Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 32

Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 32
■ Winchester-setrið i grennd við San Jose i Kaliforniu er e.t.v. kyndugasta hús allra tima. Eig- andi hússins, Sara Winchester, trúði þvi statt og stöðugt að ef lát yrði á byggingaframkvæmdinni þar myndi hún safnast til feðra sinna. Þvi var byggt á hverjum degi I þrjátiu og átta ár. A húsinu eru 2000 dyr og 10 000 gluggar, flest af þvi þjónar engum til- gangi, fyrir utan gluggann er steinveggur, utan við dyrnar er heiörikjan ein. Húsið er átta hæð- ir, þar inni eru fjörtiu og átta eld- stæði og leynigöng i kilómetra- tali. Þegar frú Winchester dó 1922, áttatiu og fimm ára að aldri, voru 160 herbergi i bústað hennar sem þakti um sex ekrur lands. ■ Dr. James Barry, var kona sem þóttist vera maður. Hann/hún var hershöfðingi i breska hernum á tima Viktoriu drottningar. Barry var fyrst her- læknir, og varð siðan yfirmaður spitalareksturs i hernum. Það var ekki fyrr en Barry var dauður 1865 að raunverulegt ,,kyn” hans varö lýöum ljóst. Hvernig var það, var ekki einn páfinn kona? B Fyrsti maðurinn til að stinga uppá fingraförum sem óyggjandi auðkenni einstaklingsins var enski mannfræöingurinn Francis Galton, náinn frændi Darwins. fon var með tölfræði á heilan- . Hann reyndi að nota tölfræði- legar aðferðir til að finna hverjir áttu von á að fæðast laglegir og hverjir ekki á Englandi — og til að finna hlutfall bæna sem var svarað. ■ Konan meö lampann, engillinn á Krimskaga, hjúkrunarkonan Florence Nightingale. Þaö vita kannski fæstir að hvert sem hún fór var hún með sérkennilegt gæludýr i vasanum — nefnilega uglu. ® Þegar Sir Isaac Newton var á enska þinginu er aðeins vitað til þessaöhann hafi lokið upp munni einu sinni — þá æskti hann þess að gluggi yrði opnaður. ■ Henry Ford trúði þvi staðfast- lega að sojabaunir væru upprenn- andi hráefni. Hann áleit að úr þeim væri hægt að framleiöa ýmisskonar vörur ,wm væru auð- seljanlegar. Eitt sinn kom Ford á mannamót i fötum sem öll voru búin til úr sojabaunum — fyrir ut- an skóna. ■ t seinni styrjöldinni var rúss- neski utanrikisráðherrann og hjálparhella Stalins eitt sinn i heimsókn i Hvita húsinu. Það var farið leynt með veru hans þar, i skýrslum var hann kallaður „Herra Brown”. Þjóninn sem tók upp úr töskunum fyrir Molotov i Hvita húsinu fann pylsu, rúg- brauðshleif og skammbyssu. ■ Móðir blaðakóngsins Williams Randolph Hearst (talinn fyrir- myndin að Borgara Kane eftir Orson Wells) sagði að i hvert skipti sem illa lægi á syni sinum færi hann út og keypti sér eitt- hvað. Eitt sinn keypti hann klaustur frá lOdu öld i Segovia á Spáni, vitaskuld óséð, fyrir 40.000 dali. Til aö hægt væri að flytja klaustrið varð aö taka það niöur, stein fyrir stein, það varð aö byggja 30 km langa járnbraut til að hægt væri að koma klaustrinu af stað — ennfremur varð að reisa sögunarmyllu til að saga við i heljarstóra kassa sem klaustrið var flutt i yfir hafið. L * * 1. Þú hellir köldu vatni í ílöskuna 2. færð gos úr SodaStream tækinu 3. ogsetursvo bragðefnið útí. Svona einfalt er það. Þú getur valið um 5 bragðtegundir; Appelsín, Cola, GingerAle, Límonaði og Tonic. Úr hverri bragðflösku færðu 50 flöskur af gosdrykkjum. SodaStream gosdrykkjagerðin þín spararþér ekki aðeins peninga, heldur líka pláss, svo ekki sé minnst áþægindin. SodaStream það besta er aldrei of gott. Sól hf. ÞVERHOLTI 19 SÍMI26300 REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.