Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 2. ágúst 1981 Ahyggju- laust ævi- kvöld? — Astandið í hjúkrunarmálum aldraðra kannað vissulega við ýmis vandamál að striða —fyrst og fremst félagsleg — þá er ekki nokkur vafi á að ástandið er langverst meðal hinna sem fyrr voru nefndir, þeirra sem orðnir eru lasburða, eins og gengur. Um þetta efni ræddi ég við fjölda fólks sem starfar — beint eða óbeint — að þessum málum, bæði á elli- og hjúkrunardeildum, sjúkrahúsun- um og öðrum stofnunum, sem og hjá Reykjavikurborg. Skulu þeim öllum færðar bestu þakkir fyrir veittar upplýsingar. 400 vistmenn — og 600 á biðlista! Aö mati allra þeirra sem ég talaði við má lýsa ástandinu i hjúkrunarmálum aldraðra með aðeins einu orði. Þetta er þvi miður orðið hræöilegt, — eða hrikalegt, óþolandi, ömurlegt, menn rötuðu ekki allir á sama orðið. Þaö er 1 jóst að öldruðu fölki sem þarf á hjúkrun að halda er búin m jög svo óviðunandi aðstaða og fjöldi fólks sem ætti með réttu hvergi heima nema á sérstökum stofnunum — þótt mörgum sé eðlilega þvert um geð að viður- kenna það — að fjöldinn allur af þessu fólki þarf að hirast heima hjá sér við oft á tiðum mjög slæmar aðstæður, eða þá hjá að- standendum sem eru sjaldnast i stakk búnir til að veita þvi nauð- synlega aðhlynningu þó þeir séu allir af vilja gerðir. Á hinn bóginn er ekki fyrir það að synja að margt gamalt fólk, sem gæti vel verið heima hjá sér og séð um sig að mestu sjálft, að það fær ekki þá þjónustu sem þarf til að það geti bjargað sér sjálft. Loks hefur svo fjöldi gamals fólks orðið inn- lyksa á sjúkrahúsunum sem eru eins og menn vita aðeins ætluð fyi'ir alvarleg veikindatilfelli en ekki langlegusjúklinga. Asjúkra- húsunum tekur þetta gamla fólk pláss frá öðrum sem þurfa ef til vill meira á því að halda og verður vikiö nánar að þessu vandamáli siðar i greininni. En fyrst verða hér talin upp þær stofnanir og þau heimili sem ■ Það er margt sem tslendingar | monta sig af og meðal þess er að i hér á tslandi er hæstur meðal- aldur i' veröldinni, að þvi er sið- ustu tölur herma. tslenskur karl getur um þessar mundir gert sér vonir um að lifa i rúm sjötíu ár, konan um það bil fimm árum lengur. Og margir verða miklu, miklu eldri. Af þessu erum við ósköp stolt enda má vel segja að auk náttúrulegs langlifis þjóðar- innar sem ekki verður farið út i hér, þá sýni þessi staðreynd að læknavisindin hafi hér á landi komist til umtalsverðs þroska. En hvað hefur þessi árangur kostað? Svarið er einfalt. Þetta hefur kostað það að nú er stór hluti þjóðarinnar sem lifir undir nirætt og jafnvel lengur og ákaf- lega margir eru orðnir svo elli- móðir áður en þeir deyja að i kannski tiu, jafnvel tuttugu ár, geta þeir litla björg sér veitt og eru að mestu upp á aðra komnir. Þósvo að lífdögunum hafi fjölgað er fólk ekki betur úrgarði gert frá náttúrunnar hendi að um sjötugt, og i sumum tilfellum fyrr, fer þvi að hraka smátt og smátt, li'kam- lega og að lokum andlega. Fjöldamargar undantekningar eru auðvitað til, bæði hér og annars staðar — Titó var 87 ára þegar hann dó, ef ég man rétt, og stjórnaði Júgóslaviu eins og ekkert væri — en meginreglan er samt sem áður þessi: þegar fólk er komið yfir sjötugt er afar hætt viö að það fari að þurfa á hjálp að halda og i verstu tilfellum stöð- ugri aðhlynningu. Og hvað er svo gert fyrir þetta fólk? — Þetta fólk sem lokið hefur starfsdegi si'num en á ennþá mörg ár eftir ólifuð. í þessari grein verður reynt að varpa nokkru ljósi á ástand þess- ara mála og er að mestu miðað við Reykjavik og Stór-Reykja- vikurs’ æðið. Skal rækileg athygli vakin á þvi að hér verða fyrst og fremít skoðaðir hagir þess aldr- aða (ólks sem farið er að missa heikuna eða komið að fótum fram vegna ellihrumleika eða farið að förlast andlega. Eins og mnnst var á að ofan eru margir h;nir hressustu þótt árunum sé firið að fjölga og þó það fólk eigi ætluð eru sérstaklega fyriraldrað fólk i Reykjavik og nánasta ná- grenni. Verður seinna f jallað um þær sjúkrastofnanir og langlegu- deildir sem eru i byggingu eða fyrirhugað er að byggja. GRUND: Elli- og hjúkrunar- heimilið Grund er við Hring- brautina eins og allir vita og þar eru nú rúmlega 300 vistmenn en nákvæmari tölur lágu ekki f yrir á skrifstofuGrundar. Jafnframt eru svo um það bil 200 vistmenn á Ási i Hveragerði en það heimili er rekið i tengslum við Grund. Bið- listinn er mjög langur, skiptir tugum eða jafnvel hundruðum, en hluti þeirra sem skráðu sig á bið- lista munu ekki koma til með að fá vist.þar sem þar.er um að ræða rúmliggjandi sjuklinga en slika sjúklinga treystir Grund sér ekki til að taka inn. Sérstök sjúkradeild er hins vegar rekin á heimilinu fyrir þá vistmenn sem veikjast en komi upp alvarlegri tilfellier leitað tilsjúkrahúsanna. Verður nánar greint frá ýmsum erfiðleikum við rekstur Grundar, sem og Hrafnistu, hér að neðan. HRAFNISTA: A Hrafnistu, Dvalarheimili aldraðra sjó- manna, við Laugarás, eru um það bil 400 vistmenn, þeir voru 406 um siðustu áramót og fjöldinn er vafalaust mjög svipaður nú. Bið- listinn er óhugnanlega langur, á honum munu vera milli fimm og sex hundruð umsækjendur. Athyglisvert er að milli 70—80% þessara umsækjenda eru konur sem standa einar en annars eru umsækjendur flokkaðir i þrennt: karla, konur og hjón. Mun ekki ósvipað hlutfall vera viðast annarsstaöar. Að sögn Rafns Sig- urðssonar, forstjóra yfir Hrafn- istu.er langmestur hluti umsækj- enda þurfifyrir hjúkrun, þó i mis- miklum mæli sé. Sumir eru mjög veikburða og hrumir. „Skortur- inn á hjúkrunarrými er æpandi”, sagði Rafn. HRAFNISTA 1 HAFNAR- FIRDI: Þetta útibú frá Hrafnistu i Reykjavik var reist fyrir fáum árum og þar eru nú 99 vistmenn. Þar að auki eru fjórir i svokall- aðri „dagvistun” — það er að segja, dveljast á heimilinu á dag- inn en búa á öðru leyti heima hjá sér. HAFNARBÚDIR: Eins og menn kannski muna urðu miklar deilur þegar ákveðið var að taka Hafnarbúðir við Tryggvagötu undir sjúkrapláss fyrir gamalt fólk, en Hafnarbúðir hafa nú fest sig i sessi. Þær eru reknar sem ellihjúkrunardeild frá Borgar- spitalanum og þó ætlunin hafi verið sú að sjúklingar hefðu þar aðeins viðdvöl tiltölulega skamman tima hefur reyndin orðið sú að flestir sjúklinganna eru i raun langlegusjúklingar. Hins vegar er nokkuð um það að inn á Hafnarbúðir séu teknir aldraðir i stuttan tima, fyrst og fremsttilað aðstandendur þeirra geti hvilt sig og farið i fri, en þeir sjúklingar hafa siðan undantekn- ingarlitið farið aftur til sins heima. I Hafnarbúðum eru nú 25 rúm og að auki er rekin þar dag- deild, sem er með sama sniði og sú sem minnst var á hér að ofan og rekin er frá Hrafnistu i Hafnarfirði. HATÚN: Á sama hátt og Hafnarbúðir eru deild frá Borgarspitalanum er Hátún öldrunarlækningadeild frá Land- spitalanum. Þar eru 65 legupláss á sjúkradeild og 35 á dagspitala en ennþá einu sinnitekég fram að nánar verður fjallað um starf- semina þar hér á eftir.... HEILSUVERNDARSTÖDIN: Á efstu hæð Heilsuverndar- stöðvarinnar við Barónssti'g hefur verið starfrækt ellideild i nokkur ár. Ætlunin var að þar væri öldr- unarlækningadeild sem sendi fólk heim jafnskjótt og það hefði náð sér af alvarlegum kvillum en rétt eins og með Hafnarbúöir og fleiri stofnanir hefur reyndin orðið sú að meirihluti fólksins mun ekki fara þaðan á lifi. DALBRAUT: Asamt svipuðum heimilum við Lönguhlið, Furu- gerði og Norðurbrún er heimilið við Dalbraut 27 kallað „vernd- aðar ibúðir”. Þar er um að ræða fremur litlar en vistlegar ibúðir fyrir gamalt fólk sem getur að mestu leyti séð um sig sjálft og Eins og minnst var á hér að ofan er aldrað fólk töluvert .' vandamál inni á sjúkrahúsunum. Það er lagt inn vegna einhverra sjúkdóma og er það hefur fengið bót meina sinna eða að minnsta kosti tekist hefur að halda i horf- inu finnst enginn staður fyrir það. Kemur þar þrennt til. 1 fyrsta lagi að um sé að ræða svo þunga hjúkrunarsjúklinga að aðstand- endur treysti sér ekki til að hafa þá heima, geti það ekki eða jafn- vel vilji það ekki. Það skal tekið fram að allir þeir sem ég talaði við skildu afskaplega vel vanda aðstandendanna enda veit þetta fólk betur en flestir aðrir hversu erfitt og timafrekt það er að hjúkra lasburða gömlu fólki svo að vel fari. Aðstandendurnir eru bundnir yfir gamla fólkinu 24 tima sólarhringsins og fá varla nokkurn tima hvild. Þeir verða þvi fljótt ákaflega þreyttir auk þess sem gamla fólkinu er oft mjög illa við að vera að svo miklu leyti upp á aðstandendur sina komið, jafnvel þó það vilji allt til vinna að leggjast ekki inn á stofn- un. — I öðru og þriðja lagi getur það verið vegna skorts á hjúkr- unarrými og/eða vistur.'arrými sem leiðir til þess aðgamla fólkið „strandar” inni á spltölunum. Bakarþetta sjúkrahúsyfirvöldum mikil óþægindi þvi ekki geta þau fleygt sjúklingnunum öfugum út eru annars vegar einstaklings- herbergi en hins vegar hjóna- ibúðir. Eldunaraðstaða er fyrir hendi en að auki er aldraða fólk- inu séð fyrir mat, ef þess er ósk- að. Húsvörður er á staðnum en þar fyrir utan er litil þjónusta veitt, enda gert ráð fyrir að fólkið geti aflað sér hennar sjálft. Hins vegar stendur bæði Heimahjúkr- un og Heimilishjálp til boða fyrir þá er þurfa þess með. Fleiri heimili, stofnanir og deildir eru rekin fyrir aldrað fólk en við látum þessa upptalningu nægja i bili. Gamalt fólk vandamál á sjúkrahúsum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.