Fréttablaðið - 10.03.2008, Side 12

Fréttablaðið - 10.03.2008, Side 12
 10. mars 2008 MÁNUDAGUR Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er hægt að stunda sem fullt starf eða á minni hraða með annarri vinnu. Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl, sá seinni 30. maí. Þeir sem sækja um fyrir fyrri frestinn eiga meiri möguleika. Meistaranám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem getur opnað þér dyr að margvíslegum starfs- tækifærum. Viðskiptadeild HR hefur á að skipa sérlega öflugum hópi kennara frá 23 löndum, sem allir búa yfir mikilli fræðilegri þekkingu og hafa fjölþætta reynslu úr atvinnulífinu. Að auki er Háskólinn í Reykjavík með samstarfssamn- inga við yfir 100 háskóla um allan heim sem gefur nemendum möguleika á því að víkka sjóndeildarhringinn með því að stunda hluta námsins erlendis. MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTADEILD MSc í alþjóðaviðskiptum Námið byggir bæði á fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu á alþjóðaviðskiptum og fer kennsla fram á ensku. Uppbygging námsins miðar við reynslu margra bestu háskóla heims. Allir nemendur dvelja erlendis eina önn þar sem þeir starfa fyrir íslensk fyrirtæki eða stunda nám við samstarfsháskóla HR. Flestir nemendur læra annað tungumál en ensku og eru fjögur tungumál í boði: Kínverska, spænska, franska og þýska. Einnig er í boði að sérhæfa sig í alþjóðlegum markaðsfræðum. MSc í fjármálum Námið er sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja og framsækinna alþjóðlegra fyrirtækja. Hægt er að velja á milli tveggja lína. Investment Management (MSIM): Ætlað þeim sem hyggjast starfa sem sérfræðingar á fjármálamarkaði, einkum við eignastýringu, markaðsviðskipti og fjárfestingar. Corporate Finance: Hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa sem fjármálastjórar eða stjórnendur fyrirtækja. MSc í reikningshaldi og endurskoðun Námið er ætlað þeim sem vilja verða löggiltir endurskoðendur, eða hafa áhuga á að starfa sem sérfræðingar eða stjórnendur á sviði reikningshalds í fyrirtækjum. Útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir til ýmissa stjórnunarstarfa í atvinnulífinu, einkum hjá stórfyrirtækjum í alþjóðlegri starfsemi. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 4 5 4 SVÍÞJÓÐ Málverkið Nótt afbrýðisem- innar eftir Ágúst Strindberg er fundið. Málverkinu var stolið af Strindbergsafninu í Stokkhólmi fyrir tveimur árum. Að sögn Dagens Nyheter fannst það fyrir tilviljun þegar sænska lögreglan gerði hús- leit í einbýlishúsi norðan Stokk- hólms vegna gruns um eiturlyfja- viðskipti. Tveir menn hafa verið handteknir. „Það var frábær tilfinning að sjá það aftur, ég skalf þegar lögreglan tók það fram,“ segir Stefan Boh- man, stjórnandi Strindbergsafnsins. „Ég sá við fyrstu sýn að þetta var rétt málverk. Að hluta til var það vegna þess að málverkið og ramm- inn litu rétt út og að hluta til vegna þess að á henni var texti sem Strind- berg skrifaði til unnustu sinnar,“ segir hann. Málverkinu var stolið úr Strind- bergsafninu í miðborg Stokkhólms á örfáum mínútum um miðjan febrú- ar 2006. Talið er að þjófarnir hafi verið þrír. Þeir létu til skarar skríða í hádeginu. Tveir héldu starfsmanni safnsins uppteknum meðan sá þriðji tók myndina af veggnum. Þeir hlupu svo niður tröppurnar og út úr safn- inu og hurfu. Þar með var verkið horfið sporlaust. Verkið tilheyrir mestu gersemum sænsku þjóðarinnar. Strindberg gaf unnustu sinni myndina. - ghs Gersemi sænsku þjóðarinnar, Nótt afbrýðiseminnar eftir Strindberg, var stolið: Verkið fannst fyrir tilviljun NÓTT AFBRÝÐISEMINNAR Strindberg málaði verkið árið 1893. FÉLAGSMÁL Heimasíða Hlutverkaseturs var opnuð nýlega en hjá Hlutverkasetri fá einstaklingar sem misst hafa hlutverk af geðrænum orsökum atvinnu- lega endurhæfingu. Í setrinu starfa einstaklingar með reynslu af geðröskunum ásamt fagfólki með ólíkan bakgrunn. Setrið er í nánu samstarfi við Hugarafl, sem er samstarfshópur iðjuþjálfa og notenda geðheilbrigðis- kerfisins sem eru í bata. „Hér vinna menn út frá batamódelinu á jafningjagrunni,“ segir Eiríkur Guðmundsson, verkefnastjóri Hlutverkaseturs. Starfsendurhæfingin byggist á því að sýn og þekking notenda skipti jafn miklu máli og fagþekking. „Við göngum ekki á undan fólki heldur samhliða því eða skrefi á eftir þegar það vill láta drauma sína rætast á vinnumarkaði.“ Hlutverkasetrið er ekki rekið í ágóðaskyni heldur er það samfélagslegt fyrirtæki og fer arður í áframhaldandi uppbygg- ingu. „Draumurinn er að opna svokallað geðveikt kaffihús. Þar getum við unnið gegn fordómum, veitt samherjastuðning og verið sýnileg.“ Eiríkur segir Hugarafl hafa haft gríðarlega mikla þýðingu í jákvæðri umræðu um geðheilbrigðismál undanfarin fimm ár enda leggi hópurinn áherslu á framlag einstaklingsins til samfélagsins. Nánari upplýsingar má nálgast á síðunni www.hlutverka- setur.is. - ovd Hlutverkasetur vinnur á jafningjagrundvelli að bata einstaklinga með geðraskanir: Sýn notenda skiptir líka máli FRÁ OPNUN HEIMASÍÐUNNAR Ingimundur Sigurpálsson, for- maður Samtaka atvinnulífsins, og Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, opnuðu síðuna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.