Fréttablaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sólveig Helga Zophoníasdóttir lenti í ýmsum
ævintýrum þegar hún dvaldi um ársskeið í Kína.
„Ég vissi ekkert út í hvað ég var að fara. Hugsaði
samt að þetta yrði ágætt ævintýri,“ segir Sólveig
Helga Zophoníasdóttir sem flutti ásamt kærastanum
til Sjanghæ í Kína fyrir ári. Þar vann kærastinn við
vöruhönnun meðan Sólveig hafðist við heima fyrst
um sinn. Hún segir það hlutskipti hins vegar hafa átt
afar illa við sig og því hafi hún verið fljót að skella sér
í nám í mandarín sem er eitt þeirra tungumála sem
töluð eru í Kína.
„Í skólanum kynntist ég krökkum alls staðar að,“
rifjar Sólveig upp, en hún segist ekki hafa eignast
marga kínverska vini meðan á dvölinni stóð og það sé
helst vegna þess hversu erfitt sé að kynnast þeim.
Í skólanum gerði Sólveig margt annað en að læra.
Þar gafst henni færi á að vinna sjálfboðastarf með
öldruðum og svo kenndi hún viðskiptaensku hjá lög-
fræðifyrirtæki og vann á kóreskum leikskóla. Frítím-
ann notuðu skötuhjúin síðan til að ferðast um landið
og völdu til þess heldur óvenjulegan ferðamáta, sem
er að sögn Sólveigar blanda af traktor og mótor-
þríhjóli.
„Fyrst þegar við keyptum það hafði enginn trú á að
við kæmust nokkurn skapaðan hlut. En svo keyrðum
við um nokkur héruð í maí. Við fengum leyfi til að
tjalda á lóðum hjá fólki, en það trúði varla að við
værum að þessu til gamans og hélt að við ættum
hvergi heima,“ segir Sólveig og minnist sérstaklega
heimsóknar til gullfiskabónda á nýárinu, þar sem þau
gistu í garði umkringd fiskatjörnum.
„Þarna kom í ljós að Kínverjar eru alveg jafn skot-
glaðir og Íslendingar. Að gista í tjaldi í bæjarútjaðri
yfir nýárið, er eins og að gista í tjaldi við Hallgríms-
kirkju á gamlárskvöld,“ segir Sólveig og hlær. Hún
segir þó töluverðan mun á þessum tveimur þjóðum
enda hafi heimþrá loks rekið hana aftur til Íslands, en
þá hafði hún líka búið samfleytt í þrjú ár erlendis, þar
af tvö ár í London. Hins vegar sé aldrei að vita nema
hún snúi aftur til Kína einhvern tímann í framtíðinni.
Sjá fleiri myndir á síðu 3.
roald@frettabladid.is
Tjaldað í gullfiskagarði
Sólveig og vinir hennar Ali og Becks að taka sig til svo að þau geti lagt aftur í hann. Þau sváfu lengst af úti í skógi og lentu í hagl-
éli um nóttina. Myndin var tekin á sjöunda degi ferðalagsins og krakkarnir orðnir frekar þreytulegir.
MÓTORHJÓLAVEISLA
Bærinn Daytona í Flórída í
Bandaríkjunum fyllist vænt-
anlega af fólki dagana
1. til 10. mars þegar
mótorhjólahátíðin, sem
er árviss viðburður,
verður haldin.
BÍLAR 2
GENGIÐ UM BERLÍN
Þeir ferðalangar sem heimsækja
Þýskaland og vilja kynn-
ast Berlín almennilega
geta farið í skipu-
lagðar gönguferðir
með leiðsögn um
borgina.
FERÐIR 3
Breiðhöfða
Ford F150, Supercrew, 2003, 40þ.km. álf, leður.
Verð 3.850.000.- áhv 3.700.000.-
Nissan Primera Acenta, 06/03, 70þ.km. ssk,
bakkmyndavél. Verð 1.350.000.- Tilboð 1.150.000.-
Isuzu D-Max, 49þ.km. ssk, dísel 9/04, 33” dekk,
plasthús. Verð 1.980.000.-
Toyota Yaris, 92þ.km. 8/99, álfelgur.
Verð 590.000.-
Chevrolet Silverado, 6,6 dísel, 2500, Nýr bíll,
ssk. 5.290.000.-
Toyota Corolla H/B Sol, 30þ.km. ssk 5/06, sumar
og vetrardekk, topplúga, Verð 1.890.000.- stgr
Porsche Cayenne S, 2004, 61þ.km.
Verð 7.150.000.- áhv. 6.600.000.-
Toyota Avensis Wagon, 6/04, 81þ.km. ssk,
sumar og vetrardekk. Verð 1.790.000.-
517 0000
Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem farið
hefur sigurför um Evrópu.
Virkar vel á hverskonar vandamál
Kennt í Reykjavík 22. - 25. febrúar 2008
Íslenskt námsefni og íslenskur kennari.
Uppl. síma 421 4569 og 897 7469 • Margeir
www.bowentaekni.com • jmsig@simnet.is
Námskeið í
Bowen Tækni
Laugavegi 51 • s: 552 2201