Fréttablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 11. mars 2008 19
Ferðaþjónusta bænda og
Félag ferðaþjónustubænda
skrifuðu nýlega undir samn-
ing við fyrirtækið Better
Business á Íslandi. Samn-
ingurinn hljóðar upp á
þriggja ára verkefni á sviði
gæða- og þjónustumála.
Um er að ræða svokall-
aðar hulduheimsóknir eða
„Mystery Shopper“ á ferða-
þjónustubæi. Þá mun ferða-
maður á vegum Better
Business skrá ákveðna
þætti í þjónustunni. Dæmi
um þætti sem verða mældir
er þjónusta við gesti, aðbún-
aður, morgunverður, hrein-
læti og snyrtimennska.
Markmiðið er að veita
samtökunum og einstökum
félögum verðmætar upp-
lýsingar. Ætlunin er að nota
þær til að styrkja stöðu og
samkeppnishæfni Ferða-
þjónustu bænda á sviði
gæða og þjónustu.
Aðalmarkmið verkefnis-
ins er stöðumat á aðbún-
aði og þjónustu hjá félög-
um innan Ferðaþjónustu
bænda. Matið er gert út frá
sjónarhorni gesta næstu
þrjú sumur. Það er á árun-
um 2008-2010.
Ferðaþjónustubændur
sem bjóða gistingu í upp-
búnum rúmum og morgun-
verð fá tækifæri til þátt-
töku, þar með talið þeir sem
bjóða heimagistingu, gist-
ingu í gistihúsum bænda og
á sveitahótelum. Með þess-
ari nálgun er hægt að meta
veikleika og styrkleika og
kortleggja á raunhæfan hátt
stöðu Ferðaþjónustu bænda
í samkeppnisumhverfinu.
Þannig er hægt að vinna
áfram með niðurstöðurn-
ar og stuðla að markvissara
starfi á sviði þjónustu og
gæða innan Ferðaþjónustu
bænda. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Ferða-
málastofu.
Félagar geta verið þátt-
takendur hluta af tímabil-
inu eða allt tímabilið. Alls
munu 50 ferðaþjónustubæir
fá tækifæri til þátttöku í
sumar. Af þeim 130 aðilum
sem eru í Ferðaþjónustu
bænda gefst um 100 aðilum
að taka þátt í þessu verkefni
á 3ja ára tímabilinu.
Um er að ræða eitt
stærsta verkefni sem ráð-
ist hefur verið í á vegum
Ferðaþjónustu bænda á
sviðum gæða- og þjónustu-
mála. Einnig kemur fram að
mikil áhersla verður lögð á
eftirfylgni og þróun á þjón-
ustustefnu. Markmið Ferða-
þjónustu bænda er að gest-
irnir fái ekki bara góða
þjónustu heldur framúr-
skarandi þjónustu, segir í
frétt frá FB.
Nýtt ferðaverk-
efni bænda
NÝTT VERKEFNI Marteinn Njálsson, formaður Ferðaþjónustu bænda,
Bjarni Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Better Business á Íslandi, og
Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda, skrifuðu
undir samstarfssamninginn nýlega.
Orkuveita Reykjavíkur færði nýlega
Slysavarnafélaginu Landsbjörg 67
tetra-fjarskiptastöðvar að gjöf. Verða
stöðvarnar nýttar fyrir svæðisstjórn-
ir Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og koma þær sér vel í uppbyggingu
öflugra fjarskipta sveitanna.
Tetra-kerfið er fjarskiptakerfi sem
viðbragðsaðilar hafa notað og undan-
farin misseri hafa björgunarsveitir
bæst í þann hóp. Við uppfærslu sam-
skiptakerfis Orkuveitunnar hefur
fjölda eldri tetra-stöðva verið skipt
út hjá fyrirtækinu. Stöðvarnar nýt-
ast engu að síður björgunarsveitun-
um, sem eru sem óðast að bæta við
fjarskiptabúnað sinn til samhæfing-
ar tetra-kerfinu.
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Orkuveitan eiga í margvíslegu sam-
starfi að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu. Björgunarsveitir félags-
ins á höfuðborgarsvæðinu hafa séð
um hina rómuðu flugeldasýningu
Orkuveitunnar á Menningarnótt ár
hvert og einnig sjá þær um allt við-
hald vegpresta og stika meðfram
meira en 100 km af gönguleiðum
sem Orkuveitan hefur lagt á Hengils-
svæðinu.
Nýjar tetra-fjarskiptastöðvar
FRÁ AFHENDINGU STÖÐVANNA Hjörleifur
Kvaran, forstjóri OR, Kjartan Magnússon,
stjórnarformaður OR, Kristinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri SL, og Daníel Eyþór Gunnlaugs-
son, fulltrúi í fjarskiptaráði SL.
Elskuleg fósturmóðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hólmfríður Þóroddsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
lést mánudaginn 10. mars. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju mánudaginn 17. mars kl. 13.00.
Jóhanna Gunnþórsdóttir Brynjólfur Lárentsíusson
Sveinmar Gunnþórsson Kristín Pálsdóttir
Þórey Skúladóttir Jón V. Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð samúð og hlýhug við fráfall og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Gunnarssonar
frá Arnanesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og Hvamms á
Húsavík fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll
Þorbjörg Theodórsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir Þorsteinn Rúnar Eiríksson
Theodór G. Sigurðsson Guðrún Lárusdóttir Blöndal
Guðrún Ásta Sigurðardóttir Stefán Rúnar Bjarnason
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Ragna Möller
Sóleyjarrima 9, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn 7. mars.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Steinn Hansson
Jóhann Steinsson Erla Hrönn Snorradóttir
Elísabet Steinsdóttir Hreinn Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, bróðir, afi og langafi,
Björn Elías Ingimarsson
skipstjóri og útgerðarmaður,
Bakkavegi 13, Hnífsdal,
lést sl. sunnudag 9. mars á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Theodóra Kristjánsdóttir
Halldóra Elíasdóttir Guðmundur Thoroddsen
Sigríður Elíasdóttir Svavar Ævarsson
Finnbjörn Elíasson Gyða Jónsdóttir
Guðmunda Elíasdóttir Friðrik Friðriksson
Margrét Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinn Hjálmarsson
fyrrverandi bóndi að Kalastaðakoti,
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 1. mars. Útför
hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigurbjörg Márusdóttir
S. Svanhvít Sveinsdóttir Ragnar Valgeirsson
Hjálmar Már Sveinsson Ingibjörg Sigurðardóttir
G. Heiðar Sveinsson Þorbjörg Helgadóttir
Hjörtur Már Sveinsson Lilja Lindal Gísladóttir
Árni Geir Sveinsson Ingibjörg Valmundsdóttir
Guðrún S. Sveinsdóttir Óli Þór Heiðarsson
Karl Ingi Sveinsson Sigrún V. Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, tengdadóttir og amma,
Sveinfríður S.
Jóhannesdóttir
Einilundi 2, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 13. mars kl. 13.00.
Hinrik Matthíasson
Matthías Hinriksson Kristín Dögg Guðmundsdóttir
Sigrún H. Hinriksdóttir Kristján T. Sveinbjörnsson
Kristín P. Hinriksdóttir
Matthías Bjarnason
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi,
Kjartan Ólason
Fagragarði 1, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn
5. mars sl. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju kl.
14.00 fimmtudaginn 13. mars nk.
Kristín V. Matthíasdóttir
Matthías Kjartansson Anna Guðrún Tómasdóttir
Óli Þór Kjartansson Jóhanna Grétarsdóttir
Hólmfríður Kjartansdóttir
Páll Ólason Súsanna K. Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðursystir mín, systir okkar og
frænka,
Valgerður Sigurðardóttir
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund hinn 24.
febrúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á elli- og
hjúkrunarheimilið Grund. Viljum við þakka starfsfólki
á deild A3 á Grund fyrir yndislega umönnun. Þökkum
auðsýnda samúð.
Þorbjörg Friðriksdóttir
Erla Fríðhólm Sigurðardóttir
Þórhildur Sigurðardóttir
Reynir Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Hallveig Þorsteinsdóttir
Kirkjuvegi 11, Keflavík,
lést laugardaginn 1. mars á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Útför hennar fer fram í dag frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 14.00.
Guðni Þ. Skúlason Magnea Valdimarsdóttir
Snorri S. Skúlason Sigrún Einarsdóttir
Guðrún Skúladóttir Björn Bjarnason
Birna B. Skúladóttir Sigurður H. Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jónínu Hannesdóttur
Skálagerði 15, Reykjavík,
áður til heimilis að Kolbeinsgötu 6, Vopnafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Vífilsstöðum fyrir
góða og hlýlega umönnun.
Hólmfríður Kjartansdóttir Sigurður Adolfsson
Inga Hanna Kjartansdóttir
Kjartan Þórir Kjartansson Áshildur Kristjánsdóttir
Baldur Kjartansson Hrönn Róbertsdóttir
Erla Kjartansdóttir Ágúst Borgþór Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn.