Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Daníel Geir Moritc kennaranemi hefur víða
komið enda ferðalangur mikill. Ein af ferðum
Daníels tók óvænta stefnu í Búdapest.„Ég fór í árshátíðarferð með Byggingafélagi náms-
manna til Búdapest. Á sama tíma var þar verið að
fagna fimmtíu ára afmæli byltingar sem gerð var
gegn Sovétríkjunum,“ segir Daníel. Efnt hafði verið til mikilla hátíð h
afmælisin ð
Þar sem Daníel og félagar hans litu út um
gluggann á staðnum sáu þeir hvar fleiri hundruð
manns flúðu undan táragasi lögreglurnar. Forvitnin
yfirtók þó smám saman skynsemi félaganna, sem
fundu sig knúna til að kíkja út. Þeir komust þó ekki
langt þar sem lögreglan var fljót að stöðva ferð
þeirra.
„Búið var að loka fjöli
Lenti í miðju mótmæla
Daníel Geir fór í saklausa árshátíðarferð sem endaði með miklum látum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RAFORKA ÚR METANÓLIEfnarafall sem framleiðir sjálfur orku getur veitt ferðalöngum aukið frelsi þar sem ekki er nauðsynlegt að leggja á stæði með rafmagnstenglum.
BÍLAR 2
LÚÐRAR HLJÓMAÍ þýska bænum Bad Orb eru haldin lúðrasveitamót og koma sveitir alls staðar að. Íslenska lúðrasveitin Svanur-inn vekur samt
ávallt athygli.
FERÐIR 4
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
9. apríl 2008 — 96. tölublað — 8. árgangur
SJÁVARÚTVEGUR
Með salt
í blóðinu
Sérblað um sjávarútveg
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
STJÓRNMÁL Þingflokkur Samfylkingarinnar
hafnar hugmyndum dómsmálaráðuneytisins
um skipan lög- og tollgæslumála á Suðurnesj-
um, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Tollalögum þarf að breyta til þess að hugmynd-
irnar verði að veruleika og ætlar þingflokkur
Samfylkingarinnar að standa gegn því.
Þingflokkurinn fundaði um boðaðar breyt-
ingar á mánudag og varð niðurstaðan sú að
hafna hugmyndunum um uppskiptingu
embættisins.
Í breytingunum felst að verkefni tollgæsl-
unnar heyri undir fjármálaráðuneyti, yfir-
stjórn öryggismála vegna flugverndar á
Keflavíkurflugvelli undir samgönguráðuneyti
en lög- og landamæragæsla undir dómsmála-
ráðuneyti. Jóhann R. Benediktsson, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, hefur lýst sig mótfallinn
hugmyndunum líkt og undirmenn hans hjá
embættinu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telja
þingmenn Samfylkingarinnar breytingarnar
óskynsamlegar og ekki í takt við tilmæli sem
komið hafa frá Ríkisendurskoðun í skýrslu um
ráðstafanir gegn innflutningi ólöglegra
fíkniefna. Í henni segir meðal annars að móta
eigi heildarstefnu til nokkurra ára í tollamálum
fyrir landið allt.
Breytingarnar sem boðaðar hafa verið snúa
aðeins að embættinu á Suðurnesjum, og finnst
þingmönnum það til marks um ófaglegt
verklag.
- mh
Þingflokkur Samfylkingar
hafnar breyttri löggæslu
Þingflokkur Samfylkingarinnar leggst gegn hugmyndum dómsmálaráðuneytisins um uppskiptingu emb-
ættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þingmenn Samfylkingar telja breytingarnar óskynsamlegar.
VIÐSKIPTI Ísland og íslensk fjár-
málafyrirtæki hafa orðið fyrir
kerfisbundnum árásum fjögurra
erlendra vogunarsjóða síðustu
vikur og mánuði, að sögn Sigurð-
ar Einarssonar, starfandi stjórn-
arformanns Kaupþings. Allt útlit
sé fyrir að atlögunni hafi verið
hrundið.
„Mér sýnist að það séu einkum
fjórir vogunarsjóðir sem hafa
stundað þetta af miklum krafti,“
segir Sigurður og nefnir til sög-
unnar Trafalgar Funds, Cheney
Capital, Landsdowne Fund og
Ako Capital. Þessir aðilar og
fleiri hafi tekið skortstöður í
skuldatryggingum, en snúið sér
svo að því að hafa kerfisbundið
samband við erlenda fjölmiðla og
greiningardeildir banka með nei-
kvæðar spurningar og athuga-
semdir um íslenskt efnahagslíf
og bankana. Við það hafi skulda-
tryggingaálag hækkað, til hafi
orðið svokallað Íslandsálag og
vogunarsjóðirnir náð fyrir vikið
umtalsverðum hagnaði gegnum
skortstöður sínar.
- bih / sjá Markaðinn í dag
Kaupþing ræðst gegn skortstöðum erlendra spákaupmanna gegn Íslandi:
Atlögu vogunarsjóða hrundið
LÖGREGLUMÁL Kristófer Helgason,
útvarpsmaður á Bylgjunni, flytur
meðal annars inn rafbyssur þær
sem lögreglan hefur til skoðunar
með það fyrir augum að taka upp
notkun þeirra hér á landi.
Kristófer, sem á KHelgason
heildverslun, fór á sérstakt
námskeið til að læra á tækið og
virkni þess. Hluti námskeiðsins
fólst í að vera skotinn með
rafbyssunni: „Þetta var vont, á að
vera vont en um leið og lokað var
fyrir strauminn var allur sársauki
fyrir bí og engin eftirköst.“
- jbg/sjá síðu 30
Kristófer Helgason:
Var skotinn
með rafbyssu
DANÍEL GEIR MORITC
Via Via Hungaria og
táragas í Búdapest
ferðir bílar heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
Þú færð UMM-réttina
í Nesti á N1 stöðinni.
Börn frægra
á svið
Afkvæmi þekktra ein-
staklinga slá í gegn í
fyrirsætuheim-
inum.
FÓLK 22
Léku fyrir
Harold Pinter
Unnur Ösp og Björn
Thors gerðu það
gott með Ham-
skiptin í Bretlandi.
FÓLK 24
Rætur kreppunnar
„Hið ótrúlega var hvernig Seðla-
bankinn, undir forystu Greens-
pans, stóð aðgerðalaus hjá meðan
fasteignabólan sótti í sig veðrið
og beið þess að springa“, skrifar
Jeffrey Sachs.
Í DAG 16
HVASST NORÐVESTAN TIL Í dag
verður hvöss norðaustanátt á Vest-
fjörðum og norðvestan til, annars
hægari. Rigning eða slydda vestan
til í fyrstu síðan úrkomulítið. Stöku
skúrir eða él annars staðar.
VEÐUR 4
0
3
3
2
1
STOLTUR MEÐ VEIÐINA Þiðrik Unason á Klakki SH-510 var stoltur af þessum tveimur skötuselum við uppskipun í Reykjavíkurhöfn
í gær. Skötuselurinn veiðist í vaxandi mæli hér við land vegna hlýnunar sjávar og þykir hið mesta lostæti, þótt vart geti hann talist
með fallegri fiskum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Liverpool og
Chelsea mætast
Ensku liðin Liverpool
og Chelsea mætast í
undanúrslitum Meist-
aradeildarinnar eftir
dramatískt kvöld í
Meistaradeildinni.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
HEILSA Draga á úr offitu barna
með því að banna ísbíla, að sögn
sænsks prófessors.
„Farandsala á ís og sælgæti þar
sem tónlist er notuð til að lokka
börnin að bílnum tengist offitu-
vandamálum hjá börnunum
okkar,“ segir Bo Sjöberg, prófess-
or við Sahlgrensku akademíuna í
Gautaborg, í viðtali við Dagens
Nyheter. - ghs
Sænskur prófessor:
Vill banna ísbíla