Fréttablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Það bjargast ekki neitt, það ferst, það ferst,“ kvað Steinn Steinarr fyrir mörgum árum. Ég hef hingað til lítið verið að eltast við heims- endaspár en einhverra hluta vegna rifjast þessi orð iðulega upp fyrir mér þegar sjávarútveg og lands- byggðina ber á góma. Þar sem ég reyni ávallt að vera glaðvær og góð á ég það til að sniðganga fréttir af sjávarútvegi vegna þess að þær vekja hjá mér mikla depurð. Á tylli- dögum gorta ég þó af því að vera landsbyggðarmær sem vill veg íslenska geita- og þorskstofnsins sem mestan. Þar sem ég vil ekki verða þekkt fyrir hræsni las ég gaumgæfilega áhugaverðan greina- flokk kollega míns um þorskeldi í Noregi, sem hefur birst í Frétta- blaðinu að undanförnu, jafnvel þótt mig sviði af ótta allan tímann. „ÞORSKURINN er íslensk guðs- gjöf,“ sagði Kristján Eldjárn forseti í áramótaávarpi árið 1976 og eru það orð að sönnu. Kristján vitnaði einnig til orða norska sálmaskálds- ins Petters Dass sem endur fyrir löngu sagði: „Ef þorskurinn bregst oss, hvað bjargar oss þá?“ Þótt langt sé um liðið frá því Kristján lét orð sín um þorskinn falla og enn lengra frá því Petter hinn norski mælti eiga orð þeirra jafn vel við í dag og þá. Nú fækkar í hópi þorska og um leið fækkar krónum til Íslendinga og fólki á landsbyggðinni. ÍSLENDINGAR skammast út í ráðherra fyrir að takmarka afla- heimildir en hvað á hann að gera „þegar miðin eru dauð“ svo vitnað sé til annars andans manns. Fyrr- nefndur greinaflokkur sýndi að Norðmenn áttuðu sig á því fyrir nokkru að þorskurinn mætti ekki drottna yfir þeim, heillavænlegra væri að drottna yfir þorskinum. Þeir komu því á laggirnar öflugu þorskeldi. Innan fárra ára ætla þeir að framleiða allt að 200 þúsund tonn af eldisþorski á ári, það er 70 þús- und tonnum meira en Íslendingar veiða nú árlega af þorski. Í sumar sigldi ég um Loðmundar- fjörð sem nú er í eyði. Um hann orti reiður ábúandi um næstsíðustu alda- mót. „Það er ekki þorsk að fá í þess- um firði, / þurru landi eru þeir á / og einskis virði.“ Ekki viljum við að fleiri firðir fari í eyði en til þess að sporna við því þurfum við að feta í fótspor Norðmanna og halda fisk- mörkuðum. „In cod we trust“ sagði Einar Örn Benediktsson og heim- færði þar með guðsritningu amer- ískra dollaraseðla. Reyndar sagði Nietzsche að guð væri dauður og þó svo sé þýðir það ekki að trúin sé dauð heldur bjargar fólk sér sjálft. Til hvers að treysta á þorskinn þegar fólk getur sjálft fóðrað hann, slægt hann og selt? Á rökkurmiðum 7.59 13.38 19.18 7.46 13.22 19.01 Í dag er þriðjudagurinn 11. mars, 71. dagur ársins. Yfirburðir L200 eru ótvíræðir Hann ber meira á palli en aðrir, minnsti beygjuradíus í sínum flokki, mesta fótaplássið, öruggasti pallbíllinn skv. Euro NCAP, 167 hestöfl, dregur 2.700 kg, fæst með 33", 35" og 38" breytingum, Super Select® 4x4 fjölvalsdrif, spólvörn og hiti í sætum og speglum. 3.250.000 kr. L200 Tornado Frá AÐEINS 3.330.000 kr. verð á beinskiptum l200 frá F í t o n / S Í A *Krómgrind á palli kostar 80.000 kr., lok 140.000 kr. og pallhús 230.000 kr. Val um lok, hús eða krómboga* Heitklæðning í pall Upphitaðir hliðarspeglar Aflmeiri vél Loftkæling 32” dekk Super Select 4x4 Stöðug- leikastýring Spólvörn Dráttarbeisli Hiti í sætum Þessi kraftmikla sérútgáfa af L200 er aðeins fáanleg í takmarkaðan tíma. Tryggðu þér eintak af þessum glæsilega og örugga pallbíl á ótrúlegu verði. Öruggasti pallbíllinn skv. EURO NCAP L200

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.