentínu.
FBL-GREINING: SALTPÉTURSSÝRA
Mikið notuð í sprengiefni
FRÉTTAVIÐTAL
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is