Fréttablaðið - 30.01.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er miðvikudagurinn 30.
janúar, 30. dagur ársins.
10.16 13.41 17.07
10.15 13.26 16.38
HUGSAÐU
HRATT
Hlaupárið byrjar á spennandi sértilboðum
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
04
97
0
1/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Toyota - bestu bílakaupin strax
Hlaupárið hjá Toyota byrjar á spennandi sértilboðum í takmarkaðan tíma.
Langar þig í nýjan Yaris, Auris, Corolla, Avensis eða RAV4?
Hugsaðu hratt, komdu til næsta söluaðila Toyota núna og láttu sölumenn
okkar gera þér tilboð sem þú getur ekki hafnað.
Fyrstir koma, fyrstir fara - á nýrri Toyota
RAV4
Tæpast hefðu margir spáð því fyrirfram að íslenska þjóðin
gæti haft jafn stórkostlegar
áhyggjur af heilsufari hins geð-
þekka heimilislæknis sem nú er í
tímabundnu leyfi frá praktík.
Áhuginn virðist hafa komið honum
í opna skjöldu svo ekki hefur í
annan tíma setið hér jafn hnípinn
borgarstjóri, jafn ósáttur við
umfjöllun og jafn mikið fórnar-
lamb. Það síðasta á reyndar líka
við marga aðra sem koma við
þessa athyglisverðu sögu.
ÞVÍ þótt nú sé aðeins liðlega vika
frá útsölunni á borgarstjórastóln-
um hefur uppsöfnun píslarvotta í
þessari framhaldssögu verið
lengri. Hana er til dæmis hægt að
rekja til haustdaga. Þá kristallaði
borgarfulltrúinn Jórunn Frí-
mannsdóttir biturleika fórnar-
lambsins svo dæmalaust vel í
orðum sínum til Björns Inga: „Við
sjáum ekki nokkurn skapaðan hlut
eftir þér! Ekki nokkurn skapaðan
hlut!“ Það urðu fleyg orð og stóð
ræðan upp úr því sem sést hafði til
Jórunnar á kjörtímabilinu.
SÍÐAN hefur listi þjáningar-
systkina lengst hratt og margir
um stund fallið í þann hóp. Fyrir
utan borgarfulltrúaflokk Sjálf-
stæðimanna í heilu lagi þá mátti
næstum kenna sérstaklega í
brjósti um Vilhjálm fyrir að hafa
verið svona mikill þumalputti.
Jafnvel Bjarna Ármannssyni var
dálítil vorkunn þó ekki sé til siðs
að finna til með auðmönnum. Ekki
síst mátti klökkna yfir Birni Inga
þegar hann skældi í beinni útsend-
ingu, gott ef einhver orðaði ekki
mannlegan harmleik. Í upphafi
næsta kafla sögunnar gaf sig
reyndar fram úrvals fórnarlamb
með hnífafjöld í bakinu og grát-
stafinn í kverkunum. Hann upp-
skar samt bara tortryggni því
meintur tilræðismaður var ennþá
í hópi píslarvotta.
ÞRÁTT fyrir góða viðleitni
margra hefur samt enginn sýnt
stórleik í hlutverki fórnarlambs-
ins á borð við áðurnefndan heimil-
islækni. Miðað við langan feril í
stjórnmálum er hann enn furðu
hörundsár fyrir eigin hönd og fjöl-
skyldunnar og sér persónulegt
einelti í hverju horni. Þar nefnir
hann einkum til sögunnar afvega-
leiddan barnaskríl og grínarana í
Spaugstofunni. Fljótlega fer
umræðan að snúast um aðför að
lýðræði og rógsherferð. Yfirvof-
andi stjórnarkreppa í borginni
fellur í skuggann af spurningunni:
Var þetta á grensunni eða var
farið yfir strikið?
Afvegaleidd
umræða