Fréttablaðið - 16.01.2008, Page 42
34 16. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
Sendu sms BTC CLF
á númerið 1900og þú gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir, varningur tengdur myndinni og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Kemur í verslanir 17. janúar!
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
12 - 24V “booster”
Frábært verð.
Start- og
hleðslutæki
Auglýsingasími
– Mest lesið
Enski FA-bikarinn:
Liverpool-Luton 5-0
1-0 Ryan Babel (45.), 2-0 Steven Gerrard (52.),
3-0 Sami Hyypia (57.), 4-0 Steven Gerrard (64.),
5-0 Steven Gerrard (72.).
Liverpool mætir utandeildarliðinu Havant &
Waterlooville FC eða Walsall FC í 4. umferð.
Reading-Tottenham 0-1
0-1 Robbie Keane (15.). Ívar Ingimarsson var í
byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnars-
son var ekki í leikmannahópi liðsins. Tottenham
mætir Manchester United í 4. umferð.
Millwall-Walsall 2-1
Bury-Norwich 2-1
Spænski konungsbikarinn:
Barcelona-Sevilla 0-0
Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði
Barcelona en var skipt af velli á 56. mínútu.
Barcelona komst áfram í 8-liða úrslit á mörkum
skoruðum á útivelli.
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI Það hafa verið tals-
verð meiðsli og veikindi í herbúð-
um íslenska landsliðsins síðustu
daga en flestir leikmenn eru að
skríða saman nú þegar aðeins
einn dagur er í að EM byrji.
Allir leikmenn liðsins fyrir
utan Bjarna Fritzson og Jaliesky
Garcia Padron tóku þátt í léttri
æfingu liðsins í gær en þeir
Bjarni og Garcia létu sér nægja
að skokka örlítið.
Bjarni hefur verið að glíma við
erfið meiðsl í maga og svo var
hann þess utan að meiðast á læri.
Garcia á að vera orðinn heill
heilsu og klár í slaginn.
Þeir Logi Geirsson og Einar
Hólmgeirsson sem hvíldu í seinni
leiknum gegn Tékkum tóku þátt í
æfingunni í gær og verða tilbúnir
í slaginn gegn Svíum. Sömu sögu
er að segja af Alexander Peters-
son sem er allur að koma til.
Alfreð talaði um að hann myndi
kannski hvíla Sverre Jakobsson
gegn Svíum en Sverre sagðist í
gær sjálfur vera til í að spila og
vonaðist eftir því að fá að taka
þátt í leiknum enda væri erfitt að
sitja utan vallar og horfa á. - hbg
Meiddir leikmenn landsliðsins að skríða saman einum degi fyrir EM í Noregi:
Batnandi heilsufar landsliðsins
KÖNGULÓARHLAUP Einar Hólmgeirs-
son, Sverre Jakobsson, Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Hannes Jón Jónsson
á fyrstu æfingunni í Þrándheimi í
gær. FRÉTTABLAÐÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í byrjunarliði Barcelona í
markalausu jafntefli gegn Sevilla
í seinni leik liðanna í 16 liða
úrslitunum spænsku bikarkeppn-
innar.
Þessi úrslit nægðu Barcelona
til þess að komast áfram á fleiri
mörkum skoruðum á útivelli en
liðin gerðu 1-1 jafntefli í Sevilla.
Markið hans Thierry Henry í
fyrri leiknum sá því til þess að
Börsungar slógu bikarmeistara
síðasta árs úr leik.
Eiði Smára var skipt útaf á 55.
mínútu fyrir Bojan Krkic en
Eiður Smári byrjaði fyrir aftan
þá Thierry Henry og Giovani Dos
Santos og átti eitt gott skot í fyrri
hálfleik sem var varið. - óój
Eiður Smári hjá Barcelona:
Lék fyrstu 55
mínúturnar
TVEIR LEIKIR Í RÖÐ Eiður Smári var í
byrjunarliðinu hjá Barcelona í gær líkt
og um helgina. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Knattspyrnufélagið ÍA
verður í brennidepli á heimasíðu
knattspyrnusambands Evrópu,
UEFA, í kvöld þegar fyrst verður
hægt að nálgast stutta heimildar-
mynd um öflugt unglingastarf ÍA.
Í myndinni er vakin athygli á
fjölda þeirra leikmanna sem hafa
farið út í atvinnumennsku eftir að
hafa alist upp í herbúðum félags-
ins. Heimildarmyndin er hluti af
þáttaröð sem ber nafnið Training
Ground eða æfingarvöllur og er
liður í herferð UEFA til þess að
styrkja grasrótarhreyfingu knatt-
spyrnunnar um allan heim. Þórður
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
ÍA, er einn af þeim fjölmörgu leik-
mönnum sem fóru út í atvinnu-
mennsku eftir að hafa alist upp á
Akranesi og segir þáttinn góða
viðurkenningu fyrir félagið.
„Myndatökumenn á vegum
UEFA voru að taka upp úrslita-
keppni U-19 ára landsliða kvenna
á Akranesi síðasta sumar þegar
þeir byrjuðu að grennslast fyrir
um ÍA og urðu heillaðir af sögu
félagsins. Þeim fannst merkilegt
að svona lítið bæjarfélag gæti
framleitt þvílíkt magn af góðum
knattspyrnumönnum og þessi
umfjöllun er mjög skemmtileg
fyrir okkur og góð viðkenning
fyrir félagið,“ sagði Þórður í sam-
tali við Fréttablaðið í gær.
Grétar Rafn Steinsson er nýjasti
fyrrverandi leikmaður ÍA til þess
að komast á fyrirsagnirnar, en
hann kom til ÍA þegar hann var 15
ára gamall og er nú á leið til Bolt-
on í ensku úrvalsdeildinni eftir að
hafa leikið með BSC Young Boys í
Sviss og AZ Alkmaar í Hollandi.
- óþ
Útrás knattspyrnumanna af Akranesi verður í brennidepli á heimasíðu UEFA:
Þáttur um uppeldisstarf ÍA
VIÐURKENNING Þórður Guðjónsson segir umfjöllun UEFA góða viðurkenningu fyrir
félagið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Liverpool komst í fjórðu
umferð FA-bikarsins með auð-
veldum sigri gegn Luton og
Tottenham hafði betur gegn
Reading á útivelli.
Leikmenn Liverpool byrjuðu
leikinn með því að pressa gestina
hátt uppi á vellinum eins og fyrir
var spáð og Luton varðist af kappi
og virtist ganga betur í vörninni,
ef eitthvað var, eftir því sem leið
á leikinn og allt stefndi í marka-
lausan fyrri hálfleik. En á loka-
mínútu hálfleiksins náði Liver-
pool loks að brjóta vörn gestanna
á bak aftur og áðurnefndur Babel
skoraði gott mark eftir undirbún-
ing Stevens Gerrard og Fernando
Torres.
Seinni hálfleikur hófst með
sama hætti og sá fyrri endaði og
Liverpool bætti fljótlega við öðru
marki. Jermaine Pennant tók þá
sprett upp hægri kantinn og sendi
háa sendingu á fjærstöngina þar
sem Peter Crouch kom boltanum
út í teiginn á Steven Gerrard sem
skallaði hann í netið.
Þriðja markið kom svo á 57.
mínútu þegar Gerrard tók horn-
spyrnu og Sami Hyypia skallaði
boltann í varnarmann Luton og
þaðan fór hann í markið og lið
Luton gjörsamlega heillum horfið.
Gerrard var ekki hættur og skor-
aði fjórða mark Liverpool og sitt
annað mark í leiknum á 64. mín-
útu með skoti frá vítateigslínunni
niðri í hornið hægra megin.
Fimmta markið kom á 72. mínútu
þegar Gerrard fullkomnaði
þrennu sína með skoti fyrir utan
teig og þar við sat.
Ívar Ingimarsson var á sínum
stað í byrjunarliði Reading þegar
Tottenham kom í heimsókn á
Madejski-leikvanginn en Brynjar
Björn var fjarri góðu gamni að
þessi sinni.
Gestirnir fengu óskabyrjun
þegar framherjinn Robbie Keane
skoraði af stuttu færi strax á 15.
mínútu leiksins og það reyndist
vera eina mark leiksins. Totten-
ham fær að launum verðugt verk-
efni í fjórðu umferð þar sem Eng-
landsmeistarar Manchester
United taka á móti liðinu.
omar@frettabladid.is
Gerrard skoraði þrennu
Fimm leikir fóru fram í FA-bikarnum á Englandi í gærkvöldi og þar af voru
þrjú úrvalsdeildarlið í eldlínunni. Liverpool fór létt með Luton á Anfield og Tot-
tenham gerði góða ferð á Madejski-leikvanginn og vann heimamenn í Reading.
MARK Finninn Sami Hyypia stekkur hér hæst til þess að skora þriðja mark Liverpool
gegn Luton í gærkvöldi. NORDIC PHOTOS/GETTY