Fréttablaðið - 27.12.2007, Síða 47
FIMMTUDAGUR 27. desember 2007 39
Undanfarið hafa birst fréttir í erlendum
blöðum þar sem leiddar eru líkur að því
að söngkonan Jennifer Lopez beri tví-
bura undir belti. Ef rétt reynist bætist
hún í stóran hóp Hollywood-stjarna sem
hafa eignast tvíbura.
Aðþrengda eiginkonan Marcia Cross á tíu
mánaða gamlar tvíburadætur sem fengu nöfnin
Eden og Savannah. Faðir þeirra er eiginmaður
Marciu, Tom Mahoney. Þegar Marcia var
nýverið spurð að því hvernig móðurhlutverkið
hefði breytt henni svaraði hún: „Spurningin ætti
að vera, hvernig hefur það ekki breytt mér!“
Hinn kynþokkafulli Patrick Dempsey úr
Grey´s Anatomy á tæplega 11 mánaða gamla
tvíbura og fimm ára dóttur með eiginkonu sinni
Jill. Tvíburarnir eru strákar og heita Darby og
Sullivan. „Við förum heim til Maine yfir jólin og
vonandi fáum við snjó. Þetta verða fyrstu jólin
okkar með strákunum. Þeir verða líklega farnir
að labba þá svo við erum spennt,“ segir faðirinn.
Dennis Quaid og nýfæddir tvíburar hans,
Thomas Boone og Zoe Grace, komust í fréttirnar
nýlega af því að tvíburarnir voru hætt komnir
skömmu eftir fæðinguna. Þeir höfðu fyrir slysni
fengið of stóran skammt af blóðþynningarlyfj-
um og börðust fyrir lífi sínu í nokkra daga. Til
allrar hamingju batnaði þeim en Dennis og kona
hans, Kimberly, fengu staðgöngumóður til að
ganga með tvíburana.
Rapparinn Sean Diddy Combs eignaðist
tvíburadætur í desember á síðasta ári með
þáverandi kærustu sinni Kim Porter. Þær
fæddust með tveggja mínútna millibili og fengu
nöfnin Jessie James og D´Lila Star. Þau Diddy
og Kim skildu að skiptum nýverið eftir tíu ára
samband en hann hafði meðal annars eignast
barn með annarri konu meðan á sambandi þeirra
stóð.
George Bush Bandaríkjaforseti fellur kannski
ekki beint í hóp Hollywood-stjarna en tvíbura-
dætur hans, þær Barbara og Jenna, hafa svo
sannarlega fengið sinn skammt af sviðsljósinu.
Þær eru einkadætur forsetans og konu hans
Lauru, fæddar árið 1981. Stelpurnar eru
tvíeggja og þykja afar ólíkar. Jenna er sú
ljóshærða en Barbara er dökkhærð.
Ein frægasta leikkona heims, Julia
Roberts, eignaðist tvíburana Hazel og
Phinnaeus fyrir þremur árum. Hún á
einnig soninn Henry sem er fæddur í
júní síðastliðnum. Julia hefur sagt að
henni hætti til að ofvernda börnin sín.
„Ég hugsa alltaf: Guð, þau meiða sig!
En þau eiga eftir að meiða sig. Það er
nú málið. Maðurinn minn er að kenna
mér að leyfa þeim að meiða sig en
sýna þeim hvernig á að standa aftur
upp.“
Hinn 62 ára gamli ofurtöffari Al Pacino á
tveggja ára tvíbura með fyrrverandi
kærustu sinni, Beverly D´Angelo, sem er 48
ára. Um er að ræða strák og stelpu sem heita
Olivia og Anton. Al og Beverly skildu
nýverið og hafa síðan deilt um forræði
tvíburanna.
Söngparið Diana Krall og Elvis Costello
eignaðist tvíburasyni í desember í fyrra.
Þeir eru því nýorðnir ársgamlir.
Drengirnir heita Dexter Henry Lorcan og
Frank Harlan James. Svo skemmtilega vildi til
að tvíburarnir fæddust aðeins degi eftir
þriggja ára brúðkaupsafmæli hjónanna sem
giftu sig í London í desember árið 2003.
Stórsöngkonan Melissa Etheridge og
kærasta hennar Tammy eignuðust son og
dóttur í október í fyrra. Sonurinn fékk nafnið
Miller Steven og dóttirin Johnnie Rose.
Mæðurnar sendu frá sér yfirlýsingu eftir
fæðinguna sem sagði: „Sköpun nýs lífs færir
manni ómælda ást og fyllir framtíðina von.
Ánægjan mun fleyta okkur í gegnum komandi
svefnlausar nætur.“
Óskarsverðlaunahafinn Holly Hunter eignaðist
tvíbura með manni sínum Gordon MacDonald í
janúar á síðasta ári. Hún hefur alla tíð lagt mikla
áherslu á að halda þeim utan sviðsljóssins, svo
mikla að fjölmiðlar hafa ekki einu sinni fengið að
vita nöfn þeirra. Entertainment Weekly sagði þó
einhvern tímann frá því að um tvo drengi væri
að ræða.
Tvíburasprengja í Hollywood
■ Leikkonan Angela Bassett og leikarinn Courtney B. Vance úr Law &
Order: Criminal Intent.
■ Fyrrverandi ofurfyrirsætan Niki Taylor.
■ Fréttakonan Nancy Grace.
■ Skóhönnuðurinn Steve Madden (lét hafa eftir sér að hann vildi hafa
allt í pörum, líka börn).
■ Tónlistarmaðurinn Dave Matthews.
■ Emily Robinson úr Dixie Chicks.
■ Martie Maguire úr Dixie Chicks (systir Emily).
FLEIRI FRÆGIR TVÍBURAFORELDRAR