Tíminn - 02.08.1981, Page 23

Tíminn - 02.08.1981, Page 23
Sunnudagur 2. ágúst' 1981 t r*4 - VIÐTÖKUR FÓLKS OG VIÐBRÖGÐ HANS magni upp i hreinan viöbjóð. „Rab” brigslar Kjarval einnig um óþjóölegheit i „Jónsmessu- nótt”, ekki er fjarri lagi aö marg- ir landar hans hafi hugsaö á þá lund. I dómi i Timanum i október 1919 segir: „Sumir halda aö Kjarval geti ekki málaö hversdagslegar og raunverulegar myndir.” Margir hafa talið að Kjarval væri ekki raunverulegur málari. Hann málaöi ekki ljósmyndir, hvers- dagsleikinn var viðs fjarri i verk- um hans. Fólk hefur vart veriö meötækilegt fyrir „fantasium” og þvi ekki viö þvi aö búast aö Kjarval kæmist inn á gafl hjá ís- lendingum i fyrstu atrennu. Ef litið er á viötökur sem nýjunga- málarar fengu erlendis mátti. Kjarval vera sæll meö sin fyrstu ár á málarabrautinni. 1863 var t.d. haldin i Paris „titskúfaöra- sýningin”, þar tóku þátt meist- arar á borö viö Pissaro, Whistler, Fantin-Latour, Cézanne og Manet. Styrkir og ítalíuför 20. janúar til 2. febrúar 1920 hélt Kjarval málverkasýningu i sal Antons Hansens við Köbmager- götu i Kaupmannahöfn. Dönsku blööin fóru lofsamlegum orðum um sýninguna,'brot úr þeim birt- ust i islenskum blööum, Islend- ingum til uppfræöslu um ágæti meistarans. G.S. sagöi i Tim- anum: „Mun það gleöja alla að Kjarval hefur fengið svo glæsi- lega dóma um list sina, og er þaö heiöur fyrir islensku þjóöina aö eiga slikan mann.” Hvort sem þaö hefur veriö orö- um G.S. aö þakka ellegar skyn- semi ráðamanna, þá fékk Kjarval listamannastyrk i febrúar 1920. Þetta var 2000 króna feröastyrk- ur, hæsta upphæð sem málurum og myndsmiöum var veitt það árið. Rikharöur Jónsson fékk sömu upphæö. Kjarval hélt til Rómar til aö kynnast nýjum stefnum og sjónarmiöum. Einar Benediktsson reit svo um ttalíuförina: „Feröin til ttaliu hefur aflað honum miklu meiri framfara, heldur en gerst hefir um aöra listamenn vora, vegna þess að hann mun hafa unniö langbest að þvi aö ná sjálfstæöi gegnum alla erfiöleika, áöur en hann fór suöur og einmitt þegar hann dvaldi þar, vildi svo til aö hann var á þeim aldri, er breyt- ingar veröa einatt miklar i hug- um og lifsskoðunum manna.” Einar talaöi siöan um aö oröiö heföu stefnuhvörf I list Kjarvals. Þó viröast ekki allir hafa fellt sig við þau hvörf þvi þegar nöfn styrkþega listamannastyrksins voru birt fyrir áriö 1921 var nafn hans ekki aö finna þar á meðal. Eins og nærri má geta voru vel- unnarar meistarans ekki alveg sáttir viö þennan gang mála. Ekki var Kjarval þó alveg á vonarvöl þvi 1921 var stofnað styrktarfélagiö Pictor. Þaö lagöi Kjarval til ákveöna fjárhæö reglulega i þrjú ár. Ráöamenn sáu einnig aö sér aö ári, Kjarval fékk listamannastyrk 1922, einnig seldi hann æ fleiri málverk, menn voru farnir að meötaka list hans. //Sveinsbréf á nýrri leið..." Sumariö 1921 var haldin iist- sýning aö tilhlutan Listvinafé- lagsins og var Kjarval meðal þátttakenda. 1 umsögnum um þessa sýningu kvaö viö nokkurn annan tón en áöur haföi gert. Einar Ben. sagöi m.a. i Morgun- blaöinu: „1 myndum Kjarvals er mikið gleöiefni aö sjá gagngeröa breytingu eöa réttara sagt þró- un.... i áttina til meiri löghlýöni og lotningar fyrir visindum list- arinnar.” 1 umsögninni kom fram aö tvær stefnur toguöust á um listamanninn en „myndin af konu hans... er eins og sveinsbréf hans á nýrri leið til mikilla verka, sem þessum frumgáfaöa og starf- sterka málara vorum er ætlað að ganga til mikilla áhrifa á list- mennt Islendinga.” Ekki viröist þessi breyting hafa verið Kjarval i óhag þvi á einka- sýningu sem hann hélt i október 1921 seldust nær allar myndir hans, „X” i Timanum fannst þaö „furðulegt, þegar litið er á fjár- málaástæöur manna.” 1 dómum blaðanna kom i ljós aö fólk var almennt oröiö sammála um aö Kjarval væri mikill lista- maður og aö gagnrýnisröddum hafi fækkaö. Visir: „Hann hefir veriö sistarfandi leitandi lista- maður. Engin sýningin hefir verib annarri lik.... En þó hefir jafnan veriö um hann deilt... Nú ber enginn lengur á móti þvi aö Kjarval er meistari.” Morgun- blaöiö: ...allir viðurkenna þaö nú, aö i Kjarval eigum viö ein- kennilegan listamann meö mikl- um hæfileikum.” I Mogga er þvi ennfremur spáö aö sýning hans veröi „vafalaust vel sótt af list- vinum bæjarins”. Sem var og raunin. Myndir hans voru farnar aö seljast og fólk farið aö streyma á sýningar hans. Hvort þaö var vegna þess aö fólk hafi veriö farið að venjast honum eða vegna breytinga sem list hans tók i ttaliuförinni skal ósagt látiö. Vafalaust eru fleiri skýringar til- tækar. Kjarval sjálfur 1922 En hvaö sagöi Kjarval sjálfur um Iist sina og viöbrögö fólks viö henni á þessum árum. Gluggum i viötal við hann i Morgunblaöinu 23. april 1922: „Ég kom á þeim tima út I heim- inn sem „reaktiónin” — mótstað- an, byrjaði gegn hinum klassisku skólum og stefnunum gömlu. Ég var opinn fyrir öllu og tilbúinn til aö læra af hverju sem var án þess þó aö gera mér fyllilega grein fyrir hvernig hollast myndi að byrja. Ahrifin sreymdu yfir mig sem foss marglitra geisla og fannst mér ég vera klettur sem eyddist og molnaði er flóöið dundi sem sterkast. Var þá eins og kletturinn ætti innra ljós sem mundi slokkna ef ekki fjaraði áhrifunum. Þannig var um mig er ég byrj- aði aö frama mig i listum. Sjálf- um hefir mér veriö borið á brún að ég væri sjaldan sjálfum méi likur og sundurleitur i verkum minum og er þetta ekki aö ósekju, þvi svo er fljótt á aö lita fyrir þann sem heimsækir mig og sér það sem ég hefi gert, aö ég muni ekki viö eina f jölina felldur. Ég er þess fullvitandi og reyni ekki aö skýla þessu, þvi þá færu landar minir þess á mis, aö sjá hvernig unglingurinn hefur unnið meban hann var aö skoða heiminn, sem honum var ókunnugur, nema i munnmælum og kynjasögum. Mér varð brátt ljóst, aö gömlu skólarnir — akademiin — voru ekki eins og ég bjóst viö. Þaö var kominn doði i listarandann, sem átti að rikja þar og ágætis list- menjar frá fornum timum, sem skólarnir áttu nóg af, stóöu og biöu eftir góðum kennurum, sem áttu aö opna augu lærisveinanna fyrir þvi góða, sem er gert — undirstöðunni undir þab sem þú og ég eigum að byggja á. Ég kynntist listamönnum af öllu tagi, góðum og vondum: ég mætti nýjum stefnum, sem fóru hliöar- götur við hina æöri skóla.... Höfuösmennirnir voru óhræddir viö dóma, þvi aö þeir vissu aö æösti dómur er seinastur, sem mannveran ræöur ekki viö. Þeir höfðu dauöann fyrir baktjald, en horföu inn i ljósiö, sem var fullt af undarlegum formum og sundur- leitum litum. Og þeir smiöuöu myndir og hluti, sem þeir halda aðheyri framtiöinni til,— ....Einn af þessum mönnum var ég. Þaö bjargaði uppruna minum, aö ég fyllti flokk þessara manna — en ég var kominn utan til þess aö læra og sjá, og ég ákvaö aö ganga i gegnum þann gamla skóla til þess að finna það sem átti aö vera þar. Og oft vann ég sem hver annar erfibismaður ellefu stund- ir á dag viö aö teikna og mála. Og ég fann smám saman þaö sem ég hálfvitandi leitaöi aö —aö læra og kunna — ég læröi aö velja og hafna. Þá varð mér smám saman ljóst, aö ég þurfti aö skilja samtiö mina, til þess aö geta dæmt um nýtt og gamalt i listum. Ég vissi, aö tsland átti enga fortið i málaralist og ábyrgöartilfinning- in vaknaði, er fylgir einstaklingi hverjum. Ég vildi vita deili á þvi sem var og er og sökkti mér þvi niður á allar stefnur og byggöi yfir hugmyndir minar og fann nýjar stefnur. Ég lærði aö hugsa sjálfstætt I listheimi minum: væri ég viðvaningslegur stundum, var þaö bara þjóðerni mitt.” Viðvaningslegar viðtökur Kjarval segir þarna aö hafi hann veriö viövaningslegur stundum hafi þaö bara veriö þjóö- erni hans. Sama mætti e.t.v. segja um þær viötökur sem lista- maöurinn fékk hér, aö þær hafi verið viðvaningslegar og aö þaö hafi bara veriö þjóöerniö. tsland átti enga fortiö i málaralist en langa fortið i þjóðlegum bók- menntum, og þvi erfitt fyrir bókaþjððina aö meötaka hina nýju stefnu sem Kjarval bar inn i landið i upphafi. t april 1922 hélt Kjarval yfirlits- sýningu frá siðustu 10 starfsár- unum i húsi Egils Jacobsen kaup- manns. I dómi um hana komst Ragnar Asgeirsson m.a. svo aö oröi i Morgunblaðinu: „Um engan islenskan málara mun deilt jafn mikið og um Kjarval. Þaö er von aö svo sé þar sem ts- lendingar hafa aldrei dýrkaö aðra list en orösins i riti og ræöu og skortir þar af leiðandi tilfinnan- lega greind til aö kunna aö meta list i litum og dráttum. Stara þvi margir sem tröll á heiðrikju þegar eitthvaö nýtt ber fyrir auga... Einn segir öörum frá, og vitleysan gengur mann frá manni og myndast við þaö „skoöun al- mennings”. Vill oft fara á þá leið i stórbæj- unum, þar sem fjöldinn er litt vanur aö hugsa sjálfstæðar hugs- anir. Og heimskinginn fordæmir þaö sem hann ekki skilur.... Þaö þarf krafta til þess aö sigrast á mótstöðu fjöldans og skilnings- leysi, en þaö hefur Kjarval gert.” A sýningunni 1922 voru nokkrar myndir i kúbiskum stil. Um þær sagöi M.J. i Visi af talsveröu um- burðarlyndi: „Það er varla von aö menn kunni strax aö meta þær. Menn eru svo vanir aö spyrja hvaö þetta og þetta sé.... En i raun réttri er þessi spurning, af hverju myndin sé æfinlega auka- atriöi, frá listarinnar sjónarmiöi, hversu skýr sem myndin er.” //...auk þess sem hún er mjög lik" Næst var þaö aö frétta af Kjar- val aö hann hélt sýningu i húsi Listvinafélagsins um mánaöa- mótin nóv.-des. 1923. Þar voru myndir af ýmsu tagi en mesta athygli vöktu myndirnar af fjór- um fyrrverandi bankastjórum Landsbankans. Ekki voru blöðin sammála að öllu leyti um ágæti þessara mynda. Visir og Timinn voru sama sinnis um aö mynd- irnar af Lárusi Sveinbjörnssyni, Tryggva Gunnarssyni og Birni Sigurössyni heföu tekist vel, en Timinn sagöi aö myndin af Birni Kristjánssyni hefði tekist miður: „Ctlit mannsins hefir freistaö málarans til aö nota i óhófi suma ; höfuöliti regnbogans.” Visir sagöi j aftur á móti aö myndin af Birni Kristjánssyni væri „...afbragðs „frisk” og full af veruleika og lifi, auk þess sem hún er mjög lik.” Þarna sést enn aö menn voru ekki alveg á eitt sáttir um list meistarans. Engu aö siöur var þessi sýning vel sótt og þröngt var á þingi i sölum Listvinafélags- hússins þá daga sem Kjarval sýndi þar. Timinn skrifaði: „Margir komu af þvi þeir vilja alltaf sjá, hversu þessum ein- kennilega málara farnast.” Enn var talað um Kjarval sem ein- kennilegan mann en aðsóknin bendir til þess aö list hans hafi verið aö vinna sér sess og hann farinn aö vekja meiri athygli en áöur. Ónáttúruleg og óskiljanleg málverk Þótt Kjarval ætti eftir aö mála lengi eftir þetta voru menn ekki alltaf sammála um ágæti listar hans og sem smádæmi má taka skrif Jóns Sigurössonar i Ystafelli i april-júni hefti Iöunnar 1928 en þar sagði m.a.: ...Nýjasta mál- verk eftir Kjarval eru ónáttúru- leg og óskiijanleg öllum almenn- ingi.” Unnendur listar Kjarvals voru fljótir að svara fyrir sig og „Nafn á Krossgötum” svaraði Jóni m.a. á eftirfarandi hátt I Visi: „Ég sem þekki Jóhannes S. Kjarval og myndir hans, get sagt Jóni á Ystafelli þaö, aö mjög mikill hluti almennings skilur bæöi eldri og nýjustu Kjarvalsmyndir, og er mér þvi ljúft aö lýsa ósanninda- manni Jóni á Ystafelli svo frá þessu, og vekja eftirtekt hans á þvi, aö hann sé prédikari, sem vill leiöa fólkið burt frá Kjarvals- myndum. Jón á Ystafelli slær á ólistræna strengi sina sem hann ' vill aö fólkiö trúi á.” Þessi togstreita milli fylgis- manna Kjarvals og hinna sem meötóku hann ekki, var til staöar alla hans tiö og er jafnvel enn, þó hún sé hverfandi litil I dag. Mest var hún Hklega á fyrstu árunum eftir aö hann lauk námi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.