Fréttablaðið - 27.12.2007, Side 54
46 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GAMLA MYNDIN
„Þetta er íslenskur heimilis-
iðnaður eins og hann gerist
bestur,“ segir leikkonan Brynhild-
ur Guðjónsdóttir um samstarf sitt
og eiginmannsins, Atla Rafns Sig-
urðarsonar, en hann leikstýrir
henni í einleiknum Brák sem verð-
ur frumsýndur í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi þann 5. janúar.
Verkið er eftir Brynhildi sjálfa og
er frumraun hennar sem leik-
skálds. Umfjöllunarefnið er Þor-
gerður Brák úr Egilssögu.
„Þorgerður brák var ambátt
Skallagríms Kveldúlfssonar og
fóstra Egils. Hún fóstraði því eitt
frægasta skáld Íslendinga, mann-
inn sem við erum öll svo stolt af,
en um hana eru aðeins skrifaðar
ellefu línur í sögunni og hvergi er
minnst á hana í öðrum heimildum.
Ég lagði því af stað með eins rýrar
heimildir og hugsast getur, en það
var mikil áskorun að finna mann-
eskjuna á bak við þessar ellefu
línur,“ segir Brynhildur. Þetta er í
fyrsta skipti sem Atli leikstýrir
henni. „Við unnum saman áður en
við urðum par og höfum alltaf
getað dregið skýra línu á milli
vinnu og heimilislífs. Samstarfið
hefur verið bæði gjöfult og gott.“
Það voru þau Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir og Kjartan
Ragnarsson, stjórnendur Land-
námssetursins, sem fóru þess á
leit við Brynhildi að hún semdi
nýtt leikverk til sýninga á Sögu-
lofti setursins. Eins og alþjóð veit
hefur Benedikt Erlingsson sýnt
Mr. Skallagrímsson þar um tíma
við afar góðar undirtektir. „Ég er
búin að vera að skrifa síðan í
mars enda liggur mikil heimildar-
vinna að baki verkinu. Þetta var
heljarinnar verk og einveran ætl-
aði að drepa mig á köflum. Þessar
ellefu línur urðu að tveggja tíma
sýningu þar sem ég stend ein á
sviðinu allan tímann og segi frá,
syng og leik allt frá írskum prins-
essum til hamrammra víkinga.
Benni er búinn að setja flottan og
háan standard og markmiðið er
auðvitað að fara ekki neðar en
hann,“ segir Brynhildur og bætir
því við að hún hlakki til að „valta
yfir áramótaþynnkuna“ með
frumsýningunni. „Við ætlum að
rífa upp nýja árið í gleði og með
virðingu fyrir öllum þessum
konum sem fæddu og fóstruðu
kynslóðir Íslendinga en áttu
hvorki eigin rödd né komust
nokkurs staðar á blað.“ - sók
Brynhildur leikur Þorgerði Brák
FÓSTRA EGILS Brynhildur Guðjóns-
dóttir sem Þorgerður brák. Einleikur
Bryn hildar, Brák, verður frumsýndur í
Landnámssetrinu 5. janúar.
Íslensk fyrirtæki senda lands-
mönnum áramótakveðjur fyrir ell-
efu milljónir á undan og inni í Ára-
mótaskaupi RÚV. Sekúndan í
auglýsingahléinu á undan Skaup-
inu kostar tæpar þrettán þúsund
krónur og bætist við 15 prósenta
álag ofan á það verð fyrir þá aug-
lýsingu sem birtist síðust fyrir
frumsýningu spéspegils ársins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur Kaupþing þegar
tryggt sér það pláss en þar munu
fyrrverandi Spaugstofumaðurinn
Randver Þorláksson og Monty
Python-kóngurinn John Cleese
fara á kostum fyrir hönd bankans.
Að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar, markaðstjóra RÚV ohf., hefur
þetta eftirsóttasta auglýsingahlé í
íslensku sjónvarpi verið milli átta
og tíu mínútur en ef áhorfið verður
eitthvað í líkingu við síðustu ár má
reikna með að yfir 95 prósent
þjóðar innar sitji við skjáinn á þess-
um tíma. Erfitt getur hins vegar
reynst fyrir auglýsendur að ná sér
í síðasta slottið en eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst er það
pláss pantað með margra mánaða
fyrirvara.
Umdeildasta plássið er þó án
nokkurs vafa auglýsingin í miðju
Skaupinu en eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum hefur fast-
eignasölurisinn
REMAX tryggt sér
þetta þriggja
milljóna króna
auglýsingahlé
sem stendur
yfir í eina mín-
útu. „Ég vil
ekkert tjá mig
um þetta,“ segir Gunnar Sverrir
Harðarson, sem sér um markaðs-
mál hjá REMAX. Hann vildi ekki
staðfesta að REMAX hefði keypt
auglýsingahléið og sagðist
eingöngu hafa heyrt af
umræðunni í fjölmiðlum.
Þeir hjá REMAX hefðu
ekki orðið varir við nein
neikvæð viðbrögð við
meintum auglýsinga-
kaupum þeirra.
- fgg
Áramótakveðjur fyrir ellefu milljónir
UPPRISA RANDVERS Randver var rekin
úr Spaugstofunni en rís aftur upp í
auglýsingu með Cleese. CLEESE MÆTIR
AFTUR John Cleese
verður að öllum
líkindum síðasti
maður fyrir Skaup.
Silja Hauksdóttir og Ilmur Kristj-
ánsdóttur sitja nú ásamt handrits-
mógúlnum Sigurjóni Kjartanssyni
sveitt við skriftir fyrir nýja gam-
anþáttaröð með dramatísku
spennu-ívafi sem sýnd verður á
Stöð 2 á næsta ári. Silja og Ilmur
hafa verið hluti af Stelpunum í síð-
ustu þáttaröð sem nú er sýnd á
Stöð 2 en að sögn leikstjórans
verður nýja þáttaröðin eiginlega
ekkert í líkingu við þá þætti að því
leyti að um er að ræða framhalds-
þætti. „Nei, þættirnir fjalla um
unga konu sem hyggst brjótast
upp metorðastigann í fjármála-
geiranum með fjörugt ímyndunar-
afl að vopni,“ segir Silja þegar
Fréttablaðið náði tali af henni
en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur þætt-
inum verið gefið vinnu-
heitið Silgja.
Silja gat ekki tjáð sig um
hverjir yrðu við hlið Ilmar
á skjánum enda væri
verið að klára öll forms-
atriði. Aðrar persónur og
leikendur væru enn í
mótun
Og það er því ljóst að
verið er að bregðast við því
mikla æði sem reið yfir þjóð-
ina í kjölfar sýninga á Nætur-
vaktinni. Þáttaröðin er vinsæl-
asti sjónvarpsþáttur Stöðvar 2
frá upphafi og fékk tvenn Eddu-
verðlaun. Silja segir þetta ein-
faldlega vera mikið gleðiefni.
„Mér finnst bara frábært að þetta
er það sem þjóðin vill sjá. Og
áhorfendur heima í stofu eru farn-
ir að biðja um íslenskt sjónvarps-
efni í miklu meiri mæli og ekki
síst gamanefni,“ segir leikstjór-
inn.
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, gat ekki sagt fyrir
um hver yrðu örlög Stelpnanna nú
þegar Silja og Ilmur væru horfnar
til annarra verkefna á vegum
Stöðvar 2. „Það hafa engar ákvarð-
anir verið teknar um þær,“ segir
Pálmi sem reiknaði með því að nýi
sjónvarpsþátturinn yrði á dagskrá
næsta vetur. Stelpurnar hafa verið
á dagskrá stöðvarinnar í fjölmörg
ár og notið mikilla vinsælda en
töluverðar breytingar hafa átt sér
stað á upphaflegum leikhópi. - fgg
SILJA HAUKSDÓTTIR: LEIKSTÝRIR NÝRRI GAMANÞÁTTARÖÐ
Ilmur Kristjáns á uppleið
í fjármálageiranum
LÁRÉTT 2. stöngulendi 6. skammstöf-
un 8. herma 9. segi upp 11. grískur
bókstafur 12. algjörlega 14. mæliein-
ing 16. drykkur 17. tré 18. umhyggja
20. fyrir hönd 21. vangi.
LÓÐRÉTT 1. ávöxtur 3. guð 4. mikill
ávinningur 5. mánuður 7. Forn-Grikki
10. þyrping 13. skammstöfun 15.
innyfla 16. höld 19. ónefndur.
LAUSN
„Ég var í Háskólanum þarna
og sennilega á fullu í Vöku. Ég
er í peysu sem Vala gaf mér
skömmu eftir að við byrjuðum
saman og með skökk gleraugu
sem dugðu lengi. Það vekur líka
athygli hvað þetta er alvörugef-
inn ungur maður!“
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi.
Myndin er tekin í febrúar 1995.
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
STÓR HUMAR HÖRPUSKEL
PILLAÐUR HUMAR RÆKJUR
TÚNFISKUR OG HUMARSÚPA.
opið
27. og 28. des 10-18:15
laugardag 11-16
sunnudag 12-16
Gamlársdag 09-13
ÞRÍEYKIÐ
Þær Silja Hauksdóttir
og Ilmur Kristjánsdóttir
eru ásamt Sigurjóni
Kjartanssyni að
skrifa handrit að
nýrri gamanþátta-
röð sem fjallar
um unga
konu á upp-
leið í
fjármálageiranum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
LÁRÉTT: 2. brum, 6. eh, 8. apa, 9.
rek, 11. pí, 12. alveg, 14. lítri, 16. te,
17. við, 18. önn, 20. pr, 21. kinn.
LÓÐRÉTT: 1. pera, 3. ra, 4. uppgrip,
5. maí, 7. helleni, 10. kví, 13. etv, 15.
iðra, 16. tök, 19. nn.
Ófáir nýttu sér opnunartíma mat-
vöruverslanna á aðfangadag. Meðal
þeirra var Jónsi, söngvari Sigur
Rósar, sem gerði síðustu innkaupin í
Hagkaupum í Kringlunni þegar stutt
var klukknahringinguna. En á meðan
aðrir fylltu kerrur sínar af síðustu
kjötvörunum tók söngvarinn upp úr
körfu sinni hverja grænmetistegund-
ina af fætur annarri sem voru svo
framandi að jafnvel afgreiðslufólkið
vissi ekki að svona matvörur væru
seldar í búðinni sinni og þurfti að
leita ráða hjá Jónsa til að vita
hvað væri nú þarna á
ferðinni.
Og meira af söngvurum því loksins,
loksins, gætu einhverjir hugsað því
nú hefur verið tilkynnnt um
útgáfutónleika Jóhönnu
Guðrúnar. En þeir fara
fram á skemmtistaðnum
Rúbín í kvöld. Mikið
hefur verið spáð og
spekúlerað um plötu
Jóhönnu Guðrúnar en
eftir fimm ára vinnu
í Bandaríkjunum er
platan tilbúin. Með Yohonna, eins og
hún heitir á ensku, á sviðinu verður
tuttugu manna hljómsveit, þar á
meðal nokkrir liðsmenn úr Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Og loks smá fréttir af tenórnum
Garðari Thor Cortes en enginn
nýliði í sígildri tónlist seldi jafnvel
og Garðar í Bretlandi á árinu sem
er að líða. 2007 hefur verið ævintýri
líkast hjá söngvaranum en hann
söng meðal annars fyrir Camillu
Parker Bowles og Karl Bretaprins
auk þess að hefja upp raust sína fyrir
Tony Blair. Ef marka má
orð Einars Bárðarsonar í
fréttatilkynningu eru þeir
félagar bjartsýnir á að
hann hljóti tilnefn-
ingu til bresku tón-
listarverðlaunanna í
sígildum flokki. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Um 1,8 prósent.
2. Nicole Kidman.
3. H&M.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki