Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 34
10. MARS 2008 MÁNUDAGUR12 ● fréttablaðið ● híbýli6
Það er yndislegt að eiga góðan slopp í
svefnherberginu til að smella sér
í bæði kvölds og morgna.
Sloppar eru bæði nota-
legar flíkur og nauð-
synlegar, ekki síst eftir
baðið eða sturtuna. Það er
hvíld að komast í sloppinn
á kvöldin eftir erfiðan dag
og ekki spillir að kveikja á
kertum, að minnsta kosti
meðan enn er myrkur
úti. Fátt er líka meira
afslappandi en að vera
á sloppnum fram á há-
degi um helgar, fá
sér kaffi eða te-
sopa og lesa
blöðin.
Þægilegast
er að eiga tvo
sloppa. Annan hlýjan
og notalegan úr frotté,
bómull, flóneli, velúr
eða flísi til að sveipa
um sig í afslöppun
á veturna. Hinn
úr silki eða sat-
íni, hæfilega skjól-
góðan og hentugan þegar
hitinn er meiri, bæði í
herberginu og kroppnum.
Slíkan slopp er líka þægi-
legt að hafa í farteskinu á
ferðalögum. -gun
Afslappandi og æsandi flíkur
Beltið á silki-
sloppnum úr
Habitat er fag-
urlega útsaum-
að í bakið.
Slopparnir hjá Dún og fiður
á Laugavegi 87 eru vandaðir
bómullarsloppar með vöfflu-
mynstri frá Bellora. Til í ljósbrúnu,
kremuðu, hvítu, bleiku og bláu og
verðið er 8.500 kr.
Hettusloppar úr
poyester og ryan
fást í Debenhams
og kosta 6.990.-
Brúnn
hettusloppur
úr polyester
og ryan úr
Debenhams
á 6.990.-
Silkislopp-
ur með
svörtum
blúndum.
Fæst líka
í brúnu,
gylltu og
svörtu í
La Sensa
og kostar
11.900 kr.
Dúnmjúkir, hálfsíðir
bleik-og blárósótt-
ir sloppar úr þykku
polyesterefni fást í Joe
Boxer í Kringlunni á
6.980 kr.
Hálfsíður svartur
satínsloppur með
rauðu fóðri og
rauðum útsaum
fæst í La Sensa í
Kringlunni á 7.900
kr. Lika til með
ferskjulitu blómi.
Þessi ljósbrúni
silkisloppur með
fínlegum útsaumi
á borðum og belti
fæst í Habitat í
Askalind á 14.900.
Þar fást líka síðir
frottésloppar í sama
lit.