Fréttablaðið - 27.12.2007, Síða 25
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA ÁRAMÓT VINNUVÉLAR O.FL.
Vilhelm og kærastan eyddu eftirminnilegum
áramótum með ókunnum rosknum hjónum.
Vilhelm Anton Jónsson er í þann mund að leggja mán-
aðargamlan frumburð sinn til hvílu þegar hann er
truflaður og spurður út í eftirminnileg áramót. Ekki
stendur á svari og segist Vilhelm hafa mun meira
gaman af áramótum en jólum. „Þegar ég og Kári
bróðir minn vorum litlir og bjuggum á Laugum í
Reykjadal fengum við alltaf Marúdflögur og ídýfu á
gamlárskvöld. Það var algjörlega toppurinn á til-
verunni og þannig byrjaði í raun áramótagleðin mín,“
segir Vilhelm.
Hann segir þó eftirminnilegustu áramótin án efa
þegar hann og Þórdís kærasta hans og nú barnsmóðir
sóttu Þýskaland heim. „Þetta voru áramótin 1998/1999
og ákváðum við að heimsækja þýska vinkonu okkar
sem við kynntumst í Menntaskólann á Akureyri þar
sem hún var skiptinemi. Stúlkan, sem heitir Luise,
hafði talað um að við gætum komið og ég ákvað að
hringja út til að boða komu okkar. Pabbi hennar svar-
aði og ég talaði eðlilega bara þýsku við hann, að ég
hélt. Hann sagði að Luise væri ekki heima svo ég bað
hann um að skila því til hennar að við værum á leið-
inni,“ segir Vilhelm.
Hann og Þórdís pöntuðu síðan flug og komu sér til
Berlínar. „Við gistum eina nótt á hóteli og báðum kon-
una í afgreiðslunni um að hringja heim til Luise til að
fá nákvæmt heimilisfang. Hún gerði það en varð svo
frekar skrítin á svip og sagði okkur svo að herra Her-
misson hefði verið að reyna að segja mér það þegar
ég hringdi að Luise væri í Hollandi yfir jól og áramót.
Hann tók það þó fram að við værum hjartanlega vel-
komin,“ útskýrir Vilhelm.
Vilhelm og Þórdís voru mjög tvístígandi enda vissu
þau engin deili á fólkinu. „Við slógum þó til, bönkuð-
um upp á og til dyra komu yndisleg gömul hjón. Þau
færðu okkur inniskó og í hönd fór frábær tími. Við
vorum hjá þeim yfir áramótin ásamt fimm öðrum
hjónum um sextugt og sjötugt. Þarna var jólatré með
lifandi kertum og við sátum og kjöftuðum, drukkum
snafs og bjór, átum síld og berlínarbollur og fengum
þýska menningu og áramótasiði beint í æð,“ segir Vil-
helm. Hjónin voru bæði prestar í Austur-Berlín og
buðu Vilhelm og Þórdísi með sér upp í kirkjuturn.
„Þar drukkum við kampavín og fylgdumst með flug-
eldunum. Þetta var alveg klikkað og ef Luise hefði
verið þarna held ég að við hefðum bara hangið á bar.
Hún kom þó til baka 2. janúar svo við vorum með
henni í nokkra daga og náðum að halda upp á afmælið
mitt þann þriðja.“
vera@frettabladid.is
Dúkkuðu upp í Berlín
Vilhelm ætlar að taka því rólega þessi áramót en segist einhvern tímann ætla sér að verða sprengjukarl.
Hattar, grímur, skraut og glys
tilheyra áramótunum og nú má víða
finna slíkt í búðum bæjarins. Í Partý-
búðinni má ávallt finna hvað eina sem
tilheyrir góðu teiti
og verslanir
eins og
Monsoon og
fleiri bjóða
upp á úrval
af grímum,
hönskum og
glingri.
Skálað er á áramót-
um ýmist í áfengum eða
óáfengum veigum fyrir nýju
ári og hið gamla er að sama
skapi kvatt með virkt-
um. Mestu skiptir að
drykkurinn sé hátíð-
legur og fallegur og
því er um að gera
að skála í fallegum
glösum og svo má
skreyta með hverju
sem er.
Ellefu áramóta-
brennur verða í Reykjavík
um þessi áramót. Þar af
verða fjórar stórar brennur
en þær verða við Ægisíðu,
Geirsnef, í Gufunesi og við
Rauðavatn. Kveikt verður í
borgarbrennum klukkan hálfníu
á gamlárskvöld og eru þær í
tveimur stærðarflokkum sem ráðast
af aðstæðum á hverjum stað.
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
Verðdæmi:
Leðursófasett áður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsófar tau áður 198,000 kr
Nú 103,000 kr
Hornsófar leður áður 249,000 kr
Nú frá 159,000 kr
• Leðursófasett
• Hornsófasett
• Sófasett með innbyggðum skemli
• Borðstofuborð og stólar
• Sófaborð
• Eldhúsborð
• Rúmgafl ar
Húsgagna
Lagersala
ALLTAF
BESTA
VERÐI
Ð
Opnunartími
Mán - Föstudagar 09 - 18
Laugardaga 11 - 16