Tíminn - 08.07.1981, Side 7
Miðvikudagur S.' júli 1981
7
erlent yfirlit
■ EINSOGáöurhefur verið sagt
frá, beiö Fianna Fail, hinn gamli
flokkur de Valera, mikinn ósigur i
þingkosningunum, sem fóru
fram f si&astl. mánuði. Hins veg-
ar vann Fine Gael mikið á.
Fine Gael er flokkurinn, sem i
byrjun þriöjaáratugs aldarinnar,
samdi við Breta um stofnun irska
lýðveldisins og skiptingu Irlands,
en þd meö þeim fyrirvara, að
stefnt yrði að sameiningu þess.
NU oröið skilur ekki neitt oröiö
milli flokkanna varðandi afstöð-
una til Norður-Irlands.
Charles J. Haughey, leiðtoga
Fianna Fail og fráfarandi forsæt-
isráðherra, tókst þvi ekki neitt aö
hagnast á þvi máli, eins og ætlun
hans var. Kosningarnar snerust
fyrst og fremst um efnahagsmál-
in, og þar varð vaxandi atvinnu-
leysi rikisstjórn Fianna Fail
þyngzt í skauti.
Eftir kosningarnar var staða
flokkanna þannig: Fianna Fail 78
þingsæti, Fine Gael 65, Verka-
mannaflokkurinn 15 og óháðir 8.
Tveirhinna óháðu þingmanna eru
skæruliðar, sem eru fangar i
Mazefangelsinu.
Fljótlega eftir kosningarnar
náöist samkomulag milli Fine
Gael og Verkamannaflokksins
um stjórnarsamvinnu. Dæmið
stóð þá þannig, að þeir höfðu 80
þingmenn aö baki sér, en Fianna
Fail studdist við 78. Úrslitin voru
þvi i höndum hinna óháðu.
Einn þeirra heltist strax úr
■ FitzGerald kom hingað i heimsókn vorið 1977 og sést her vera aö
skoða Arnasafn, ásamt konu sinni
(Timamynd Robert)
FitzGerald fær
erfið verkefni
Fljótlega getur dregið til kosninga
lestinni, þvi að samkomulag var
um, aö hann yrði forseti þingsins
og missti þannig atkvæðisrétt i
þinginu.Tveirsátuifangelsi, eins
og áður segir. Valdið var þannig i
höndum fimm óháðra þing-
manna.
Atkvæöagreiðslan fór fram um
þá Haughey og FitzGerald báða
sem forsætisráðherraefni. úr-
slitin urðu þau, aö Haughy fékk 79
atkvæði en 83 voru á móti, en einr.
sat hjá. FitzGerald fékk hins veg-
ar 81 atkvæði, en 79 voru á móti,
en þrir sátu hjá.
Þannig varð FitzGerald rétt-
kjörinn forsætisráðherra, þótt
hann hefði ekki stuðning meiri-
hluta þingmanna.
GARRET FitzGerald er 55 ara
gamall og eru þeir Haughy þvl
jafnaldrar. Hann er kominn af
þekktum foreldrum. Móðir hans,
sem var mótmælendatrúar, var
um skeið einkaritari Bernards
Shaw. Faöir hans, sem var ka-
þólskur, var gott ljóöskáld og ná-
inn kunningi skáldanna Pounds
og Yeats.
Báðir foreldrar voru þjóðernis-
sinnar og tóku þátt i páskaupp-
reisninni 1916. Þau sátu þá I fang-
elsi um skeið. Siðar tók faðir hans
þátt i stofnun Fine Gael og varð
fyrsti utanrikisráðherra irska
lýöveldisins og siðar varnar-
málaráðherra. Pólitiskum af-
skiptum hans lauk þannig, að
hann féll i þingkosningum og
ákvað þá að leggja stjórnmál al-
veg á hilluna. Jafnframt hvatti
hann son sinn til þess.
FitzGerald varð frægur sem
barn fyrir námsgáfur, og þó eink-
um frábært minni. Eftir að hafa
lokið fyrsta hluta háskólaprófs i
hagfræöi gerðist hann starfsmað-
ur hjá flugfélaginu Air Lingus og
annaöist þar samning flugáætl-
ana og ýmsar rannsóknir á
ferðalögum. Minni hans þótti þá
koma honum aö góðum notum,
ásamt mikilli málakunnáttu.
FitzGerald segir, að þegar hann
lét af störfum hjá Air Lingus,
hafi þrfr menn og ein tölva tekiö
við starf i hans.
Fitz Gerald vann hjá Air Liiigus
i 10 ár. 1 fristundum sinum hafði
hann aflað sér svo mikillar hag-
fræðiþekkingar, að hann gat tekið
að sér kennslu i þeirri fræðigrein.
Jafnframt skrifaði hann greinar
fyrirýmisblöö, eins ogTheEcon-
omist og The Financial Times.
Jafnhliða þessu hóf hann póli-
tisk afskipti. Hann var kosinn á
þing 1969 og hefur átt þar sæti
siðan. Þegar Fine Gael og Verka-
mannaflokkurinn mynduðu stjórn
1973, varð hann utanrikisráð-
herra og gegndi þvi starfi næstu
fjögur árin. Hann vann sér mikið
álit erlendis á þeim tima fýrir
hyggilegan málflutning og við-
felldna framkomu, þótt hann
fengi jafnframt það orð á sig að
vera hiröulítilli klæðaburði. Á þvi
sviði stendur Haughy honum
miklu framar.
FitzGerald átti mikinn þátt i
hinu svonefnda Sunningdalesam-
komulagi.en að þvi stóðu stjórnir
trlands og Bretlands og heima-
stjórn Norður-Irlands. Markmið
þess var aö koma á samvinnu
miUi mótmælenda og kaþólskra i
Noröur-Irlandi. öfgamenn meðal
mótmælenda i Norður-lrlandi
komu í veg fyrir framkvæmd
þess.
Eftir kosningaósigur Fine Gael
1977 sagöi þáverandi formaöur
fldcksins af sér og var FitzGerald
kjörinn i stað hans. Hann hefur
gengt því starfi siðan.
Þeir Haughey og FitzGerald
notuðu vigorð i kosningabarátt-
unni sem þykja á vissan hátt
táknræn fyrir þá. Kjörorð i kosn-
ingasöng Fianna Fail var : Fylgið
Haughy, en hjá Fine Gael: Þið
þekkið Garret.
FitzGerald kvæntist 1947 og
eiga þau hjón þrjú uppkomin
börn.
ÞAÐ verður ekki létt verk hjá
FitzGerald að stjórna irska lýö-
veldinu. 1 kosningabarát tunni lof-
aði hann þvi, að útrýma atvinnu-
leysinu á næstu fjórum árum og
vinna jafnframt að lækkun verð-
bólgunnar.
Verkamannaflokkurinn getur
orðið honum erfiður i samstarfi.
Hann varð fyrir miklu tapi i kosn-
ingunum og féll formaður hans.
Fjórir af þingmönnum hans
greiddu atkvæði i þingflokknum
gegn stjómarþátttökunni.
I stefnuskrárræðu, sem Fitz
Gerald hélt eftir að hafa verið
kjörinn forseti, lagði hann megin-
áherzlu á Norður-Irlandsmáiið og
lausn þess. Hann sagðist myndu
leita samninga við Breta um þau,
og einnig við forustumenn
Norður-íra.
Kosningaósigurinn getur haft
örlagarik áhrif á framtið
Haughys. Hann var kosinn for-
maður Fianna Fail fyrir tæpum
tveimur árum og sigraði þá með
naumindum. Andstæðingar hans i
flokknum munu nú hugsa sér til
hreyfings.
Ýmsir spá þvi, að svo geti fariö,
að fljótlega verði aftur efnt til
þingkosninga I irska lýðveldinu.
■ FitzGerald (i miðið) að fylgjast með atkvæöatalningu.
T-----------------------------
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
Milljón í mót-
mælaverkfalli
■ Yfir ein milljón manns tóku
þátt i mótmælaverkfalli á
Italiu i gær. Sameinuöust
verkamenn og framkvæmda-
stjórar i þessum mótmæla-
verkföllum sinum, sem beint
var gegn Rauðu herdeildunum
vegna morðs þeirra á italska
iðnjöfrinum Guiseppe
Taliercio og eru þessar sam-
eiginlegu aðgeröir þessara
óliku verkalýösfélaga eins-
dæmi i italskri verkalýðssögu.
Verkföllin stóöu mislengi,
eða allt frá hálfri klukkustund
og upp i fjórar klukkustundir.
Giovanni Spadolini hinn- nýi
forsætisráðherra Italiu, lýsti
þvi yfir i gær að eitt fyrsta
baráttumál rikisstjórnar hans
yröi baráttan viö hryðju-
verkamenn. Hann sagði að
viöbrögð stjórnarinnar viö
hryðjuverkum yröu afgerandi
og ósveigjanleg.
Rauðu herdeildirnar i
Napóli hótuðu þvi i gær að þær
myndu einnig taka af lifi
kristilegan demókrata frá
Napóli sem þeir hafa rænt, ef
borgaryfirvöld afhenda ekki
hundruðir ibúða til þeirra sem
fóru hvaö verst út úr jarö-
skjálftunum frá i vetur.
Borgaryfirvöld hafa lýst þvi
yfir að þau muni ekki veröa
við þessari kröfu, þvi þau
starfi ekki eftir hótunum.
Bodar aukningu
kjarnorkuvopna
■ Vestur-þýska timaritiö
Stern hafði það eftir Mitterr-
and Frakklandsforseta i gær
að Vesturlönd ættu að styrkja
kjarnorkuvopn sin, áöur en
samningaviöræður hæfust við
Sovétmenn um afvopnunar-
áætlanir Evrópulanda. Sagði
hann i viðtalinu við Stern að
Rússar hefðu raskaö valda-
hlutfalli i Evrópu með dreif-
ingu á hinum svokölluðu Dac-5
sprengivélum og SS-20 árásar- .
eldflaugum sinum. Mitterrand
sagði að Frakkar myndu ekki
hika við að styrkja sin eigin
kjarnorkuvopn.
Aöspurður um veru
kommúnista i rikisstjórn
hans, og áhyggjur Banda-
rikjamanna af þeirri þátttöku
svaraði Mitterrand aö Frakk-
land væri sjálfstætt riki sem
ætti að sjá um sin innanrikis-
mál, án ihlutunar annarra.
Bætti hann þvi við að Frakk-
land væri dyggur bandamaður
Bandarikjanna og myndi
halda áfram að vera þaö.
Reuter rekinn
frá íran
■ trönsk stjórnvöld skipuöu
fréttastofu Reuters I Teheran i
gær að hætta starfsemi sinni
og gáfu fréttamönnunum
þremur sem starfa þar 48
klukkustundir til þess að yfir-
gefa landið. Sagði I yfirlýsingu
stjórnvalda i íran i gær að
Reuter heföi á liðnum mánuði
sent frá sér tviræöar og
ósannar fréttir um málefni
Iran i meira en 10 tilfellum, og
að fréttastofan heföi iátið
opinberar aðvaranir sem vind
um eyru þjóta.
Franska fréttastofan NSP
er nú eina stærri erlenda
fréttastofan sem fær aö starfa
i íran.
Pólskir verkamenn
herða baráttu sína
■ Allar tilraunirstjórnvalda i
Póllandi til þess að afstýra
klukkustundarlöngu verkfalli
hafnarverkamanna nú i dag
hafa mistekist. Verkamenn-
imir gera kröfu um bætta
vinnuaðstöðu, bættan tækja-
kost, aukið veikindaorlof og
fleiri frfdaga. Verkfall þeirra
skellur þvi á í öllum höfnum
Póllands nú f dag á milli 10 og
11.
Auk þess hóta starfsmenn
rikisflugfélagsins LOT fjög-
urra stunda aðvörunarverk-
falli á morgun, sem verði
haldið áfram ef kröfum þeirra
verði ekki sinnt. Starfsmenn-
imir krefjast þess að starfs-
maður sá sem þeir kusu i
leynilegum kosningum til þess
aö verða næsti framkvæmda-
stjóri flugfélagsins veröi ráö-
inn sem slikur.
Póisk stjórnvöld segja flug-
félagið vera lið i flughernaði
landsins og verði þau þvi sjálf
að ákveða hver verði fram-
kvæmdastjóri þess.
Stjórnvöld i Póllandi munu
hafa miklar áhyggjur af þróun
mála hjá verkalýðnum nú, þvi
þessar aðgerðir skella á svo
stuttu áður en flokksþing
Pólska kommúnistaflokksins
fer fram i næstu viku, en þá
veröa Pólland og pólsk mál-
efni undir smásjá Sovétrikj-
anna.
„Solar ChallengerM:
Flaug frá Frakk-
landi til Englands
■ 1 gærtókst að fljúga vélinni
„Solar Challenger” frá
Frakklandi til Bretlands. Vél-
iner eingöngu knúináfram af
sólarorku og flýgur henni einn
flugmaöur.
Flugiö tók rúmar fimm
klukkustundir og náði vélin
12.000 feta hæð. Þetta var
önnur tilraunin sem hönnuðir
„Solar Challenger” gerðu til
að fljúga til Englands, en fyrri
ferðinni lyktaði á akri í grennd
við París eftir aðeins 5 milna
flug.
Skrokkur vélarinnar er hul-
inn rúmlega 16.000 sólarsell-
um sem breyta sólarljósinu i
orku sem knýr vélina áfram. I
gær ríkti mikil gleði i herbúð-
um hönnuða vélarinnar og þá
sérstaklega hjá aöalhönnuði
hennar Dr. Paul MacCready.