Fréttablaðið - 14.01.2008, Side 6
6 14. janúar 2008 MÁNUDAGUR
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
LOSTI, VARÚÐ FRUMSÝND 11. JANÚAR Í REGNBOGANUM
,,Kynlífssenurnar eru MJÖG djarfar. Ekki
svæsnar á klámfenginn hátt (a.m.k. ekki sam-
kvæmt mínum skilningi), en ansi nálægt því.”
- James Berardinelli, Reel Views.
,,Lee er sannur meistari og þessi sterka
erótíska og spennandi mynd hneppir þig
í álög sem þú vilt ekki losna undan.”
- Peter Travers, Rolling Stone.
Frá Óskarsverðlaunahafanum Ang Lee
leikstjóra ‘Brokeback Mountain’ og ‘Crouching Tiger, Hidden Dragon’
Íkveikja við Háskóla Íslands
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað að Háskóla Íslands um
klukkan átta á laugardagskvöldið
þar sem eldur var í ruslatunnu. Þótti
stafa nokkur hætta af eldinum vegna
opinna nálægra glugga en fljótlega
gekk að slökkva eldinn.
DÓMSMÁL Tveir menn, báðir innan
við tvítugt, hafa verið ákærðir
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir líkamsárás og eignaspjöll.
Þeir réðust á mann á sextugsaldri
á skemmtistað í Hafnarstræti í
júní í fyrra og kýldu hann.
Síðan létu þeir spörk dynja á
leigubíl þannig að hann beyglað-
ist.
Þá hefur maður á þrítugsaldri
verið ákærður fyrir héraðsdómi
fyrir að hafa ráðist á mann á
veitingastað á Laugavegi og kýlt
hann ítrekað í andlit. Fórnar-
lambið slasaðist talsvert. - jss
Þrír menn ákærðir:
Líkamsárásir
og eignaspjöll
FÉLAGSMÁL Freyja Haraldsdóttir
hlaut nýlega Rósarverðlaunin en
þau veita fjölskylda Ástu B.
Þorsteinsdóttur í samvinnu við
Landssamtökin Þroskahjálp.
Eru verðlaunin veitt árlega
einstaklingi, félagasamtökum eða
stofnunum fyrir framúrskarandi
störf sem stuðla að jafnrétti og
þátttöku fatlaðs fólks í samfélag-
inu.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Þroskahjálpar,
segir Freyju hafa, þrátt fyrir
ungan aldur, verið ötulan boðbera
viðhorfa og hugmyndafræði sem
er mjög í anda Rósarinnar. - ovd
Freyja fær Rósarverðlaunin:
Ötull boðberi
FRÁ AFHENDINGU RÓSARINNAR Sam-
hljómur með draumum Freyju.
STOKKHÓLMUR, AP Tenórinn Tito
Beltran frá Chile gæti átt yfir
höfði sér tveggja ára fangelsi
verði hann fundinn sekur um að
hafa nauðgán átján ára sænskri
stúlku.
Beltran, sem býr í Svíþjóð, var
handtekinn í byrjun desember. Var
hann ákærður fyrir að hafa
nauðgað barnfóstru sem leikkonan
Maria Lundqvist hafði ráðið. Hið
meinta atvik átti sér stað árið
1999. Réttarhöld hófust á föstudag
og hafa þau vakið mikla athygli
enda hafa verið kölluð fyrir sem
vitni Carola Häggkvist, sem vann
Eurovision-keppnina 1991, og
píanóleikarinn Robert Wells. -fb
Réttað yfir tenórnum Tito:
Tveggja ára
fangelsi líklegt
Fjórir sluppu í útafakstri
Bifreið skemmdist mikið þegar
henni var ekið út af við Galtarholt á
Vesturlandsvegi rétt fyrir tólf á hádegi
á laugardag. Er talið að rekja megi
slysið til mikillar ísingar. Fjórir voru í
bílnum en engin slys urðu á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Breytingar hafa verið gerðar á námstil-
högun á þriðju önn í Lögregluskóla ríkisins. Nú
verður lögð enn meiri áhersla á þjálfun hvers konar,
hvort sem um er að ræða líkamsþjálfun, þjálfun í
lögreglutökum, verkefnavinnu varðandi tiltekin
viðfangsefni eða verklegar æfingar. Rúmlega
helmingur námstímans fer á einn eða annan hátt í
þessa þætti.
Í janúarbyrjun 2008 hófu 45 nemendur nám á
þriðju önn grunnnáms Lögregluskólanum. Þeir höfðu
þá lokið átta mánaða starfsþjálfun sem flestir þeirra
stunduðu hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu.
Með breytingunni á námstilhöguninni nú er stjórn
Lögregluskólans að bregðast við ábendingum frá
fyrri nemendum skólans sem komið hafa fram í
viðhorfskönnunum sem hafa verið lagðar fyrir þá.
Umræddir 45 nemendur sem eru að hefja þriðju
annar nám í Lögregluskólanum nú brautskrást 18.
apríl næstkomandi. Að önninni lokinni geta þeir sótt
um störf lögreglumanna sem þá verða laus til
umsóknar. - jss
Breytingar á námstilhögun í Lögregluskóla ríkisins:
Meiri áhersla lögð á þjálfun
SKIPULAG Hjónin Árni Njálsson og
Kristín Helgadóttir hafa beðið
tæpa þrjá mánuði eftir svari frá
Reykjavíkurborg um lokun
göngustíga í Fossvogi.
Árni og Kristín vöktu í haust
athygli á því að borgin hefði leyft
að lokað yrði fyrir göngustíga
sem liggja inn og út úr botnlöng-
um við einbýlishúsin í Fossvogi.
Telja þau þetta ekki geta staðist,
meðal annars vegna upphaflegra
kvaða sem verið hafi á lóðunum í
upphafi. Segja þau lokun stíganna
þýða verulega skerðingu á flæði
gangandi fólks í hverfinu.
Embætti skipulagsfulltrúa vís-
aði erindi Árna og Kristínar til
umsagnar hjá framkvæmdasviði
borgarinnar í október.
„Við höfum hringt reglulega til
að spyrjast fyrir um framgang
málsins en það virðist fast hjá
framkvæmdasviðinu,“ segir
Kristín, sem kveðst nú hafa í tvo
mánuði árangurlaust reynt að ná
tali af Svandísi Svavarsdóttur,
nýjum formanni skipulagsráðs.
„Það er kannski enginn Lauga-
vegur hér en fyrir okkur sem
búum í Fossvogi er mikilvægt að
fá á hreint hvort það eigi virki-
lega að leyfa að loka hér fyrir
allar þessar gönguleiðir,“ segir
Kristín.
Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri
hjá framkvæmdasviði, segir að
umsögn um málið verði unnin á
næstunni. - gar
Hjónin sem berjast fyrir áframhaldandi opnu göngustígakerfi í Fossvogi:
Borgin dregur svör um stíga
KRISTÍN HELGADÓTTIR Íbúi berst gegn
lokun göngustíga svo að áfram verði
hægt að komast leiðar sinnar í Fossvogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
LÖGREGLUSKÓLINN
Nemendur í Lög-
regluskóla ríkisins
með táragasgrímur.
MYND/LÖGREGLUSKÓLINN
Ók út af í Berufirði
Bíll ók út af vegi í Berufirði aðfaranótt
sunnudags. Lögreglan á Djúpavogi
brást við kalli um aðstoð frá öku-
manni bílsins, sem var einn á ferð,
um tvöleytið. Engin slys urðu á fólki
en bíllinn er töluvert skemmdur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er fyrst og
fremst söluvara, líffræðilegar upp-
lýsingar sem settar eru á markaðs-
torgið í þeirri von á almenningur
láti glepjast,“ segir Jóhann Ágúst
Sigurðsson, prófessor í heimilis-
lækningum, í viðtali við Lækna-
blaðið um erfðakortin sem seld eru
hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE).
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
minnir á að fyrir rúmum mánuði
hafi hann svarað blaðagrein þar
sem sömu skoðanir Jóhanns hafi
komið fram. „Það sem mér finnst
merkilegt í ljósi þess sem á undan
er gengið að Læknablaðið, sem á
að vera fagtímarit, ræðir ekki við
mig heldur bara Jóhann. Þetta
hljómar ekki eins og áhugi á upp-
lýstri umræðu,“ segir Kári.
Sala á erfðakortum hjá ÍE hófst
16. nóvember undir heitinu
deCODEme. Boðin er greining á
uppruna einstaklinga og
skoðun á erfðamengi
þeirra með tilliti til erfða-
þátta sem vitað sé að auki
eða minnki líkur á algeng-
um sjúkdómum.
Jóhann Ágúst segir í
Læknablaðinu að álita-
mál sé hvort fólk sé betur
sett með slíkar upplýs-
ingar sem leitt gætu til
þess að það hefði áhyggj-
ur af alvarlegum sjúk-
dómum að óþörfu.
„Ýmsar rannsóknir
benda til þess að alvar-
leg áföll, áhyggjur og
kvíði hjá mæðrum barna
með viðkvæmt erfða-
mengi geti haft áhrif á ónæmis kerfi
barnanna og aukið líkur á sykur-
sýki af tegund 1 hjá þeim,“ segir
Jóhann við Læknablaðið.
Kári segir viðhorf Jóhanns til
upplýsingar minna á miðaldir. Fólk
eigi að afla sér upplýsinga og vaxa
af þeim, Jóhann sé mjög harður
talsmaður þess að
ekki eigi að stunda
fyrirbyggjandi
læknisfræði og
hafi til dæmis
dregið í efa ágæti
þess að mæla kól-
esteról vegna þess
að slíkt myndi bara
vekja ótta hjá fólki
og auka amstur hjá
læknum.
„Fyrirbyggjandi
læknisfræði hefur
líklega haft meiri
áhrif á heilsufar í
okkar samfélagi
heldur en inngrips-
læknisfræðin sem Jóhann er að
predika. Til dæmis með bólusetn-
ingum,“ segir Kári.
Að því er Jóhann segir telur
hann erfðakortunum ætlað að bæta
stöðu ÍE. „Þetta er – eins langt og
ég get metið það – eitt af útspilun-
um til að hækka verðgildi hluta-
bréfanna og halda lífi í fyrirtæk-
inu,“ hefur Læknablaðið eftir
prófessornum.
Kári segir þetta vera léttvægan
málflutning hjá Jóhanni. Stað-
reynd sé að greitt sé fyrir læknis-
þjónustu: „Ég veit ekki betur en
Jóhann Ágúst Sigurðsson hafi bara
þokkalega góð laun af því að selja
þjónustu sína til fólks sem er
lasið.“ gar@frettabladid.is
Forstjóri ÍE undrast
ádeilu í Læknablaði
Prófessor í læknisfræði telur erfðakortasölu Íslenskrar erfðagreiningar geta
haft áhrif á ónæmiskerfi barna vegna kvíða mæðranna. Forstjóri ÍE undrast að
Læknablaðið skuli leyfa prófessornum einhliða málflutning í fagtímariti.
ÍSLENSK ERFÐAGREINING Hefur boðið einstaklingum að kortleggja erfðamengi
þeirra fyrir um sextíu þúsund krónur.
JÓHANN ÁGÚST
SIGURÐSSON
KÁRI STEFÁNSSON
LÆKNABLAÐIÐ Fyrsta hefti
Læknablaðsins 2008 er
komið út.
Telur þú að stjórnvöld þurfi
að breyta vinnulagi við skipan
dómara?
Já 84,8%
Nei 15,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ná strákarnir okkar verðlauna-
sæti á Evrópumótinu í hand-
bolta?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN