Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
12. mars 2008 — 71. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Guðbjörg Bragadóttir leiðsögumaður og eigandi
KGB ferða fór ásamt stórfjölskyldu sinni í ferð
til Ástralíu sem var ævintýri líkust. Guðbjörgu
og eiginmanni hennar þótti upplagt að bjóða
upp á ferðir fyrir aðra Íslendinga á þessar slóðir
og stefna nú á ferð í október.
„Okkur hjónin langaði til þess að starfa saman og
keyptum því rútu fyrir nokkrum árum. Við höfum
verið með hópa hérna á Íslandi en nú erum að f
með hóp út fyrir landsteis i
nætur. Fegurðin var stórkostleg, sjórinn tær og
hreinn og hvítar strendur, þetta var ævintýri líkast.
Við köfuðum við kóralrifin með litríkum fiskum og
litlum kóralhákörlum,“ útskýrir Guðbjörg.
Fraser Island er stærsti sandskafl í heimi en eyjan
er þó vaxin gróðri frá fjöru til fjalls. „Þegar maður
keyrir þarna um er það eins og að keyra í snjó, maður
þarf að vera á fjórhjóladrifnum jeppum til að komast
um eyna. Við heimsóttum síðan dýragarð sem hinn
heimsþekkti Steve Irvin heitinn áttifjölskyldu h Í
Kafað við
kóralrifin
„Þó að staðurinn sé hinum megin á hnettinum er ferðalagið vel þess virði til að geta upplifað hann,“ segir Guðbjörg.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Á EIGIN VEGUMAð ýmsu þarf að huga ef taka á fjölskyldubílinn með í sumarfríið.
BÍLAR 2
FERÐALJÓSMYNDUNMichael J. Kissane kennir ferðaljósmyndun hjá Náms-flokkum Hafnarfjarðar en hann hefur tekið myndir víða um heim.
FERÐIR 3
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐBJÖRG BRAGADÓTTIR
Hjónin langaði til að
vinna saman
ferðir bílar heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
LANDBÚNAÐUR
Fæðuöryggi
Íslendinga
Sérblað um landbúnað
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Aðrar leiðir
„Við þurfum í mörgu að fara aðrar
leiðir en hinar fjölmennari þjóðir,“
skrifar Bjarni Harðarson sem telur
upptöku svissnesks franka álitleg-
an kost fyrir Ísland.
UMRÆÐAN 19
Fyrsta keiluhöllin opnuð
á Akureyri
Markmiðið er að
vera með fjöl-
skylduvænan
stað þar sem
fólki líður vel.
TÍMAMÓT 20
Píanóverk Hafliða
Ungur Englendingur
flytur öll píanóverk
tónskáldsins Hafliða
Hallgrímssonar í
Salnum í kvöld.
MENNING 24
landbúnaðurMIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2008
Snorri Örn
Hilmarsson
er með holdanauta-rækt í Kjósinni.
BLS. 2
da
gar
til paska
i
1111
PERSÓNUVERND „Þetta er áhyggju-
efni, sjúklingar átta sig oft ekki á
því að oft er um að ræða allar
skráðar upplýsingar um heilsu-
far þeirra,“ segir Emil L. Sigurðs-
son, yfirlæknir Heilsugæslunnar
á Sólvangi. Hann segir trygginga-
félög og lögfræðinga í auknum
mæli farin að kalla eftir sjúkra-
skrám fólks í heild þegar unnið
er í málum þess.
Þengill Oddsson, yfirlæknir
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis,
tekur undir orð hans. „Sjúklingar
veita umboð um að það megi leita
upplýsinga um þá í tengslum við
slys og annað þess háttar. Lög-
fræðingar eru þó í meira og meira
mæli farnir að biðja um afrit af
öllum skrám og því gerir fólk sér
ekki grein fyrir þegar það veitir
samþykki sitt,“ segir Þengill.
Hann segir einnig að sjúkra-
skráningarkerfið Saga, sem nú er
notað, sé meingallað að því leyti
að það geri meðal annars ekki ráð
fyrir tímabundnum greiningum,
eða svokölluðum vinnugreining-
um, sem læknar styðjist mikið
við í störfum sínum. Þannig sé til
dæmis unglingur sem leitar til
læknis vegna vanlíðunar sem
fyrst og fremst stafar af ástar-
sorg greindur með depurð eða
þunglyndi því kerfið geri ekki
ráð fyrir öðru. Sú greining fylgi
sjúklingnum svo um aldur og
ævi.
Þá segir Emil að oft geri fólk
sér ekki grein fyrir því hversu
miklar upplýsingar sjúkraskrár
kunna að geyma um fortíðina
þegar þeir skrifa undir umboð.
Þannig geti smávægileg hass-
neysla, sem læknir hafi skráð
niður eftir viðtal við sjúkling
fyrir fjölda ára, komist á borð
tryggingafélaga eða lögfræð-
inga.
Nú er til skoðunar hjá heil-
brigðisráðuneyti uppbygging á
rafrænum sjúkraskrám sem allar
heilsugæslustöðvar landsins hafi
aðgang að. Emil segir að þótt
margt geti breyst til batnaðar
eftir að kerfið komist á sé ljóst að
varlega þurfi að stíga til jarðar.
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, segir að nú sé
unnið að athugun á öryggisráð-
stöfunum til að tryggja hag
sjúklinga sem best. „Frekari
dreifing þessarar skráningar
hlýtur að vekja upp spurningar,
bæði hjá sjúklingum og starfs-
fólki, um hvort trúnaður og öryggi
verði áfram jafn gott og verið
hefur.“ Það sé meðal annars hlut-
verk Persónuverndar að leggja
mat á hvernig komið verði í veg
fyrir að upplýsingar berist óvið-
komandi aðilum enda þótt sam-
eining heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins hafi átt sér stað. - kdk
Sjúkraskrár
sendar trygg-
ingafélögum
Læknar segja áhyggjuefni að tryggingafélög og
lögfræðingar séu í auknum mæli farin að óska eftir
allri sjúkrasögu þess fólk sem til þeirra leitar.
HELGA MÖLLER
Óvænt endurkoma
hjá Þú og ég
Tróðu upp á glæsilegri árshátið Landsbankans
FÓLK 34
NÁTTÚRA Ekkert andavarp var við
Reykjavíkurtjörn eða í friðlandi
fugla í Vatnsmýri síðasta sumar.
Ástand fuglalífs á tjörninni er óvið-
unandi og sinnuleysi borgaryfir-
valda í engu samræmi við mikil-
vægi fuglanna fyrir borgarbúa, að
mati höfunda nýrrar skýrslu um
fuglalíf tjarnarinnar.
Síðustu þrjú ár eru meðal fjög-
urra lökustu hjá öndum á tjörninni
frá upphafi mælinga. Á síðasta ári
komu aðeins grágæsir upp ungum
sínum áfallalítið í friðlandi fugla í
Vatnsmýrinni.
Viðkomubrestur annarra teg-
unda kemur til vegna fæðuskorts
og því að gengið hefur verið á varp-
lönd með húsbyggingum. Þá hafa
rándýr sótt í varplandið.
Höfundar skýrslunnar leggja til
að borgin ráði þegar í stað umsjónar-
mann með fuglalífinu á tjörninni,
nokkurs konar „andapabba“.
Bregðast verði við ástandinu
með því að tryggja öryggi andanna
í friðlandinu yfir varptímann,
fóðra unga yfir sumarið og koma í
veg fyrir ungadráp. - bj
Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn flýtur að feigðarósi að mati höfunda ástandsskýrslu:
Vilja ráða andapabba til starfa
GÆSAELDI Aðeins grágæsunum gengur
vel að koma ungum á legg í friðlandi
fugla í Vatnsmýri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VÍÐA SKÚRIR EÐA ÉL Í dag
verða norðaustan 3-10 m/s. Víða
skúrir eða él, síst þó vestan til á
Suðurlandi. Hiti 0-6 stig, mildast
suðaustanlands.
VEÐUR 4
1 2
3
42 SKÁK Skákmeistarinn Boris Spasskí lagði blómsveig á gröf vinar síns,
Bobbys Fischer, í kirkjugarðinum
í Laugardælum í gær.
Með í för voru aðrir stórmeist-
arar sem taka þátt í Reykjavíkur-
skákmótinu sem nú stendur yfir,
þeir Friðrik Ólafsson, Lajos Port-
isch, Vlastimil Hort, Pal Benko og
séra William Lombardy.
Lombardy var aðstoðarmaður
Fischers í „einvígi aldarinnar“ í
Reykjavík árið 1972. Hann leiddi
minningarstund um Fischer, en að
henni lokinni fluttu skákmeistar-
arnir minningarorð. - bj
Boris Spasskí heimsótti gröf Bobby Fischer:
Kvaddi gamlan vin
MINNINGARATHÖFN Boris Spasskí (til hægri) og nokkrir skákmeistarar minntust
fallins félaga í kirkjugarðinum í Laugardælum við Selfoss í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Frekari dreifing þessarar
skráningar hlýtur að
vekja upp spurningar, bæði hjá
sjúklingum og starfsfólki, um
hvort trúnaður og öryggi verði
áfram jafn gott og verið hefur.
SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR
FORSTJÓRI PERSÓNUVERNDAR
Liverpool komst áfram
Liverpool
varð í gær
fjórða enska
liðið sem kemst
í 8 liða úrslit
Meistaradeildar
Evrópu í ár.
ÍÞRÓTTIR 30