Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 8
8 isunnudagur 2. ágiVst 1981 HtEimi® Utgelandi Framsóknarllokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Af- greiðslustjori: Sigurður Brynjolfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarins- son, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrui: Oddur V. olafsson. Frettastjori: Páll Magnusson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: lllugi Jokulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefansdottir. Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Halldór Valdimarsson, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar om Pétursson (íþróttir). utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert " Agustsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla )5, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausa- sölu 4.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 80.00— Prentun: Blaðaprent h.f. Starfslaun til íþróttamanna ■ íslendingar hafa oft á tiðum átt mikla afreks- menn i iþróttum. Þeir hafa náð verulegum ár- angri við mjög erfiðar aðstæður samanborið við afreksmenn ýmissa annarra þjóða á iþróttasvið- inu. Nú að undanförnu hefur framganga ýmissa is- lenskra knattspyrnumanna á erlendri grund vak- ið mesta athygli. Ungir knattspyrnumenn, sem ná umtalsverðri leikni i iþrótt sinni hér heima, eru keyptir af erlendum félögum og gerast at- vinnumenn i iþrótt sinni með öðrum þjóðum. Sumum þykir reyndar of langt gengið i þvi efni, en islensk knattspyrnufélög hafa einfaldlega enga fjárhagsgetu til að keppa við hina erlendu aðila um knattspyrnumenn. En islendingar eiga afreksfólk á öðrum sviðum iþrótta, og það fólk býr einnig við mjög erfiðar aðstæður til að helga sig iþrótt sinni svo sem nauðsynlegt er til að ná frábærum árangri. Hákon Sigurgrimsson, framkvæmdastjóri, vakti athygli á þessu vandamáli i grein i Timan- um i tileíni af mjög góðum árangri ungra iþrótta- manna á landsmóti Ungmennafélags íslands. Hákon velti þvi fyrir sér, hvað taki við hjá þessu efnilega fólki og hvaða aðstöðu það hafi til áfram- haldandi þjálfunar, og varpaði fram þeirri spurn- ingu, hvort timi algerrar áhugamennsku sé ekki liðinn. Hann sagði siðan: ,,Það hefur verið áberandi á undanförnum ár- um, hve stuttur ferill margra efnilegra frjáls- iþróttamanna hefur orðið. Menn hafa tekið þátt i keppni nokkur sumur með góðum árangri en eru svo allt i einu horfnir af keppendaskránni. Skýr- ingin er oftast sú að menn hafi stofnað heimili, séu að byggja, önnum kafnir við nám eða upp- teknir við vinnu. Útyfir tekur þó þegar okkar mestu afreksmenn verða að hætta keppni vegna féleysis. Fyrir nokkrum vikum var frá þvi sagt, að Ósk- ar Jakobsson, kastarinn snjalli, sem dvaldi sið- astliðinn vetur i Bandarikjunum við æfingar, væri farinn austur á land i simavinnu til að vinna fyrir skuldum og hefði ekki efni á frekari þátttöku i keppni i sumar. Ég held að þetta dæmi sýni okkur svo ekki verður um villst að komið er að þáttaskilum i þessu efni. Við getum ekki lengur farið svona með okkar bestu iþróttamenn. Við verðum að gera okkur ljóst að afreksiþróttir verða ekki stundaðar i tómstundum með fullri vinnu eða námi. Ég held að ekki verði lengur hjá þvi komist að stofna til ,,starfslauna iþróttamanna” sem út- hlutað yrði til besta iþróttafólks okkar. Við höfum þegar nokkra skákmenn á launum hjá rikinu og þykir sjálfsagt, og árlega er úthlutað starfs- launum til heils hóps listamanna. Það gæti varla talist nein fordild þótt við hefðum iþróttamenn á launum i svo sem 3-4 stöðugildum”. Hákon bendir þarna á mjög athyglisverða leið til þess að auðvelda afreksmönnum okkar i i- þróttum að ná sinum besta árangri, og er von- andi, að þessi hugmynd verði tekin til alvarlegrar athugunar hjá fjárveitingavaldinu i haust. — ESJ. menningarmál I Ein af konungskomumyndun- um þremur. ■ Málverk eftir Gunnlaug Scheving. ■ Myndin sem Gunnlaugur Scheving málaöi á pokastriga austur á Seyöisfiröi 1931. Mynd- ina keypti Þorvaldur i Dan- mörku, en þangaö hefur hann margan kjörgripinn sótt. (Ljósm. Ella) Hótel Holt kynnir myndlist • Yfirleitt er litið ritaö i blöö um hótel, nema ef þau meö einhverj- um sérstökum hætti dragast inn i svonefnda almenna umræöu. Hótel eru svefnhús og athvarf manna, sem komnir eru á nýjan staö, ýmist I brýnum erindum, eöa vegna skemmtunar, og taliö er að þessi borgaða gestrisni, sé oft spegilmynd af landinu, eöa bænum' þar sem hóteliö er, sefur þungt um nætur, en vaknar svo meö nýjum degi, eins og önnur hús. Hér á landi hefur þó dálitið ver- iö um það, aö hótel séu skemmti- staöir llka, eöa þau eru ráðstefnu- hótel, þar sem læröir menn koma til aö bera saman bækur sinar og visindi lika kaupahéönar og menn i félagastússi, aö ekki sé nú minnst á sólstööusamninga, sem fara oft fram á hótelum, þegar dagur verður ekki greindur frá nóttu. Flest eru nýrri hótei okkar vel i stakk búin til aö taka á móti gest- um, hvort heldur það eru menn sem komnir eru suöur til að láta skera sig, eða til aö fá tennur, al- þjóölegir erindismenn, eða skemmtiferöamann. Allir fá hreint rúm, kaffi á morgnana og hiö alþjóðlega bros ferðaiðnaðar- ins, þvi allt er nú staölaö, mola- sykurinn, smjörið og rúnstykkin, sem bresta eins og glerhallir und- an tönnum ferðamannsins, sem sötrar kaffiö sitt og skálar við ný- borinn daginn, sem er kannski lika staölaður meö Gullfoss og Geysi, Hverageröi og hitaveit- unni, eða hvaö þaö nú annars er sem niöurrigndum feröalöngum er sýnt á höfuðborgarsvæöinu. Hinn alþjóölegi still, hljóölátur og smuröur, mótar hvern dag, eins og dauf ljósin á barnum, eöa I veitingabúöinni. Listaverk og ferðamái Flestar þjóöir reyna aö sýna er- lendum feröamönnum sérstakt andlit og draga þá fram þaö þjóö- lega ásamt hinu alþjóölega og reyna aö tengja i eitthvaö ein- stætt. í Paris eru menn drifnir upp i Eiffelturninn, sem er Gull- foss og Geysir þeirrar borgar, og á öörum stööum er kallaö á villi- menn, sem fremja dans og söng, eöa rimur. Gamlar minjar eru skoöaöar, frægar hallir eöa ein- stæöar náttúruminjar, og i verka- lok, snýr feröamaöurinn heim og fellur I væran svefn, eftir erfiöm dag. Eitt af þvi, sem frægar borgir hafa yfirleitt að bjóöa eru lista- söfn. Þá annaöhvort meö Rem- brandt meö sinn trésmiðafernis og undur i höndunum, Van Gogh, eöa Dali, eöa hvaö þeir nú allir heita. Ogsegja má aö Islendingar eigi einnig sin málverkasöfn, þótt heldur sé nú Listasafn Islands ömurleg vistarvera, enda fremur trúboösstöö en lifriki i listum, en þaö er nú önnur saga. Heldur má nú segja aö ferða- manninum sé illa heilsaö og hann kvaddur einkennilega, svona myndlistarlega séö. Risastórar ljósmyndir af landinu prýöa veggina, I flugstööinni og mynda- smiöurinn hefur veriö óvenju heppinn meö veöur, þannig aö al- röng mynd er gefin. Engin lista- verk prýöa flugstööina I Keflavik, sem væri þó kjörinn vettvangur til þess aö kynna aöra list en ull- arvörur og hraunkeramik. Hótel Holt kynnir myndlist Hótelin eru þó öllu betur sett myndlistarlega, þótt æöi misjafnt sé það nú. Eitt hótel sker sig þó úr, en það er Hótel Holt, en þangaö lögðum viö leiö okkar á dögunum, til að sjá nýjar myndir, sem dregnar höföu veriö fram i tilefni aö þvi, aö hóteliö er aö stækka viö sig. Húsnæöi á jaröhæö sem notaö var undir verslun og fl. hefur nú veriö lagt undir nýja gestamót- töku og setustofu, auk þess sem tvær vinstúkur verða á jarðhæð- inni, og hefur ekkert verið til sparaö, að gjöra nú allt sem vist- legast. Hótel Holt hefur veriö rekið af miklum myndarskap i um það bil 16 ár, að mestu meö óbreyttu sniðief frá er talið aö veislusalur- inn Þingholt var tekinn i notkun áriö 1973. Viö þesar breytingar, hefur skapast rými fyrir mörg ný lista- verk, en Þorvaldur Guðmundsson veitingamaöur hefur alla ævi safnað myndum, aö segja má, þvi hann hefur safnað myndum i nær þvi 50 ár. Á hann marga kjör- gripi, eins og gestir hans á Holti og áöur i Þjóöleikhúskjallaranum vissu. Frægar myndir eru eftir sem áöur i matsal hótelsins, og ber þar aö sjálfsögöu hæst ,,úti- máltið” Jóns Stefánssonar, en sú mynd var áratugum saman á hin- um fræga restaurant Frascati, sem var viö Ráöhústorgiö i Kaup- mannahöfn, en eigandinn, eöa stofnandinn fékk nokkra efnilega og siöar fræga myndlistarmenn til þess aö mála „picnic”, eöa úti- máltiö, eins og hún tiökaðist i heimabyggö þeirra. Þá er þar stór oliumynd af bændafólki eftir Gunnlaug Scheving (máluö 1962), myndir eftir Kjarval og Asgrim Jónsson. /,Töfrar Islands". Þessar myndir eru áfram á sinum staö — og veröa þaö, en i nýju gestamóttökunni eru nýjar myndir. Má þar nefna stórt oliu- málverk eftir Gunnlaug Schev- ing, sem sýnir tvær konur með kú sinni og i baksýn er svipmikið landslag. Þetta er stór mynd 2x3 metrar aö stærö. Þá eru þarna „Töfrar Islands” eftir Jón Engil- berts 4.40x2m. Stór mynd, er eitt sinn hékk i Þjóöleikhúskjallaran- um. Þetta er litrik og töfrandi mynd, sem þvi miðurnýtur sin illa i svart-hvitu dagblaöi. Þá er þarna stórt málverk eftir Jón Þorleifsson, sem illu heilli, hefur ekki veriö metinn, sem skyldi á seinni árum. Þá er þarna sem fyrr hin skemmtilega mynd hans af Reykjavikurhöfn. Auk þess eru svo minni myndir eftir Snorra Arinbjarnar, Ninu Tryggvadóttur og fleiri. Og eru þá ótaldar nokkrar frægar Kjarvalsmyndir, þar á meðal hin fræga mynd Tyrkjaránið og mynd frá Borgar- firöi — eystra, liklega máluö áriö 1930. Lágmynd Ragnars Kjartans- sonar er viö suöurinngang hótels- ins. Hún er ca. 4x2 m aö stærö og sýnir Einherja á reiö til Val- hallar, þar sem Þór situr með hamarinn. óöinn riöur i loftinu á hinum áttfætta Sleipni og hrafn- arnir Huginn og Muninn fara fyrir honum. Við innganginn hefur hóteliö komiðfyrir merkilegri mynd eftir Gunnlaug Scheving, en hún er af fóstru listamannsins máluö austur á Seyðisfiröi áriö 1931. Myndin er máluö á pokastriga Refine English Sugar, er þar letraö á bakhliöina. Þetta er ein- kennilega áhrifamikil mynd og hefur vegsauki þessa sykursekks orðið mikill og óvenjulegur. Vinstra megin i fordyri, eöa viö inngang i veitingasalinn eru þrjú fræg dönsk málverk, öll gjörö viö konungskomur hingað til lands. Mynd frá Hafnarfiröi máluö 1936, er Kristján X kom hingaö til lands. Tvær myndir frá komu Friöriks VIII hingaö tillandsáriö 1907. Allar málaöar af frægum hirömálurum. Ein af Vil.Arnesen, og er af konungsskipinu á Reykjavikurhöfn, en hin er af siglingu fyrir Suöurlandi, út af öræfajökli, en hún er eftir Carl Locher, sem var afi Bodil Bergtrup, er á slnum tima var ambassador Dana hér á landi, en hann var þekktur málari i sinni tiö og þykja verk hans kjörgripir. Þaö væri aö æra óstööugan, aö telja upp allar þær myndir, er nú prýöa Hótel Holt. Aö sögn Skúla Þorvaldssonar, hótelstjóra, er gert ráð fyrir að skreyta stóran sal, eða pianóbar með teikning- um eftir Jóhannes Kjarval ein- vörðungu og minni salur verður einnig skreyttur fögrum mynd- listarverkum, en þau salarkynni eru ekki tilbúin enn til notkunar. Meöan viö gengum um hin nýju salarkynni og skoöuöum mynd- irnar, sagöi Skúli Þorvaldsson frá þvi, aö ýmsar aörar breytingar heföu veriö gjöröar á hótelinu, það heföi nú sjálfvirk- skiptiborö, þannig aö hótelgestir gætu hringt beint út, og fleira heföi veriö gjört til þæginda. Hér hefur veriö hlaupiö nokkuö yfir þá merku listkynningu, sem Hótel Holt stundar, jafnframt þvi aö vera fyrsta flokks hótel. Mættu sem flest hótel taka sér Hótel Holt til fyrirmyndar aö þessu leyti. Jönas Guðmundsson skrifar um myndlist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.