Tíminn - 02.08.1981, Side 7

Tíminn - 02.08.1981, Side 7
Sunnudagur 2. ágúst 1981 Hinir heilabiluðu > ern mestu vandamálin Það er visvitandi sem ég hef geymtmér þar til siðast að fjalla um einn hóp aldraðs fólks sem er beturfer ekkimjög fjölmennur en skapar vandamál i öfugu hlutfalli við fjöldann. Það eru þeir sem aldurinn hefur leikiðsvo illa and- lega að þeir eru ekki lengur með sjálfum sér. . Þetta heilabilaða fólk er ákaflega erfitt viðureignar þvi það hefur misst taumhald á veruleikanum og lifir oftar en ekki i imynduðum heimi. Þeir sem þjást af þessar.i andlegu hrörnun þurfa stöðuga gæslu, 24 tima sólarhringsins, þvi aldrei er að vita hvenærþað getur farið sér að voða ,þetta fólk þrifur sigekki, það bleytir sig hvenær og hvar sem er og getur verið svo dyntott að ómögulegt er við það að eiga. Þetta er vissulega leiðinlegur endir á ævinni en verður samt sem áður að horfast i augu við það. Allir sem ég talaði við voru á einu máli um að af þessu fólki stafaði ekki sist það ófremdar- ástand sem nú rikir í öldrunar- málum hér, eða réttara sagt þvi að ekki er til neinn staður fyrir það. Þetta fólk er mjög oft af- skaplega hresst likamlega en getur trauðla dvalist hjá aðstand- endum vegna þess, eins og Kol- brún Agústsdóttir hjá Heima- hjúkrun sagði, ,,Þeir eru verri en börn. Fólk getur aldrei vikið sér frá, ekki eina einustu minútu og það tekur mjög á taugarnar að fylgjast með þvi.” Þetta illa stadda fólk getur heldur ekki dvalist inni á venjulegum hjúkrunarheimilum innan um annað gamalt fólk þvi aðstæður þess eru allt aðrar og eins er lik- legt að það sé ekki beinlinis heppilegur félagsskapur fyrir þá sem halda andlegri greind sinni þrátt fyrir elli. Enginn staður hefur verið reistur fyrir þetta fólk og nú er það dreift um allan bæinn. Sumir eru hjá að- standendum, aðrir búa jafnvel einir þó það sé að bjóða hættunni heim, enn aðrir eru inni á sjúkra- húsunum, á elliheimilum tvist og bast eða vistheimilum. Helst að reynt hafi verið að búa um það i Hátúni, enþar eru fá rúm aflögu. Þór Halldórsson i Hátúni sagðist efast um að þeir væru fleiri en tvö til þrjú hundruð sem væru svo illa heilabilaðir að þeir gætu ekki á neinn hátt séð um sig sjálfir en þeir eru til vandræða annars staðar og ekkert pláss er til reiðu fyrir það nema með höppum og glöppum. Húsnæðið við Snorra- braut mun að visu ekki hvað sist ætlað fyrir þennan hóp og þar verða 44 rúm svo eitthvað mun það draga úr neyðinni,en Þór Halldórsson sagðist telja þá ráð- stöfun mjög vafasama. „Þetta fólk þarf allt öðruvisi meðhöndlun en annað gamalt fólk. Það verður að hanna hjúkrunarhúsnæði með tilliti til þess. Á Snorrabrautinni verður það á efstu hæð, sem ég held að sé mjög varasamt, og útivistar- möguleikareru litlirsem engir en útivistarmöguleikar eru einmitt mjög mikils virði fyrir þetta fólk. Fyrir þvf hefur ekki verið hugsað.” Það er svo ótalmargt sem ekki hefur verið hugsað fyrir i sam- bandi við hjúkrunarmál aldraðra. Ég býst ekki við að hafa nemaréttkrafsað i topp Isjakans i þessari grein en megi hún verða til að vekja athygli á máli sem litið hefur verið sinnt — þrátt fyrir allt. Eitthvað hefur orðið útundan en það verður að hafa það. Og ekki má heldur gleyma þeim sem vinna að þessum málum. „Þetta er erfið og niður- drepandi vinna,” sagði Kolbrún Agústsdóttir. „Um framför er sjaldan að ræða og þá oftast skammvinna, annars sér maður ekkert nema /afturför.” Liklega er ekki nema sjálfsagt að menn vinni þau verk vel sem þeir hafa tekið aö sér en ekki fór hjá þvi að ég tæki sérstaklega eftir þvi hversu gifurlega áhugasamir allir þeir sem ég talaði við voru um að leggja aldraða fólkinu lið á sem mestan og bestan hátt. Þannig er lika von til þess að málið leysist — á endanum. —ij.tök saman. Laus staða Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja i Keflavik er laus til um- sóknar staða skólasafnvarðar (1/2 staða). Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásajnt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 20. ágúst n.k. — Um- sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 23. júli 1981 ERUM FLUTTIR með alla starfsemi okkar að Smiðjuvegi 3, Kópavogi Sími: 45000 (Beinn sími til verkstjóra: 45314) PRENTSMIÐIAN H F. ATHUGIÐ Endursöluverð ZETOR dráttarvéla er eitt það besta sem þekkist umboðið: ISTEKK" íslensk-tekKneska verslunarfelagió h.f. Lagmula 5. Simi 84525. Reykjavik Þaft ler vel um þig i nýja ZETORNUM og þú getur hlustaft á útvarpift án sérstakra hlustun- artækja þótt vélin sé i vinnslu. ZETOR 5011 ZETOR 7011 ZETOR 7045 Nýtt mælaborð meft öllu sem þar þarf að vera. Nú bjóðum við algerlega endurhannaða ZETOR dráttarvél. t»að hefur verið stefna ZETOR-verksmiðjanna að þróa framleiðsluvöru sina eftir kröfu timans Auk annarra endurbóta, var sérstaklega haft í huga ÖRYGGI — ÞÆGINDI — OG HEILSA ÖKUMANNSINS Algerlega endurhannað öryggishús, vel þétt og hljóðeinangrað, bólstrað og með einstaklega góðum hita ZETORINN hefur á undanförnum árum verið mest selda dráttarvélin á Islandi 6 af hverjum 10 islenskra bænda völdu ZETORINN á siðasta ári Vélunum fylgja allir aukahlutir, sem fylgdu eldri gerðinni ^ETOR MEST SELDA DRÁTTARVÉLIN Á ÍSLANDI ★ Nýtt mælaborð ★ Gólfskipting ★ Hangandi petalar ★ Stór og góð miðstöð ★ Betra útsýni ★ Stjórnbúnaður á dráttarkrók og beisli i ekilshúsi ★ Aukin vinnuljós ★ Oliutankur undir húsi ★ Sparney tnari ★ Og að sjálfsögðu útvarp

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.