Fréttablaðið - 14.01.2008, Page 48

Fréttablaðið - 14.01.2008, Page 48
24 14. janúar 2008 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir á alla heimaleiki liðsins í vetur. Fjölmargir leikir framundan, s.s. á móti Chelsea, Blackburn og Portsmouth. 8.–10. FEBRÚAR 2008 W W W. I C E L A N DA I R . I S 49.300 KR. Verð á mann í tvíbýli frá + Nánari upplýsingar: www.icelandair.is/ithrottaferdir ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 4 06 17 1/ 08 3 DAGAR Í EM Í HANDBOLTA Landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson er óðum að kom- ast í sitt gamla form eftir að hafa jafnað sig á lærmeiðsl- um sem hann lenti í fyrr í vetur og hefur verið sjóðandi heitur á Posten-Cup með B-landsliði Íslands. Einar byrjaði mótið með því að skora sjö mörk í naumu tapi gegn Ung- verjalandi á föstudag og skoraði svo sex mörk í sigri gegn Portúgal á laugardag. „Ég er mjög sáttur með þátttöku mína í mótinu og það er mjög mikilvægt fyrir mig að fá að spila heila leiki bæði vörn og sókn. Það er mjög gaman að spila með þessum strákum og þarna eru margir leikmenn sem eiga eftir að spila með A-landsliðinu í framtíðinni, það er engin spurning. Það mættu bara vera fleiri verkefni fyrir þessa ungu og efnilegu leikmenn til þess að þeir öðlist mikilvæga reynslu gegn öflugum andstæðingum,“ sagði Einar, sem varð fyrir örlitlu hnjaski í fyrsta leik mótsins sem ágerðist svo í öðrum leiknum og því tók hann ekki þátt í leiknum gegn Noregi í gærkvöldi. „Ég fékk smá högg á lærið í leiknum gegn Ungverjalandi og stífnaði svo aðeins upp á móti Portúgal, einmitt á því svæði sem ég meiddist í fyrr í vetur, þannig að við ákváðum að best væri að taka enga áhættu með þetta gegn Noregi. Ég hefði örugglega getað spilað en eins og ég segi þá var betra að hvíla upp á framhaldið,“ sagði Einar, sem vonar að landsliðið verði ekki fyrir neinum afföllum í lokaundirbúningi sínum fyrir alvöruna í Noregi. „Það er náttúrlega mjög mikilvægt að við komumst í gegnum þessa síðustu æfingaleiki án þess að verða fyrir frekari meiðslum og það er vonandi að Sverre og Alexander nái sér á strik og verði leikhæfir á Evr- ópumótinu. Þetta leit á tímabili mjög vel út hvað varðar leikform manna, en kannski fögnuðum við því of snemma,“ sagði Einar, sem er þó bjartsýnn fyrir mótið. „Ég er viss um að þetta verður flott mót hjá liðinu,“ sagði Einar bjartsýnn. EINAR HÓLMGEIRSSON: ÁNÆGÐUR MEÐ ÞÁTTTÖKU SÍNA Í POSTEN-CUP ÞRÁTT FYRIR ÖRLÍTIÐ BAKSLAG MEÐ MEIÐSLI Tókum ekki áhættuna á því að ég spilaði meira > Allir í Höllina Síðasti landsleikur íslenska handboltalandsliðsins fyrir EM í Noregi fer fram í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 19.30 þegar Ísland og Tékkland mætast öðru sinni. Fólk er hvatt til þess að fjölmenna í Höllina og senda strákana til Noregs með mikinn stuðning á bakinu. Stemningin í Höllinni í gær var fín en það er alltaf hægt að gera betur. Fyrsti leikur Íslands á EM er á fimmtudag gegn Svíum. HANDBOLTI „Ég var ótrúlega óánægður með fyrri hálfleikinn því við gerðum ekkert af því sem talað var um að gera. Hálfleikur- inn minnti hreinlega á Úkraínu- leikinn á HM. Ég held að menn hafi verið yfirspenntir og þetta var mjög klaufalegt allt saman. Ég hrósa þó markvörðunum fyrir þeirra hlut í fyrri hálfleik,“ sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari sem var ekki mjög kátur. „Síðari hálfleikur var mun betri fyrir utan markvörsluna sem datt alveg niður. Tuttugu mínútur af hálfleiknum voru mjög góðar en við hleypum Tékk- um inn eins og við gerum svo oft. Það var talsvert agaleysi í leikn- um á kafla en margt jákvætt líka. Ég var mjög ánægður með Vigni, sem ég hafði gagnrýnt mikið fyrir afspyrnuslakan varnarleik í Danmörku. Hann var mikið mun betri núna á öllum sviðum. Ásgeir stóð sig líka vel og Bjarni átti frábæra innkomu. Logi var sterkur og kraftmikill. Við verðum samt að læra fljótt af þessum leik því ef við leikum hálfleik í Noregi eins og fyrri hálfleik hér þá verður okkur pakkað saman,“ sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari, sem ætlar að spila talsvert annan varnarleik í kvöld. - hbg Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari var ekki par sáttur við leik sinna manna í gær: Verðum að læra af þessum leik ALFREÐ GÍSLASON Sagði fyrri hálf- leik í gær minna á Úkraínuleikinn á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Ísland vann Tékkland með tveggja marka mun, 32-30, í næstsíðasta leik liðsins fyrir EM. Það var enginn glæsibragur á leik íslenska liðsins, sem var í bullandi vandræðum með frekar slaka Tékka. Það verður að segjast eins og er að fyrri hálfleikur var átakanlega lélegur hjá íslenska liðinu og ef ekki hefði verið fyrir fína mark- vörslu þeirra Eradze og Hreiðars hefðu Tékkar líklega leitt með mörgum mörkum í hléinu. Sóknarleikurinn var kraftlaus, tilviljanakenndur og hægur. Leik- menn skutu mjög illa og til marks um það fór aðeins eitt af fyrstu tíu skotum íslenska liðsins í markið. Tékkarnir voru ekki mikið betri og handboltinn sem boðið var upp á var einfaldlega hund lélegur. Hálfleikstölur 10-11 fyrir Tékka. Síðari hálfleikur var talsvert betri á flestum sviðum. Ísland fór loks að ná hraðaupphlaupum og sóknarleikurinn var mun mark- vissari. Varnarleikurinn var mjög kaflaskiptur og leikmenn voru oft á tíðum mjög lengi til baka. Svo munaði mikið um að markvarslan var nákvæmlega engin í síðari hálfleik og enn einu sinni gengur íslensku markvörðunum illa að verja í síðari hálfleik. Ef það hefði verið einhver markvarsla í síðari hálfleik hefði Ísland rúllað þess- um leik upp. Ísland náði mest fjögurra marka forskoti í síðari hálfleik en líkt og venjulega hleyptu þeir andstæð- ingnum inn í leikinn á ný. Það var þó jákvætt að liðið skyldi klára dæmið og vinna leikinn. Jaliesky Garcia Padron náði sér engan veginn á strik og sömu sögu má segja um Alexander sem vant- ar tilfinnanlega leikæfingu. Það var aftur á móti mjög gaman að fylgjast með þeim Vigni Svavars- syni, Bjarna Fritzsyni og Ásgeiri Erni sem komu allir mjög vel út úr leiknum. Logi Geirsson hélt líka áfram að sýna að hann er svo sann- arlega á réttu róli. Strákarnir gera vonandi betur á morgun enda býr mun meira í liðinu en það sýndi í gær. henry@frettabladid.is Sigur á slökum Tékkum Íslenska landsliðið var ekki sannfærandi er það mætti slökum Tékkum í Höll- inni í gær. Þó að svo tveggja marka sigur hafi unnist, 32-30, er enn margt sem þarf að laga. Nokkrir ljósir punktar voru samt hjá íslenska liðinu. LOGI HEITUR Logi Geirsson hefur spilað mjög vel fyrir íslenska liðið í síðustu leikjum. Hann hélt uppteknum hætti í gær og skoraði til að mynda markið sem tryggði Íslandi sigur að lokum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÍSLAND-TÉKKLAND 32-30 Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefáns- son 6/2 (12/2), Logi Geirsson 5 (9), Guðjón Valur Sigurðsson 5/2 (8/2), Vignir Svavarsson 4 (5), Bjarni Fritz- son 4 (4), Snorri Steinn Guðjónsson 3 (6/1), Róbert Gunnarsson 2 (4), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 (3), Alex- ander Petersson 1 (5). Varin skot: Roland Eradze 10 (18/1) 55%, Hreiðar Guðmu. 5 (27/2) 18%. Hraðaupphlaup: 10 (Vignir 4, Guð- jón 2, Róbert 2, Bjarni, Ólafur). Fiskuð víti: 5 (Róbert 3, Alexander, Bjarni). Utan vallar: 4 mínútur. HANDBOLTI Þeir Alexander Petersson og Sverre Jakobsson spiluðu báðir með liðinu í gær en þeir hafa nánast ekkert æft alla vikuna. Sverre spilaði 18 mínútur og sagðist líða vel eftir leikinn. Hann væri allur að koma til og því bjartsýnn á framhaldið. Alexander sagði að ökklinn væri mun betri þó svo að hann fyndi fyrir meiðslunum eftir leikinn. Hann sagði þó hvíldina hafa gert sér gott og óttaðist ekki að meiðslin myndu plaga hann of mikið á EM þó svo hann taldi sig vanta meiri leikæfingu. - hbg Alexander og Sverre: Á góðum batavegi HANDBOLTI Það voru mörg slæm tíðindi af íslenska landsliðshópn- um í gær. Arnór Atlason lék ekki með gegn Tékkum en í ljós hefur komið að hann er meiddur á liðþófa og með trosnuð liðbönd. Hann þarf því líklega að fara í aðgerð sem fyrst og Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari sagði að líklegast yrði hann ekki með á EM. Ólafur Stefánsson og Roland Valur Eradze meiddust svo báðir í leiknum í gær. Ólafur meiddist á fingri en Roland tognaði líklega illa á hálsi og sagði Alfreð að útlitið með hann væri ekki gott. Fari svo að hann komist ekki með á EM ætlar Alfreð að ákveða í kvöld hvort hann taki tvo markverði með til Noregs eða bæti Björgvini Gústavssyni við hópinn. Einar Hólmgeirsson meiddist svo á læri gegn Ungverjum og varð fyrir vikið að hvíla með B- liðinu í gær en hann ætti að jafna sig fljótt. - hbg Meiðsli í landsliðinu: Vandræðin hrannast upp MEIDDUR Ólafur Stefánsson meiddist á fingri í gær en nær sér vonandi fljótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.