Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 15

Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 15
Sunnudagur 2. ágúst 1981 og niunda bekk. Sumt er hægt að kenna saman, annað ekki.” — Gætirðu lýst deginum i stuttu máli, eins og hann gengur fyrir sig. ,,A sumrin er fólk vakiö klukk- an átta og þá er boröaður morgunmatur. Eftir hann er haldinn fundur, þar sem fjallað er um gærdaginn og daginn fram- undan. A hann verða allir að mæta. Eftir fundinn er tekið til við heimilisverk og þar hefur hver og einn sitt verk aö vinna, þvo, ryksuga, og svo framvegis. Um hálf-tiuleytið er fariö út aö vinna og unniö fram að hádegi. Eftir matinn er aftur haldiö til vinnu, sem lýkur svo laust fyrir fjögur. Þegar búið er að drekka kaffi er svo eitthvað gert til dægra styttingar, en þar er úr nógu aö velja, sem áöur er nefnt. Um helgar förum viö svo i ferðalög eitthvað út á land . Núna I júni rættist gamall draumur þegar við fórum i mánaðarreisu til Norður- landanna, Noregs, Sviþjóöar, Danmerkur og Færeyja. Við fórum á heimilisbilnum og ókum vitt og breitt um. Viö höfðum verið að afla f jár siðan um haustið, til aö mynda gáfum við út blað sem bar nafnið Aform. Með þvi að safna slatta af auglýsingum gátum viö gefiö blaðiö ókeypis.” Reynt að taka á vandamálunum áður en þau verða yfirþyrmandi - En hvernig gengur þeim krökkum sem hér hafa verið að spjara sig þegar þau fara af heimilinu? „Það er mjög mismunandi eins og gengur. Sumir hafa I engin hús að venda. Það hefur lengi verið okkur kappsmál að koma á fót eftirmeöferðarheimili, og nú er það nýstofnaö. Það er eins konar unglingapensjónat, þar hafa þeir herbergi þaðan sem þeir sækja vinnu eða skóla. Það er ólikt þessu unglingaheimili að þar er meiri ábyrgð og meira frjálsræði. Þetta er eiginlega venjulegt heimili og þar er pláss fyrir sex til sjö krakka. Nú, sumir fara heim til sin að lokinni dvöl, aörir fara i heimavistunarskóla og enn aðrir eru sendir i sveit og stunda þaðan skóla.” — Sendir...? „Þaö er nú yfirleitt með þeirra samþykki — enda út i hött að ætla að neyða einhvern til að vera uppi i sveit.” — Svona að lokum: Hvernig er aðstaöa fyrir unglinga almennt sem þurfa á hjálp að halda? „Það horfir til batnaðar þótt hægt fari. Nú er reynt að taka á vandamálunum áður en þau verða yfirþyrmandi. Aður var þaö þannig að ekkert var gert eða gripið inn i fyrr en vandræðin voru oröin til staðar og svo var krökkunum bara stungið inn til viðgerðar. Nú blasir allt annað viö. Skóla- sálfræðingar eru farnir aö hafa meira samband viö okkur. Al- mennt þokast þessi mál í fram- faraátt.” „Alla vega vil ég frekar vera hér en heima En hvernig skyldu málin horfa vib frá sjónarhóli unglingsins og hvaða ástæður skyldu liggja að baki dvalar hans? Ég ræddi lltillega við vistmann á Unglingaheimilinu, nánar til- tekið stúlku. — Hvernig stóö á þvi að þú varst send hingað? „Ég drakk mjög mikið og mamma vildi ekki að ég væri meb þeim krökkum sem ég umgekkst. Ég var sjaldan heima þvi það var alltaf stöðugt rifrildi. Þetta endaði með þvi að mamma sendi mig hingaö og hér er ég búin að vera i mánuö.” — Hvenær ferðu út? „Ég veit það ekki. Kannski i vetur, ef til vill fyrr.” — Hvernig fellur þér? Finnst þér ekki um neina frelsisskerö- ingu að ræða? „Það eru ab visu dálitið strang- ar reglur um útivistartima, en mér likar vel við starfsliðið. Alla vega vil ég frekar vera hér en heima...” Ég ræddi aukinheldur við strák sem dvelur á Unglingaheimilinu og segja má að hann hafi tekið i sama streng að mestu leyti. Ingvar tjáöi mér að ástæðan sem stúlkan sagði vera fyrir dvöl sinni á Unglingaheimilinu væri ekki óalgeng örsök meðal vist- mannanna i heild. Aöur hefur verið drepið laus- lega á blaö sem Unglingaheimilið gaf út og bar nafniö Aform. Það kom út I april siðastliönum og hefur að geyma ýmislegt fróðlegt um Unglingaheimilið og unglinga almennt. Ég fékk góðfúslegt leyfi til að birta kafla úr blaðinu og það sem á eftir fer má kalla forystu- grein eða leiðara: „A siöastliðnum vetri hefur umræðan um umglingavandamál verið ofarlega á baugi. Umræöan reis hæst i haust þegar hneyksl- aðir ibúar Reykjavikur, ásamt borgarstjórn, vittu framkomu unglinga I miðbænum. Við sem störfum að unglingamálum og þekkjum til þessara mála undrumst skeytingarleysi yfir- valda og fordóma eldri kyn- slóöarinnar. Afbrot og óknyttir unglinga eru vissulega fyrir hendi en þaö virðist sem yfirvöld sjái ekki samhengið milli þess og hins algera aðstööuleysis sem ung- lingar búa viö. Þrátt fyrir þokka- legt starf Æskulýðsráðs er ástandiö algerlega óviðunandi. Unglingar i Reykjavik eiga engan samastað I mibbæ Reykja- vlkur, þvi gera þeir jafn ömur- legan stað og Hlemm að sam- komustað sinum, eða það, sem verra er, spilabúllur, sem ungir athafnamenn reka og þar sem eingöngu gróðasjónarmið ráða rekstrinum, Meðan ástandið er jafnslæmt og raun ber vitni ættu menn ekki að gera sér vonir um breytt og betra ástand i málum unglinga. Það fer ekki milli mála að ef um væri aö ræöa annan þjóö- félagshóp, það er hóp yfir kosningaaldri, mundu ráðamenn aldrei þora að hegða sér á jafn óábyrgan hátt og þeir gera I þessu máli. Afskiptaleysið kostar þjóðfélag- ið mun meira Ráðamenn ættu þó að gera sér grein fyrir þvi að þetta afskipta- leysi i málefnum unglinga kostar þjóðfélagiö mun meira en það aö skapa unglingum mannsæmandi aöstöðu til að eyða tómstundum sinum og þar með aö koma i veg fyrir aö unglingar þurfi að eyða fristundum sinum á mann- skemmandi stööum. Sjái borgar- yfirvöld ekki sóma sinn i þvi að gera stórátak i þessum málum er viðbúið aö kjósendur hugsi þeim þegjandi þörfina. Unglingar Stór-Reykjavikur hafa engu að tapa og það er nöturlegt ab horfa fram á það að þeir þurfi að gripa til örþrifaráða til þess að á þá sé hlustað.” Svo mörg voru þau orö og vist er að margir gætu tekib undir þau. 1 rauninni er fáránlegt að i velferbarrlki sem tslandi þurfi sumir hópar að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum. En þiaö er eins og sumir fæöist fer- tugir. Þessari grein um Unglinga- heimiliö i Kópavogi var aldrei ætlað aö verða nein fræðileg út- tekt á þvi eða starfstilhögun og árangri. Henni var aöeins ætlaö að vekja máls á þvi bágborna á- standisem rikir i málefnum ungl- inga, þótt sums staöar þokist smávegis i rétta átt. Einnig var ætlunin að kynna litillega starf- semina en hún hefur farið merki- lega lágt. Ef greinin hefur orðið til þess að auka skilning einhvers á þörfinni á slikum stofnunum þá er tilganginum náö- -hj Samhengið milli afbrota og aðstöðuleysis ungllngaslðan ...miðað við að þetta er unglingaheimili — Unglingarnir á Unglingaheimilinu segja frá Pistillinn i dag er tekinn úr Aformi, blaði Unglingaheim- ilis rikisins, en um er að ræða þrjár stuttar frásagnir af þvi hvernig dagurinn er á ung- lingaheimilinu. Morguninn byrjar með þvi að maður rétt staulast aö vaskinum og þvær sér i fram- an til að hressa sig upp. Við þurfum að vera komin niöur að morgunverðarboröinu klukkan hálf niu og fáum korter til aö boröa, en þá byrj- ar morgunfundur. Morgun- fundir eru á hverjum morgni nema laugardaga og sunnu- daga. Eftir morgunfund höf- um viö korter til að gera hvað sem er. Allir starfsmenn á heimilinu og vistmenn eru þrælhressir. Skólinn byrjar vanalega klukkan hálftiu til hálftólf, þá byrja svoköllub heimilisverk sem bæði krakk- ar og starfsmenn taka þátt i. Eftir mat eða klukkan eitt byrjar skólinn aftur og er til korter I fjögur. Enþá geta all- ir krakkar sem ekki eru I straffi fariö f Utivistarleyfi til kl. 7. Ef einhver kemur of seint þá er ákveðin refsing (straff) sem allir á morgun- fundi ákveða. Eftir kvöldmat getur maður fengiö útivistar- leyfi til kl. 11. Svona sirka kl. 11.15 er kvöldkaffi en allir verða að vera komnir upp kl, hálftólf. Þá getum viö spjallað saman tiltdlf, en þá verður að vera komin ró á staöinn. Þaö er ágætt hérna miðað við aö þetta erunglingaheim- ili. —gulll Taflmót eða tþróttir Dagurinn byrjar á þvi aö maöur er vakinn klukkan átta og er þá kominn á fætur fyrir hálfniu og þá er boröaöur morgunmatur. Svo er morg- unf undur og þá er rætt um þaö sem geröist daginn áður og reynt aö ræða málin og miöla málum. Klukkan hálftdlf eru heimilisverk og taka allir þátt i þeim, svo er matur. Klukkan eitt byrjar skdlinn aftur. 1 fri- minútum er verið að spila eða tefla. Skdli I dag er til klukkan þrjtl en þá er frjáls timi. Það er misjafnt hvað gert er í hon- um, taflmdt eða Iþrdttír. Eftir skdla á maöur frl, sumir fara I útivis»arleyfi og aörir eru heima og dunda sér við eitt- hvað. 1 kvöld verður farið á bíó, þangað til verður spilað eða tefltog talað saman. andri Tilbúinnaðhefja daginn á ný Dagurinn byrjar á þvi að starfsmenn vekja alla á heim- ilinu og þeir fara niður I morg- unmat og morgunfund. Þar eru rædd ýmis vandamál sem koma upp hér og þar. Til dæmis var rætt um það i dag, fimmtudag, hvort tveir félag- ar mættu vera saman i hber- bergi. Siðan er skóli, tveir timar fyrir hádegi og siöan heimilisverk. Um 12 er borðaö og rabbað saman. Eftir mat- inn er fri til eitt, og svo skdli. Þegar skólinn er búinn er ann- aöhvort farið i Utivistarleyfi eða sund og abrar fþrdttir. Klukkan sjö er borðað og rabbað saman um kvöldið hvað á að gera. Oftast gengur kvöldiö rólega fyrir sig horft á sjónvarp eða teflt, spilað og fleira.Hálftdlf er drukkið kaffi og sfðan fariö að sofa tii að vera tilbUinn að hef ja daginn á ný. —keli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.