Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 30
10. MARS 2008 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● híbýli
Svefnherbergið er griðastaður og þar eyða flestir
stórum hluta lífs síns. Þótt flestum stundum sé þar
varið með lokuð augu er nauðsynlegt að stemningin
henti hverjum sem þar dvelur.
Nútímalegt, rómantískt, hefðbundið eða skandin-
avískt. Hver og einn verður að velja hvaða stíll hentar í
svefnherbergið. Meðan íburður og rómantík heillar suma
er einfaldleikinn og nútíminn í fyrirrúmi hjá öðrum. Á
myndum sem hér fylgja má sjá falleg svefnherbergi úr
báðum áttum, sum með skírskotun í framtíðina en önnur
sem vísa í fortíðina. - sg
Nútími eða rómantík
Minimalískt nútímaherbergi þar sem rúmið er hálfgerður skeiðvöllur og veggir eru
fóðraðir. NORDICPHOTOS/GETTY
Sumir fíla framtíðina betur en aðrir. Blá lýsingin minnir helst á Star Trek-kvikmynd.Einfalt og stílhreint svefnherbergi. Mörgum þykir betra að sofa í slíku
umhverfi.
Klassískur viður mótaður í nútímalegt form.
Snyrtiborð með bleikum blómum, fljótandi hvítar
gardínur og rómantískur spegill búa til létt og
skemmtilegt andrúmsloft.
Rómantískt svefnherbergi með rúmi frá átjándu
öld.
Gull og íburður heillar suma. Í þessu yfirmáta rómantíska herbergi
er gullið í fyrirrúmi og líklega líður þeim sem þar hvíla eins og
fyrirmennum.
● SKIPULAGIÐ Í SKÁPNUM Góðir skápar og fataherbergi eru mikilvægur hluti
heimilisins. Þessi þarfaþing vilja hins vegar oft verða fyrir því að enda sem nokkurs konar
ruslageymslur. Enda sjaldnast sem gestir líta inn í fataskápa og því auðvelt að hrúga öllu þar
inn þegar tekið er til.
Það jafnast á við góða íhugun að
taka til í fataskápnum. Kannski ekki
meðan á því stendur en alveg ör-
ugglega þegar það er yfirstaðið. Að
sjá fötin röðuð upp í fallega stafla,
allir sokkar á einum stað, fínu fötin
öðru megin og hversdagsklæðnað-
urinn saman á öðrum, yndislegt.
Þegar hugað er að slíkri tiltekt er
gott að gera sér ferð í húsgagna-
verslun og athuga hvaða lausnir eru
í boði þegar kemur að skipulagi. Að
fjárfesta í hólfum og hylkjum sem
aðskilja til dæmis sokka og nærföt
geta gert gæfumuninn og halda
skápum og skúffum skipulögðum til
lengri tíma.
Nú er bara að bretta upp
ermarnar og byrja. Hálfnað verk þá
hafið er.
● FJÁRSJÓÐSKISTA ÚR FORTÍÐINNI
Fátt gerir svefnherbergið
eins ævintýralegt og
falleg antíkkommóða eða
kista. Ekki skemmir fyrir ef
uppruni hirslunnar er lítt
þekktur því þá er að skálda
upp einhverja einhverja
spennandi sögu um fortíð
hennar. Auk þess að ýta undir
ímyndunaraflið er slík hirsla
vel til þess fallin að geyma
ýmsa fjársjóði, svo sem
rómantísk sendibréf, gamlar
myndir og ýmsa aðra muni
sem hafa persónulegt gildi
fyrir eigandann og hann
kann að vilja halda leyndum
fyrir umheiminum.
2