Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 56
28 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Stjörnukonan Elísabet Gunnarsdóttir lék sinn síðasta leik
á tímabilinu í sigri á Haukum á laugardaginn. Elísabet
er á leiðinni í aðgerð þar sem tekið verður bein úr
mjöðminni og grætt í handarbakið. Hún fann fyrst
fyrir óþægindum í úlnlið fyrir tveimur árum og er
því búin að spila handarbrotin í tvö ár.
„Ég fer í aðgerð á fimmtudaginn. Ég fann mest
fyrir þessu í byrjun tímabilsins og lét skoða þetta eftir
leik á móti FH og þá kom í ljós að ég var með brotið
bátsbein. Þetta er versta beinið til þess að brjóta í hendinni.
Þegar ég fór í myndatökuna þá sagði læknirinn að þetta væri
ekki nýtt brot. Ég veit ekkert hvenær þetta gerðist,“ segir Elísa-
bet en nú er komið að því að hún verður að fara í aðgerð ef
hún ætlar að forðast frekari vandræði í framtíðinni. „Ef ég bíð
eitthvað lengur þá er einhver hætta á slitgigt,” segir Elísabet.
Elísabet er staðráðin í að koma aftur sem fyrst en
það gæti tekið langan tíma. „Fyrst var talað
um hálft ár en maður reynir bara að koma
eins fljótt og maður getur. Þetta er nefnilega
svolítið stór aðgerð því það þarf að skrapa bein af mjöðminni og
setja í höndina. Það er algjörlega undir mér komið hvenær ég er
til. Ég ætla að fara skynsamlega í gegnum þetta og ætla ekki að
fara of harkalega af stað. Það hafa nokkrir handboltamenn farið í
þessa aðgerð og þeir eru að spila í dag,“ segir Elísabet
bjartsýn.
Stjörnustúlkur eru nýkrýndir bikar-
meistarar en eru 2 stigum á eftir Fram í
baráttunni um titilinn. „Það er rosalega leiðinlegt
að þurfa að hætta að spila en það var viss plús fyrir mann að
við náðum að vinna Hauka. Ég hefði samt alveg viljað klára
þetta með betri leik en það þýðir ekkert að gráta það núna,“
segir Elísabet sem skoraði 2 mörk í leiknum. Hún er ekki
alltof bjartsýn á að Fram tapi stigum. „Ég held að það sé mjög
hæpið að Fram eigi eftir að tapa stigi eins og staðan er núna.
Við verðum bara að treysta á það að við vinnum okkar leiki
og biðja síðan til guðs að Fram misstígi sig eitthvað,“ segir
Elísabet sem ætlar að vera dugleg að hvetja stelpurnar á
hliðarlínunni á lokasprettinum í Íslandsmótinu.
STJÖRNUKONAN ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR: BÚIN AÐ LEIKA HANDBOLTA Í TVÖ ÁR HANDARBROTIN
Versta beinið til þess að brjóta í hendinni
> Katrín jafnar landsleikjametið
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í
fótbolta, mun jafna landsleikjamet Ásthildar
Helgadóttir þegar hún spilar sinn 69. A-
landsleik í dag. Íslenska liðið mætir heima-
stúlkum í Portúgal í óopinberum úrslitaleik
um sigur í sínum riðli á Algarve Cup. Með
sigri fá íslensku stelpurnar, sem hafa unnið
tvo fyrstu leiki sína á mótinu með marka-
tölunni 6-1, tækifæri til þess að spila um 7.
sætið í mótinu og myndu þar með bæta
árangur sinn frá því í fyrra. Katrín lék
sinn fyrsta A-landsleik fyrir tæpum
14 árum eða í 4-1 sigri á Skotum í
Glasgow 9. maí 1994 en hún kom
þá inn á sem varamaður fyrir Ástu
B. Gunnlaugsdóttur.
Einliðaleikur karla
Guðmundur E. Stephensen Víkingi vann Kjartan
Briem KR 4-0 (11-5, 11-3, 11-6 og 11-5).
Einliðaleikur kvenna
Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi vann Guðrúnu G.
Björnsdóttur KR 4-0 (11-5, 11-7, 11-4 og 13-11).
Tvíliðaleikur karla
Guðmundur E. Stephensen og Matthías Stephen-
sen úr Víkingi unnu Kjartan Briem og Ingólf Svein
Ingólfsson úr KR.
Tvíliðaleikur kvenna
Guðrún G. Björnsdóttir KR og Ragnhildur
Sigurðardóttir Víkingi unnu Lilju Rós Jóhannes-
dóttur og Magneu J. Ólafs úr Víkingi.
Tvenndarleikur
Guðmundur E. Stephensen og Magnea J. Ólafs
Víkingi unnu Kjartan Briem KR og Ragnhildi
Sigurðardóttur Víkingi.
MEISTARAR 2008
EINBEITTUR Íslandsmeistarinn
Guðmundur E. Stephensen. FRÉTTABLAÐIÐ/
BORÐTENNIS Ein allra magnaðasta
sigurganga íslenskra íþrótta hélt
áfram í KR-heimilinu í gær þegar
Guðmundur Stephensen vann
Íslandsmeistaratitilinn í einliða-
leik karla fimmtánda árið í röð.
Guðmundur hefur unnið þennan
titil allar götur síðan 1994, þegar
hann var aðeins 11 ára gamall, og
hefur aðeins tapað tveimur af 45
lotum í síðustu tólf úrslitaleikjum
sínum.
„Við unnum tvíliðaleikinn í ár
þannig að ég bætti mig frá því í
fyrra. Það er nú bara orðið létt
andrúmsloft yfir úrslitaleiknum
en ég má ekki slaka of mikið á og
maður verður að spila,“ sagði Guð-
mundur eftir að fimmtándi
Íslandsmeistaratitillinn var í höfn.
Guðmundur náði því einnig í tólfta
sinn á þessum fimmtán árum að
verða þrefaldur Íslandsmeistari,
en hann vann tvíliðaleikinn með
bróður sínum Matthíasi og
tvenndarleikinn með Magneu
Ólafs.
„Þetta er orðinn góður tími en
ég er ennþá bara 25 ára þannig að
ég á nóg eftir til þess að bæta við
titlum. Það er samt ekkert mitt
takmark að verða mesti Íslands-
meistari fyrr og síðar í íþróttum.
Þetta er bara hending og þróaðist
svona. Það er ekki takmark að
vinna Íslandsmótið lengur. Ég
spila bara fyrir Víking á þessi
móti,“ sagði Guðmundur í léttum
tón en hann vill þó ekki vera að
monta sig mikið af þessu.
„Þetta er ekki titillinn sem ég
stefni mest á en það er gaman að
spila á þessu móti. Það hefði verið
gaman að fá að spila við litla bróð-
ur í úrslitaleiknum en hann hefði
nú samt bara gefið leikinn strax,“
sagði Guðmundur í gríni en
Matthías bróðir hans fór alla leið í
sjöundu og oddalotu í undan-
úrslitaleiknum gegn Kjartani
Briem.
Lilja Rós Jóhannesdóttir tók
upp spaðann aftur og fagnaði
sínum áttunda Íslandsmeistara-
titli á ferlinum.
„Þetta er eigilega smá endur-
koma því það voru liðin fjögur ár
síðan ég tók þátt í mótinu síðast.
Ég var beðin um að koma aftur en
ég ætlaði nú ekkert að gera það.
Ég ætlaði að vera hætt en freistað-
ist síðan til þess að prófa. Það er
svo langt síðan að maður var síð-
ast í þessu að það var engin pressa
á manni,“ sagði Lilja Rós sem vann
Íslandsmeistara þriggja síðustu
ára 4-0 í úrslitaleiknum.
„Þetta hefði ekki getað gengið
betur. Guðrún er mjög sterk þannig
að ég var stressuð fyrir leikinn en
síðan hentaði þetta minni spila-
mennsku mjög vel og það gekk allt
upp í úrslitaleiknum,“ sagði Lilja
sem hefur eignast tvö börn milli
Íslandsmeistaratitla en þetta var í
rauninni titilvörn því hún varð
Íslandsmeistari þegar hún keppti
síðast á mótinu árið 2004.
„Ég veit ekki hvort ég kem aftur
á næsta ári. Ég er orðin svo gömul
að ég verð bara að sjá til,“ sagði
Lilja að lokum. ooj@frettabladid.is
Fimmtándi meistaratitillinn í röð
Guðmundur E. Stephensen hélt sigurgöngu sinni áfram á Íslandsmótinu í borðtennis og félagi hans úr
Víkingi, Lilja Rós Jóhannesdóttir, tók upp þráðinn frá því fyrir fjórum árum og vann sinn áttunda titil.
ÍSLANDSMEISTARAR 2008 Guðmundur E. Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir,
bæði úr Víkingi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON