Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 10

Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 10
 10. mars 2008 MÁNUDAGUR RV Unique örtrefjaræstikerfið - hagkvæmt, vistvænt og mannvænt Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar RV Bodil Fur, sölumaður hjá RV Unique í Danmörku UniFlex II H Fiber ræstivagn RV U N IQ U E 02 08 02 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is MENNTAMÁL Skólameistarar tveggja framhaldsskóla, sem áminntir voru af menntamála- ráðuneytinu í janúar, hafa enn ekki fengið svör frá ráðuneytinu við kröfu þeirra um að áminning- arnar verði dregnar til baka. Ráðu- neytið hefur haft bréf þeirra til umfjöllunar í rúman mánuð. Þeir Gísli Ragnarsson, skóla- meistari Fjölbrautarskólans við Ármúla, og Baldur Gíslason, skóla- meistari Iðnskólans í Reykjavík, voru í janúar áminntir fyrir að ýkja tölur um fjölda eininga sem nemendur luku með prófi frá skól- unum, en fjárframlög eru reiknuð út frá þeim tölum. Þetta var í fyrsta skipti sem áminningar voru veittar vegna slíkra brota í starfi, en skólameist- arar hafa gagnrýnt reiknilíkanið sem beitt er við útreikningana. Þeir Gísli og Baldur sættu sig ekki við áminninguna, og sendu ráðu- neytinu bréf seint í janúar þar sem þess var krafist að áminning- arnar yrðu dregnar til baka. „Við bíðum bara,“ segir Gísli. „En auðvitað er tíminn orðinn dálítið langur, meira en mánuður.“ Hann segist ánægður með að svo virðist sem ráðuneytið sé að skoða hvort það muni verða við kröfum þeirra. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráð- herra, staðfesti í gær að ráðu- neytið hefði bréfið til meðferðar. Hann vildi ekki segja til um hve- nær svars væri að vænta. - bj Skólameistarar bíða svara frá menntamálaráðuneytinu vegna oftalningar eininga: Fallið verði frá áminningum MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Ekkert svar hefur borist frá ráðuneytinu vegna bréfs tveggja skólameistara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HEILBRIGÐISMÁL Sigurður Guðmundsson landlæknir segir sívaxandi þörf á heimsvísu fyrir heilbrigð líffæri úr látnu fólki og er fylgjandi því að athugað verði með lagabreytingu um ætlað samþykki til líffæragjafa. Það þýddi að gengið yrði út frá því að einstaklingar samþykktu að líffæri úr þeim látnum yrðu nýtt öðrum til góða, líkt og þekkist víðs vegar um Evrópu. „En til þess þarf að kynna þessi mál betur fyrir fólki. Það hefur kannski ekki gengið nógu vel hjá okkur,“ segir hann. Runólfur Pálsson, yfirlæknir á nýrnadeild Land- spítalans, tekur í sama streng. „Fólk virðist hafa misskilið hvernig ætlað samþykki er í reynd í þeim löndum þar sem því er beitt. Ætlað samþykki þýðir ekki að líffærin séu tekin úr þeim látna án samráðs við fjölskylduna,“ segir Runólfur. Austurríki og Belgía séu einu Evrópulöndin sem túlka ætlað samþykki á „harðan“ hátt og taki líffærin án þessa samráðs. Í löndum mildu útgáfunnar, til dæmis í Noregi og Svíþjóð, sé þessu öðruvísi farið. „En aðalatriðið er að ætlað samþykki gæti haft jákvæð áhrif á viðhorf almennings til þessara mála og þannig gert líffæragjöf almennari frekar en að hún sé undantekning,“ segir hann. Í þeim löndum þar sem gengið er út frá ætlaðri neitun, fremur en samþykki, sé tíðni líffæragjafar lág og tíðni neitunar ættingja há. Þannig sé málum háttað hér á landi. En Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hélt öðru fram á Alþingi í síðasta mánuði og sagði að tíðni líffæragjafa væri ekki háð löggjöfinni. „Það er rétt að erfitt er að einangra þátt löggjafar- innar og segja að hann einn og sér auki tíðni gjafanna. Hins vegar er athyglisvert að í löndum ætlaðrar neitunar er tíðni líffæragjafa lægri,“ segir Runólfur. Miðað við aðrar Norðurlandaþjóðir gefi Íslendingar yfirleitt fæst líffæri eða næstfæst. klemens@frettabladid.is Þörfin fyrir líffæri kallar á nýja löggjöf Landlæknir og yfirlæknir á Landspítalanum segja vaxandi þörf fyrir líffæra- gjafir. Þeir telja að ætlað samþykki til líffæragjafar eftir andlát yrði til bóta. Hugmyndin hafi verið misskilin hér á landi og tíðni líffæragjafa hér sé lág. LÍFFÆRAÍGRÆÐSLA Þörf fyrir líffæri til ígræðslu eykst ár frá ári, en líffæragjöfum fjölgar ekki í samræmi við það. Íslendingar leiða því miður ekki hugann að þessum málum í önnum dagsins, segir landlæknir. MYND/ÚR SAFNI UMHVERFISMÁL Helgi Hjörvar, for- maður umhverfisnefndar Alþing- is, segir að fyrirvari Landsvirkj- unar í samningi um gagnaver, valdi óþarfa deilum um virkjana- mál. Hann minnir á að samþykki heimamanna og landeigenda á svæðinu sé forsenda virkjunar. „Og mér sýnist að það sé langt í land með það samþykki,“ segir Helgi. Engir almannahagsmunir kalli heldur á eignarnám. Greint hefur verið frá þeim fyr- irvara í samningi Verne og Lands- virkjunar um gagnaver að Lands- virkjun fái virkjunarleyfi í Þjórsá. Iðnaðarráðherra fagnaði samn- ingnum á sínum tíma en Samfylk- ingarfólk hefur líkt ákvæðinu við fjárkúgun og sagt að því sé vart hægt að taka alvarlega. Ráðherra hefur ekki tjáð sig um þetta síðan. Sjálfur vill Helgi ekki gefa upp hvort hann styðji virkjun neðri hluta Þjórsár en segir þó að best fari á því að bíða með virkjanir þar uns heildaráætlun um náttúru Íslands verði tilbúin seint á næsta ári. „Og það vekur sérstaka undrun að Landsvirkjun hefur nú þegar virkjunarleyfi í Þjórsá, sem engar deilur eru um,“ segir Helgi. Nær væri að nýta þá virkjun, Búðarháls- virkjun, áður en farið sé að knýja á um fleiri kosti. - kóþ Telur Landsvirkjun koma af stað óþarfa deilum: Segir langt í sam- þykki heimafólks HELGI HJÖRVAR Formaður umhverfis- nefndar Alþingis undrast að Lands virkjun nýti ekki leyfi til Búðarhálsvirkjunar, áður en hún knýi á um aðrar virkjanir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.