Tíminn - 02.08.1981, Side 3
Sunnudagur 2. ágúst 1981
fréttir
„Myndast hefur
breið samstaða
varðandi Alusu-
isseviðræðurnar95
— segir Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra
■ „Ég ætla ekki að taka þátt i
þessum viðræðum við Alusuisse,
að öðru leyti en þvi, að hitta full-
trúa fyrirtækisins annað hvort
fyrir fundinn, eða i fundarbyrj-
un,” sagði Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra i viðtali við
Timann i gærkveldi þegar hann
var að þvi spurður hver hans
hlutur yrði i viðræðunum við full-
trúa Alusuisse n.k. miðvikudag.
„Astæðan fyrir þvi er sú, að það
hefur verið sett niður nefnd til
þess að ræða við þá, og þetta eru
fyrstu viðræður. Auk þess eru
ekki fremstu menn frá Alusuisse
sem taka þátt i þessum viðræðum
þannig að ég sé ekki ástæðu til
þess að taka fullan þátt i viðræð-
unum,”sagði Hjörleifur. „Ég hef
heyrt, án þess að hafa fengið
formlega tilkynningu um það, að
Weibel yrði i forsvari fyrir við-
ræðunefndinni frá Alusuisse. Ég
tel þvi eðlilegt að menn beri sig
saman á þessum fundi án þess að
ég sé viðstaddur. .
Á þessum fundi verður farið yfir
stöðu málsins og ýmis tæknileg
atriði og þarna verða menn frá
ráðuneytinu, sem hafa unnið sig
inn i málin og þekkja þar vel til.”
Hjörleifur sagðist telja að hóp-
ur sá sem væri skipaður til þess-
ara fyrstu viðræðna væri mjög
vel skipaður og sagðist hann
fagna þvi mjög að þessi breiða
samstaða um skipun þessarar
nefndar hefði náðst. Sagðist hann
telja að sú samstaða styrkti mjög
okkar stöðu. Hann sagði að full-
trúar allra flokka kæmu inn i við-
ræðunefndina og myndu þeir
túlka sin sjónarmið og haft yrði
samráð við þá um málið. Þeir
gætu siðan komið á framfæri upp-
lýsingum inn i sina flokka, en allt
hefði það þýðingu fyrir áfram-
hald málsins. Sagðist Hjörleifur
telja að þarna hefði orðið ánægju-
leg þróun mála.
Reiknað er með að nokkrir
fundir verði haldnir áður en það
ræðst hvort endurskoðun samn-
ingsins verður samþykkt af hálfu
Alusuisse.
Hjörleifur var að þvi spurður
hvort sama viðræðunefnd myndi
sjá um viðræðurnar af Islands
hálfu ef endurskoðun samnings-
ins fengist fram og svaraði hann:
„Ég vil ekkert kveða upp úr um
það. Ég held að þessi nefnd hafi
alla burði til þess að taka á þvi
máli, og ég myndi ekki leggja
kapp á að koma inn i þær umræð-
ur, þvi ég myndi ekki leggja kapp
á að þær viðræður yrðu á ráð-
herragrundvelli.”
Sagðist Hjörleifur telja að
þarna væri um að ræða tæknileg
atriði sem eðlilegt væri að f jallað
yrði um af mönnum með faglega
og breiða þekkingu á þessum
málum, en ekki af ráðherrum.
— AB
HEYÞYRLUR 06
STJÖRNUMÚGAVÉLAR
heyþyrla
GF-452
BÆNDUR ATHUGJÐ
Eigum nokkrar Kuhn vélar
á lager til afgreiöslu strax.
stjörnumúgav.
GA-402
VÉLADEILD
SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
KAUPFÉLÖGIN
UMALLTLAND