Fréttablaðið - 27.12.2007, Qupperneq 36
28 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Efl ing-stéttarfélag vinnur fyrir þig
Nú lækka félagsgjöldin í frá og með 1. janúar 2008
UMRÆÐAN
Björgunarsveitarstarf
Enginn nema sá sem reynt hefur veit
hvernig er að fá kallið
þegar það kemur, útkall-
ið þegar „kafaldsbylur
hylur hæð og lægð“ og
slík hætta hefur skap-
ast að mannslíf eru í
húfi. Flestir Íslendingar
upplifa neyðarástand í
gegnum fréttirnar, en
þúsundir sjálfboðaliða
eru ávallt viðbúnir hve-
nær sem neyðarkallið berst. Það
getur verið rjúpnaskytta í villum,
jeppamenn í ófærum á hálendinu,
týnt barn í borginni eða flugslys á
fjöllum. Svo ekki sé talað um sjó-
slys og hamfarir eins og snjóflóð
sem falla í byggð.
Kostir fámennisins koma hér
hvað best í ljós; samhygðin er
algjör þegar náttúruhamfarir og
slys dynja yfir og samfélagið eitt.
En það er ekki sjálfgefið. Einn af
hornsteinum þessa mikla sam-
hugar er sjálfboðaliðastarf björg-
unarsveitanna. Það er einstakt á
Íslandi að björgunarfólk er sjálf-
boðaliðar sem reiðir sig einkum á
þrennt; velvilja vinnuveitenda
sinna, skilning fjölskyldunnar og
þjóðina sem bakhjarl.
Og svo auðvitað eigin
atgervi, þjálfun og
dug.
Það er alkunna að
hjálparsveitir skáta og
aðrar björgunarsveitir
fjármagna ekki síst
starfsemi sína með
flugeldasölu. Með því
að kaupa af okkur púðr-
ið fyrir gamlárskvöld
stuðlar þú ekki aðeins
að auknu öryggi okkar
allra heldur felst í því
virðingarvottur við
starf björgunarsveitar-
manna. Og um leið skaparðu með
börnunum litríkar minningar sem
ávallt lifa.
Við erum fljót að gleyma og því
langar mig að ljúka máli mínu
með því að vitna í Jón Kaldal, rit-
stjóra Fréttablaðsins, sem reit svo
í leiðara hinn 29. ágúst sl. eftir
mikla leit björgunarsveita að
tveimur mönnum á Svínafells-
jökli: „Í raun einkennast störf
íslenskra hjálpar- og björgunar-
sveita af slíkri samkennd með
náunga sínum og óeigingirni að
við hin, sem ekki tökum þátt í því,
getum ekki annað en fyllst lotn-
ingu og þakklæti. ... Drýgstur
hluti rekstrarfjár sveitanna
kemur frá flugeldasölu og ýmsum
happdrættum. Þar gefst okkur
öllum kostur að leggja hönd á
plóginn.“
Ég óska samborgurum mínum
árs og friðar um leið og ég þakka
þeim stuðninginn í gegnum árin
og minni á að áfengi og skoteldar
fara ekki saman.
Höfundur er í flugeldanefnd
Hjálparsveitar skáta í
Reykjavík.
Kafaldsbylur...
MAGNÚS INGI
MAGNÚSSON
UMRÆÐAN
Alþjóðamál
Þetta byrjaði sem venjulegt fimmtudagskvöld. Hitti
vinkonur mínar á Grillhúsinu
og ákváðum að fara í bíó.
Myndin sem varð fyrir valinu
var „Rendition“. Þessi mynd
fjallar um hvernig hægt er að
framselja fólk án þess að
þurfa að gera alla pappírsvinn-
una sem venjulega þarf til. Þetta er sem sagt
eitthvað sem Bandaríkjastjórnin á að hafa leyft
sér í það sem kallast „extreme circumstances“,
eða í öfgakenndum kringumstæðum. En eins og
margir vita breyttist margt eftir 11. september.
Í dag þarf aðeins minnsta grun um tengsl við
hryðjuverkasamtök til að viðkomandi sé tekinn
á höndum og fótum og læstur inni í dýflissu.
Bara það að vera skyldur einhverjum sem
þekkir einhvern sem er bróðir manns í hryðju-
verkasamtökum getur þýtt að viðkomandi
hverfi. Allt í einu getur þú verið kominn með
poka yfir höfuðið, í flugvél sem guð má vita
hvert er á leiðinni. Skyndilega ertu kominn í
eitthvert leynilegt fangelsi langt fyrir utan
Bandaríkin og enginn veit af. Það verra er að
þetta er enginn tilbúningur, þetta er raunveru-
leikinn.
Er þetta virkilega réttlætanlegt? Er þetta
besta leiðin til að vernda almúgann? Ríkisstjórn-
in reynir að réttlæta gjörðir sínar með því að
segja að með þessum yfirheyrslum geti hún
betur upprætt hryðjuverkahópa. Fyrir hvern
saklausan einstakling sem þeir setja í fangelsi,
grunaðan um tengsl við hryðjuverk, þá ala þeir
hatur í 10.000 mönnum. Það skrítna er samt að
þeir þykjast ekkert kannast við það. Þeir neita
algerlega að það gæti verið þeim að kenna.
Ríkisstjórnir heimsins eru eins og hestar með
blöðkur, sjá ekkert nema beint áfram. „Ég hef
alltaf rétt fyrir mér. Þetta er það sem ég sé og
því getur ekkert annað staðist.“ Ætli þessir
menn séu með það skrifað bakvið eyrað eins og
Mókollur? Þessir menn sem bandaríska ríkis-
stjórnin elur svo hatur í eru þeir menn sem eru
ginnkeyptir fyrir hatursfullum hefndaraðgerð-
um og er því auðvelt fyrir hryðjuverkahópa að
heilaþvo þá til að ganga í lið með sér.
Ég velti stundum fyrir mér hversu langt þetta
geti gengið. Get ég átti von á því að eftir 30 ár
muni lögreglan koma í hús mitt og taka fjögurra
ára gamalt barnabarn mitt, fyrir það eitt að hafa
talað við arabískan mann? „Frú, hann talaði við
mann sem er talinn vera frændi manns, sem
kannast við annan mann, sem er mágur manns,
sem heilsaði manni, sem á frænda sem afgreiddi
mann í hryðjuverkjahópi.“ Ef þið segið að það sé
ólíklegt þá segi ég á móti. Aldrei segja aldrei.
Raunin er sú að 11. september breytti öllu.
Allt er leyfilegt í nafni réttlætis. Ríkisstjórnin
hrópar „þjóðaröryggi“ svo að enginn geti
mótmælt þeim. Þeir fela sig á bak við hugtakið,
eins og bleyður. Hvað ætli það séu margir sem
eru í Guantanamo og öðrum fangelsum á snæri
Bandaríkjastjórnar sem raunverulega eru
tengdir hryðjuverkjahópum? Tíu þúsund, eitt
þúsund, hundrað eða bara tíu? Við höfum ekki
hugmynd því að þeir eru kannski með hundruð
þúsunda eða jafnvel milljón manns fangaða og
kannski 138 sem eru á sannanlegan hátt tengdir
alvarlegum hryðjuverkjahópum. Ég bið ykkur,
góða Íslendinga, á þessari árstíð friðar og
kærleiks að minnast allra þeirra fjölskyldna
sem vita ekki hvenær faðir þeirra, eiginmaður,
sonur, bróðir, frændi eða mágur kemur aftur
heim. Hugsum til þess hvað við erum heppin að
þurfa ekki að búa í þeirri óvissu að geta allt í
einu verið tekin fyrir það eitt hvernig við lítum
út. Hver veit? Kannski næst þegar ég fer til
útlanda verð ég tekin fyrir það eitt að vera dökk
á hörund, með dökkt hár, dökkbrún augu og
þekkja Palestínubúa. Þið vitið allavega hvar ég
er ef ég hverf.
Höfundur er áhugakona um
stjórnmál og alþjóðamál.
Í nafni þjóðaröryggis
AÐALHEIÐUR
DÖGG ÁRMANN
Það er einstakt á Íslandi að
björgunarfólk er sjálfboðaliðar
sem reiðir sig einkum á þrennt;
velvilja vinnuveitenda sinna,
skilning fjölskyldunnar og þjóð-
ina sem bakhjarl.