Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 4
4 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
9°
7°
6°
7°
6°
9°
7°
11°
9°
12°
16°
15°
12°
9°
20°
6°
22°
16°
Á MORGUN
3-8 m/s.
MIÐVIKUDAGUR
5-10 m/s.
-1
-1
-1
0
0
1
0
1
0
0
-5
-1 -1
1
1
1
0 2
3
33
LÍTIÐ AÐ GERAST
Það verður ekki
fyrirferð í vindinum
í dag. Hægviðri og
vindátt breytileg.
Á morgun er helst
að sjá að dálítill
vindstrengur af
norðaustri nuddist
við vestustu annes
á Vestfjörðum. Á
miðvikudag hlýnar
nokkuð á landinu
með rigningu eða
slyddu á austur-
helmingi landsins.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
VINNUMARKAÐUR Starfsmennta-
sjóðir verkalýðshreyfingarinnar,
Landsmennt og Starfsafl, hafa
breytt reglum sínum þannig að nú
munu þessir sjóðir styrkja félags-
menn verkalýðshreyfingarinnar
um allt land til að taka bílpróf.
Sigurður Bessason, formaður
Eflingar, segir að bílprófið sé
grunnmenntun sem allir þurfi á
að halda.
„Þetta er fyrst og fremst fólk
sem er að koma inn á vinnu-
markaðinn og er að afla sér
menntunar. Hluti af þeirri
menntun er bílprófið sem er
notað við gríðarlega mörg störf,“
segir Sigurður, „og við erum bara
að styðja við bakið á þeim sem
ekki hafa sótt sér þessa
menntun.“ - ghs
Starfsmenntasjóðir:
Styrkja fólk til
að taka ökupróf
SERBÍA, AP Boris Tadic, forseti
Serbíu, hyggst boða til kosninga
nú þegar samsteypustjórn
landsins er fallin. Búist er við að
Tadic skýri frá
þessu í dag, og
verða kosning-
arnar líklega
haldnar í maí.
Vojislav
Kustunica
forsætisráð-
herra, sem eins
og flestir
Serbar er
andvígur stofnun sjálfstæðs ríkis
í Kosovo, sleit stjórnarsam-
starfinu eftir að ráðherrar í
stjórninni, flokksbræður hins
Evrópusinnaða Tadic forseta,
sögðust vilja halda áfram að
sækjast eftir aðild að Evrópusam-
bandinu þrátt fyrir að Evrópu-
sambandsríkin styðji flest
sjálfstæði Kosovo. - gb
Stjórnarslitin í Serbíu:
Tadic boðar til
kosninga í maí
BORIS TADIC
BANDARÍKIN, AP Demókratar í
Bandaríkjunum veltu því mjög
fyrir sér í gær hvort Barack
Obama hafi náð hámarksfylgi
sínu meðal þeldökkra Banda-
ríkjamanna, en meira þurfi til
eigi hann að geta sigrað repúblik-
anann John McCain í forseta-
kosningum í haust.
Obama fór létt með að sigra
Hillary Clinton í forkosningum í
Wyoming á laugardag, og þykir
sömuleiðis eiga vísan sigur í
næsta prófkjöri flokksins, sem
verður haldið í dag í Mississippi.
Næsta stóra prófkjörið verður
ekki fyrr en í Pennsylvaníu þann
22. apríl, þar sem kosið er um
158 kjörmenn. Obama hefur
þegar töluvert forskot á Clinton,
en úrslitin ráðast þó af afstöðu
ofurfulltrúanna svonefndu, tæp-
lega 800 forystumanna Demó-
krataflokksins sem geta greitt
atvkæði að eigin vild á lands-
þingi flokksins í lok ágúst.
Bill Clinton, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna og eiginmað-
ur Hillary, mótherja Obamas í
baráttunnu um að verða forseta-
efni flokksins, sagði í Mississippi
um helgina að saman myndu þau
verða gersamlega ósigrandi, og
að Hillary væri svo sannarlega
að íhuga þann möguleika.
Obama sagði hins vegar of
snemmt að ræða þetta, fyrst
þyrftu þau að fá niðurstöðu um
það hvort verði forsetaefni
flokksins: „Þið eigið ekki eftir að
sjá mig berjast fyrir því að verða
varaforsetaefni - ég er í forseta-
framboði.“
Repúblikaninn John McCain
þarf hins vegar á næstu vikum
að verja orku sinni fyrst og
fremst í það að halda sér í sviðs-
ljósi fjölmiðla og afla meira fjár
til hinnar eiginlegu kosningabar-
áttu, sem hann þarf að heyja við
annað hvort Obama eða Clinton,
eða hugsanlega þau bæði.
„Ég held að það verði mjög
spennandi að fylgjast með
þessu,“ sagði hann um kosninga-
baráttu Demókrataflokksins og
gerði sér fulla grein fyrir því að
hann þurfi að hafa fyrir því að
beina athygli fjölmiðla að sjálf-
um sér.
„Þetta þýðir að ég verð að
leggja harðar að mér,“ sagði
hann við blaðamenn fyrir helgi,
en bætti því við að enn sé „mjög
langur tími frá mars og fram í
nóvember. Þetta er langt ferða-
lag.“
gudsteinn@frettabladid.is
Bill segir að saman
yrðu þau ósigrandi
Barack Obama fór létt með að sigra í prófkjöri í Wyoming um helgina og er
sömuleiðis talinn eiga sigurinn vísan í Mississippi í dag. Bill Clinton segir að
Hillary og Obama verði ósigrandi, bjóði þau fram saman í forsetakosningum.
OBAMA Í KOSNINGABARÁTTUNNI Þarna stillir hann sér upp með eins konar lukku-
dýri háskólans í Wyoming. NORDICPHOTOS/AFP
Þið eigið ekki eftir að
sjá mig berjast fyrir því
að verða varaforsetaefni - ég er í
forsetaframboði.
BARACK OBAMA
FRAMBJÓÐANDI UM AÐ
VERÐA FORSETAEFNI DEMÓKRATA
FÉLAGSMÁL Ráðstefnan Tengslanet
kvenna IV - Völd til kvenna verð-
ur haldin í fjórða sinn undir stjórn
dr. Herdísar Þorgeirsdóttur próf-
essors 29. til 30. maí næstkom-
andi á Bifröst.
Í ár verður þema tengslanets-
ins Konur og réttlæti og munu
ýmsir fyrirlesarar nálgast það
efni út frá ólíkum sjónarhornum.
Meðal fyrirlesara má nefna Maud
de Boer Buquicchio sem er annar
framkvæmdastjóri Evrópuráðs-
ins og mun hún ræða hlutskipti
kvenna.
Hinn aðalfyrirlesarinn er
Judith Resnik, prófessor við laga-
deild Yale háskóla, sem var á dög-
unum útnefnd fremsti fræðimað-
ur á sviði lögfræði 2008 af
bandarísku lögmannasamtökun-
um. Aðeins fimm konur hafa áður
hlotið þann heiður og er hún nefnd
sem væntanlegur dómari við
Hæstarétt Bandaríkjanna.
Eins og áður sagði er þetta í
fjórða sinn sem Tengslanet
kvenna er haldið en vorið 2006
var ráðstefnan sú stærsta í
íslensku viðskiptalífi. Hana sækja
konur úr mörgum sviðum þjóðfé-
lagsins, þverfaglegum og þver-
pólitískum.
Þá verða undirþemu rædd í
pallborðsumræðum undir fundar-
stjórn skörulegra kvenna en pall-
borðin verða samsett af ólíkum
einstaklingum. Skráning fer fram
á slóðinni www.bifrost.is. - ovd
Ráðstefnan Tengslanet kvenna - Völd til kvenna haldin í fjórða sinn á Bifröst:
Þemað er konur og réttlæti
MAUDE DE BOER BUQUICCHIO Er
ein þeirra sem heldur fyrirlestur á
Tengslaneti kvenna. Hún er til vinstri á
myndinni.
SAMGÖNGUR Nýr leigubíll kom á
götur Reykjavíkur á föstudag.
Bíllinn er af tegundinni Toyota
Highlander Hybrid og er sjö
manna lúxusjeppi. Hann notar þó
40 prósent minna eldsneyti en
hefðbundinn jeppi í sama
stærðarflokki.
Tvinnbílar ryðja sér mjög til
rúms og eru orðnir afar vinsælir,
til að mynda á Bandaríkjamark-
aði. Hybrid tæknin er umhverfis-
væn og býður bíleigendum upp á
eftirsóknarverðan sparnað þar
sem að olíuverð hækkar stöðugt.
Toyote Highlander Hybrid
jeppinn er 280 hestöfl en eyðir
aðeins 7,5 lítrum á hundraðið. - vþ
Nýr leigubíll á göturnar:
Sparneytnari
leigubíll
SIMBABVE, AP Robert Mugabe,
forseti í Simbabve, undirritaði í
gær ný lög sem skylda hvíta
eigendur fyrirtækja til að afhenda
svörtum meirihlutaeign í fyrir-
tækjum sínum.
Einnig kynnti
Mugabe áform
um að stjórnin
gefi þeldökkum
eigendum lands,
sem áður var í
eigu hvítra,
þúsundir
húsdýra, olíu,
dráttarvélar,
vélhjól og fleiri landbúnaðaráhöld
til að hjálpa þeim að koma undir
sig fótunum.
Þessi áform bera þess merki að
nú styttist í kosningar í Simbabve.
Þær verða haldnar 29. mars. - gb
Mugabe Simbabveforseti:
Hvítum óheiml
eign fyrirtækja
ROBERT MUGABE
HEILSA Félag 100 kílómetra
hlaupara á Íslandi stendur fyrir
keppnishlaupi sjöunda júní
næstkomandi.
Hlaupið verður í 10 sinnum 10
kílómetra lykkjum um Fossvogs-
dal, Elliðaárdal og yfir í Bryggju-
hverfi. Er áætlað að hlaupið
hefjist klukkan sjö að morgni og
þurfa keppendur að ljúka hlaupi á
innan við fimmtán klukku-
stundum. Áningarstöðvar verða á
fimm kílómetra fresti.
Félag 100 kílómetra hlaupara á
Íslandi var stofnað fyrir þremur
og hálfu ári síðan af fimm
félögum. Nú eru félagarnir
orðnir fimmtán talsins. „Það er
skilyrði fyrir inntöku að hafa
hlaupið 100 kílómetra keppnis-
hlaup,“ segir Ágúst Kvaran,
formaður félagsins sem tekur
við bráðabirgðaskráningum í
netfangið agust@hi.is - ovd
Félögum fer ört fjölgandi:
100 kílómetra
keppnishlaup
GENGIÐ 07.03.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
135,993
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,83 68,15
136,49 137,15
104,47 105,05
14,012 14,094
13,223 13,301
11,121 11,187
0,6647 0,6685
110,21 110,87
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR