Tíminn - 12.05.1981, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.05.1981, Blaðsíða 1
LANDFARI — BRÉF FRÁ LESENDUM — BLS. 10 VERIÐ í TAKT VIÐ TÍMANN Þriðjudagur 12. mai 1981 104. tölublað—65. árgangur Röd næstu virkjunarframkvæmda ákveðin síðar á árinu: BUNM 20% HAGKVÆM- ARI EN FUÚTSDALUR ■ Frumvarp til laga um raforkuver var lagt fram á Alþingi í gær. Ekki er þar tekin ákvörðun um forgangsröð i virkjunar- framkvæmdum/ en gert ráð fyrir að ríkisstjórnin ákveði framkvæmda- röðina síðar á þessu ári, og að Alþingi staðfesti ákvörðunina á haust- þingi. Frumvarp þetta er stef numóta ndi fyrir virkjunarframkvæmdir næstu lOtil 15 ára. Þar er gert ráð fyrir að tvær stórar virkjanir utan Suður- lands nsi á þessu timabili, Blönduvirkjun og Fljótsdals- virkjun. Kemur fram i greina- gerðinni með frumvarpinu að hagkvæmni Blönduvirkjunar, miðað við krónutölu á hverja kílówattstund á ári, er mun meiri en Fljótsdalsvirkjun, eða riimlega 20%. Auk þessa er i frumvarpinu leitað heimilda fyrir 4 vatns- aflsveitum svo og heimildar fyrir stækkun Hrauneyjarfoss- virkjunar. Gert er ráð fyrir þvi i frumvarpinu að samið verði við Landsvirkjun um að reisa og reka vatnsaflsvirkjanimar, en takist slfkir samningar ekki verði Rafmagnsveitur rikisins virkjunaraðili. I heild gerir frumvarpið ráð fyrir framleiðslu á 720 mega- wöttum, en nilverandi vatnsafl virkjana okkar er 542 megawött, þannig að um meira en tvöföld- un yrði að ræða. Það kom fram i máli iðnaðar- ráðherra á blaðamannafundi i gær, að rikisstjórnin afgreiddi frumvarp þetta á fundi sinum sl. laugardag, og sagði hann að full samstaða hefði verið um það i rikisstjórninni. Nánar segir frá efni frumvarpsins á bls. 5. — AB.I ■ Hreinsunarherferö var farin i Breiöholti þrjú um helgina meö góöum árangri, eins og nánar kem- ur fram iopnu biaösins idag. Timamynd: Róbert FarahDiba húsmoðir? - bls. 2 I spegli Tfmans: Barrtré I görðum ~ bls. 11 MvyxmBin Fjölmiðlum treystandi? Ágreiningur um kostnað vegna hitaveitu frá Laugalandi: ÓVISSA UM FRAMKVÆMD IRNAR VEGNA DEILUNNAR ■ Mikill ágreiningur er nú á milli Hellu og Hvolhrepps um nýtingu á þvi heita vatni sem upp kom viö boranir á Lauga- landiá sl. ári. Þessi ágreiningur veldur þvi aö ekki er hægt aö hefjast handa viö hitaveitu- framkvæmdir, en til þeirra eru áætlaöar 5 millj. kr. á lánsfjár- áætlun. Ef ekki nást sættir á næstu dögum eða vikum, er útséö um framkvæmdir á þessu sumri. Deilan stendur um það, að á þeirri 12—13 kilómetra vega- lengd milli Hellu og Hvolsvall- ar, kólnar vatnið um einar 10 gráöur, sem veldur þvi að kyndingarkostnaður á Hvols- velli verður 20% dýrari en á Hellu, miðað við að sama ein- ingaverð verði á hverjum litra heits vatns, burt séð frá þvi hversu heitur hann er. Þessu vilja Hvolhreppingar ekki una. Þeir telja hættu á mik- illi byggðaröskun milli þessara staða, ef miklu mun ódýrara verður að hita upp hús með heitu vatni á Hellu en á Hvols- velli. Benda þeir á, máli sinu til stuðnings, að svipað vandamál hafi verið leyst hjá Hitaveitu Borgarfjarðar og Akraness á þann hátt að þeir notendur sem fjærst búa, eins og t.d. Akranes- ingar, fái hlutfallslega meira magn af vatni fyrir sama verð og þeir notendur sem nær hita- veitunni búa. Þannig að i reynd greiði notendur á öllu veitu- svæðinu sömu upphæð fyrir sama hitagildi. 1 fyrradag var samningafund- ur meö aðilum, auk vatnsréttar- hafanna, en Guðmundur Gunn- arsson, verkfræðingur, kemur fram fyrir þeirra hönd i þessum viðræðum. Kás. Miklar svipt- ingar í Frakklandi: ....— BVSitterand kjörinn - bls. 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.