Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 52
24 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
SÓLGLERAUGUN ERU ALDREI
LANGT UNDAN Sébastien Tellier
fer í Eurovision.
> BJÓRBARN
Matthew McConaughey ku
íhuga að feta í fótspor eldri
bróður síns og skíra ófæddan
erfingja eftir uppáhaldsbjór-
tegundinni sinni. Sonur
bróðursins fékk nafnið Mill-
er Lyte, en McConaughey
ku vera spenntur fyrir Bud,
eftir Budweiser. Camila
Alves, barnsmóðir leik-
arans, er víst ekki alveg
jafn spennt.
75 DAGAR TIL STEFNU
Súpersvalur Frakki syngur á ensku
Hinn súpersvali franski tölvu-
poppari Sébastien Tellier verður
fulltrúi Frakka í Eurovision í ár
og flytur lag sitt, „Devine“. Með
laginu er blað brotið í sögu
Eurovision því þetta er í fyrsta
skipti í sögunni sem hinir stoltu
Fransmenn gefast upp fyrir
enskum poppáhrifum og flytja
lagið sitt eingöngu á ensku.
Sébastien Tellier er stórt nafn
á frönsku senunni og hefur gert
þrjár stórar plötur auk þess að
sjá um tónlist í nokkrum kvik-
myndum. Eurovisionlagið er af
nýjustu plötu hans, Sexuality,
sem situr þessa stundina í öðru
sæti franska vinsældalistans.
Plötuna vann Sébastien með
Guy-Manuel de Homem Christo,
öðrum helmingi hins heims-
fræga dúetts Daft Punk.
Sébastien hefur löngum verið
talinn upp með Daft Punk og Air
sem helsta útflutningsvara
Frakka í svala tölvupoppinu.
Frakkland er eitt af „stóru
löndunum“ og fer lag þeirra
beint í úrslitaþáttinn. Með þessu
vali vilja Frakkar sýna lit og
brjóta upp þann vana að senda
eintóma ballöðusöngvara í
keppnina.
Alvara virðist vera komin í sam-
band Hollywood-parsins Scarlett
Johansson og Ryan Reynolds því
fregnir herma að Scarlett sé flutt
inn til kærastans.
Þótt Scarlett, sem er 23 ára, sé
vafalítið í skýjunum yfir ráða-
hagnum er móðir hennar ekki eins
ánægð. „Scarlett finnst hún vera
tilbúin til að flytja inn til Ryans og
telur hann vera draumaprinsinn
sinn,“ sagði kunningi leikkonunnar.
„Móður Scarlett finnst hún aftur á
móti of ung til að festa rætur og
óttast að hún sé að flýta sér um
of.“
Í janúar síðastliðnum bárust
fregnir af því að hinn 31 árs Ryan
hefði beðið Scarlett um að giftast
sér en þær hafa ekki fengist stað-
festar. Tæpt ár er síðan parið byrj-
aði saman en Ryan átti áður í
ástarsambandi við söngkonuna
Alanis Morissette. Scarlett var á
hinn bóginn með leikaranum Josh
Hartnett.
Scarlett í sambúð
DRAUMAPRINSINN FUNDINN Scarlett er
flutt inn til kærasta síns, Ryans Reynolds.
Victoria Beckham mun hanna
tískulínu í samvinnu við hönnuð-
inn Roland Mouret, sem hefur
verið afar vinsæll á síðustu
árum. Tískulínan verður gerð í
takmörkuðu upplagi, en ber sem
stendur vinnuheitið Little Black
Dress collection, eða Litla svarta
kjóls-línan.
„Þetta verður stórkostlegt fyrir
Victoriu. Gallabuxna- og sólgler-
augnalínur hennar hafa gengið
mjög vel, en þetta
færir hana upp á
annað plan. Roland
Mouret er mjög
virtur hönnuður. Að
hann fallist á að vinna
með Victoriu sýnir að
hún er alvöru tísku-
spekúlant, ekki bara
frægt nafn,“ segir
heimildarmaður
breska tímaritsins
Hello. „Þau voru í
sambandi á meðan Victoria var á
tónleikaferðalagi með The Spice Girls
og hann hefur verið mjög hrifinn af
hugmyndum hennar hingað til,“ segir
hann.
Línan mun samanstanda af tíu
flíkum og verður aðeins fáanleg í
fáum, útvöldum búðum. Verslanir
eins og Fred Segal í Los Angeles, og
hin virta Colette í París hafa báðar
sýnt því áhuga að fá línuna til sölu.
Victoria hefur sjálf lengi verið
hrifin af hönnun Mourets. Hún
klæddist meðal annars bleikum
Moon-kjól frá honum þegar hún
fylgdist með fyrsta leik eiginmanns
síns, Davids Beckham, með Los
Angeles-liðinu Galaxy.
MOON FRÁ MOURET Victoria
Beckham hefur oft klæðst kjól-
um frá hönnuðinum Roland
Mouret, en nú munu
þau leiða
saman
hesta sína
og skapa
litla
tískulínu
saman.
Victoria hannar með Mouret