Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 4
4 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL „Ég hef rætt mál piltsins við færeysk
yfirvöld og lýst þeirri skoðun að þessi langa
einangrunarvist væri illskiljanlegt harðræði.“
Þetta segir Eiður Guðnason, ræðismaður Íslands í
Færeyjum, spurður um aðkomu hans að máli unga
mannsins sem setið hefur í einangrun í fangelsi í
Þórshöfn í nær hálft ár. Málið er nú fyrir dómstólum í
Færeyjum. Eiður kveðst ekki hafa formlega aðkomu
að málinu frekar en öðrum dómsmálum.
„Mér var til að mynda ekki tilkynnt á sínum tíma
um að íslenskur ríkisborgari hefði verið handtekinn
og gerði ég athugasemd við það,“ segir Eiður.“
Vandinn er hins vegar sá að lögreglumál hér eru enn
í höndum Dana, þannig að færeysk yfirvöld hafa
lítil áhrif á þessi mál. Þau vita hins
vegar vel um skoðanir okkar á
þessari löngu einangrun.“
Eiður kveðst hafa rætt við
danska lögfræðinginn sem er
saksóknari í málinu svo og við
færeyska lögmanninn sem er
verjandi unga mannsins.
„Ég hef um nokkurt skeið
heimsótt unga manninn vikulega,“
bætir hann við, „og fært honum
bækur, afþreyingarefni og fleira.“
Vitnaleiðslum í máli unga mannsins var fram
haldið fyrir dómi í Þórshöfn í gær. Þá báru meðal
annars vitni kærasta hans og fjölskylda hennar.
„Þetta hefur verið afar erfitt í dag fyrir þau öll,
bæði son minn, kærustu hans, vini og fjölskyldu
hennar,“ segir Íris Inga Svavarsdóttir, móðir
mannsins. Hún segir honum verða haldið í einangrun
fram á föstudag. Hún fái að hitta hann án eftirlits
eftir að dómur í málinu sé genginn, fyrr ekki.
Íris Inga segir augljóst að saksóknarinn sé að
reyna að koma sök í Pólstjörnumálinu í heild sinni á
unga manninn. Saksóknari hafi farið í smáatriðum
yfir allt málið, sýnt myndir af skútunni bak og fyrir,
hvar efnin voru geymd, myndir af heildarmagni
fíkniefnanna sem komu til Íslands, símunum sem
Pólstjörnumennirnir voru með og svo mætti áfram
telja.
Athygli hefur vakið að íslenskir lögreglumenn sem
rannsökuðu Pólstjörnumálið hafa ekki verið kvaddir
fyrir dóminn í Færeyjum til að bera vitni. Íslenska
lögreglan hefur sent umbeðin gögn til Færeyja. Í
vitnaskýrslum sem teknar voru af Pólstjörnumönn-
unum hér heima kemur fram að Íslendingurinn í
Færeyjum hafi enga aðild átt að fjármögnun né
skipulagningu smyglsins, né haft vitneskju um það
fyrr en í lok tímans sem smyglararnir dvöldu þar
vegna bilunar í skútunni. jss@frettabladid.is
Einangrunarvistin er
illskiljanlegt harðræði
Ræðismaður Íslands í Færeyjum segir langa einangrunarvist Íslendings í fang-
elsi þar illskiljanlegt harðræði. Hann hefur lýst þeirri skoðun sinni við þarlend
yfirvöld. Saksóknari vill dæma manninn fyrir aðild að öllu Pólstjörnumálinu.
EIÐUR GUÐNASON
EINANGRUN Íslendingurinn dvelur enn í einangrunarklefa eins
og þessum. Myndin er tekin í fangelsinu í Þórshöfn.
MYND/DIMMALÆTTING
Undir mynd af Íþróttamiðstöð Álfta-
ness neðst á annarri síðu sérblaðs
um byggingariðnað í Fréttablaðinu
í gær var fyrir mistök settur texti um
Ásvallalaug í Hafnarfirði.
LANDBÚNAÐUR Upplýsingar sem
teknar hafa verið saman um
afkvæmi nauta sem komu í heim-
inn árið 2002 sýna að í honum voru
yfirburðanaut sem gefið hafa
mjög góð afkvæmi sem eru líkleg
til að stuðla að framförum íslenska
kúastofnsins. Þetta segir Svein-
björn Eyjólfsson, framkvæmda-
stjóri Nautastöðvar Bændasam-
taka Íslands.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir
bændur en ekki síður fyrir neyt-
endur,“ segir Sveinbjörn og
útskýrir að á hverju ári sé tekið
sæði úr um 20 til 30 efnilegum
nautum. Eftir að 6.600 skammtar
hafa fengist úr hverjum þeirra sé
þeim slátrað en vandlega sé fylgst
með afdrifum þeirra mjólkurkúa
sem þeir gefa af sér. Venjulega
komi í ljós að um sex til átta nauts-
kálfar gefa af sér afkvæmi sem
þykja líkleg til að stuðla að fram-
förum íslenska kúastofnsins og er
sæði þeirra því nýtt áfram og fá
þeir heitið nautsfeður. Sæði hinna
nautanna er svo hent.
Sveinbjörn segir að af hinum
efnilega nautahópi sem kom upp
árið 2002 fari fremstur í flokki
nautið Skurður fá Stóru-Mörk í
Rangárþingi eystra „Úr honum
eigum við 5.500 skammta enn,“
segir Sveinbjörn og má því búast
við þónokkuð mörgum gæðakúm
undan honum í framtíðinni.
- kdk
Óvenjumörg afburðanaut ársins 2002 þykja líkleg til að bæta kúastofninn:
Gæðanautasæði kætir bændur
KÝR Sæði gæðanauta sem komu í heim-
inn árið 2002 þykja líkleg til að stuðla að
framförum íslenska kúastofnsins.
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
ÍRAN, AP Íranar eru að koma sér
upp sex þúsund nýjum skilvind-
um til að auðga úran í kjarn-
orkuvinnslustöð sinni í Natanz.
Mahmoud Ahmadinejad forseti
tilkynnti þetta í gær. Í dag eru
þrjú þúsund skilvindur í notkun
í Natanz.
Viðbrögð vesturvelda hafa
verið misjöfn. Frakkar kölluðu
eftir að samþykktum öryggis-
ráðs SÞ yrði fylgt eftir, en
Rússar vilja leggja fram nýjar
tillögur um efnahagstengsl,
gegn því að Íranar hætti við.
Íranar hafa nýverið hafnað
slíkum samningi og stefna að
því að koma upp 54.000 skilvind-
um. - kóp
Íranar fjölga úranskilvindum:
Auka ótrauðir
auðgun úrans
ÚRAN Í ÍRAN Frá tilraunum í kjarnorku-
stöðinni í Natanz. NORDICPHOTOS/GETTY
Þau mistök urðu við gerð fréttar af
tískusýningu nema á öðru ári í fata-
hönnun við Listaháskóla Íslands, að
hönnun Maríu Bjargar Sigurðardóttur
var eignuð Ernu Bergmann.
LEIÐRÉTTINGAR
LÖGREGLUMÁL Rökstuddur grunur
leikur á að meintir hraðbanka-
ræningjar, sem voru á ferli í
höfuðborginni um páskana, hafi
átt vitorðsmenn hér á landi.
Gæsluvarðhald yfir þeim var
framlengt í fyrradag til 18. apríl.
Mennirnir tveir, sem eru frá
Rúmeníu og Þýskalandi, voru
gripnir í Leifsstöð í lok síðasta
mánaðar þar sem þeir voru á leið
úr landi með milljónir íslenskra
króna. Þeir voru með fjölmörg
greiðslukort, sem þeir notuðu
við svikin. Þeir fóru vítt og
breitt um höfuðborgina og sviku
milljónir út úr hraðbönkum.
- jss
Hraðbankaþjófar enn í haldi:
Grunur um vit-
orðsmenn hér
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Róm
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
6°
10°
7°
5°
7°
12°
12°
10°
14°
8°
19°
17°
18°
10°
21°
15°
27°
14°
Á MORGUN
10-15 m/s norðvestan til
annars mun hægari.
FÖSTUDAGUR
5-13 m/s, hvassast
með ströndum.
1
0
1
12
2
2
3
3
-1
4
8
9
15
6
3
5
5
7
9
18
8
1
5 4
2
2
5 5
1
11
VÍÐA ÚRKOMA
Framan af morgni
verður úrkomusamt
á landinu vestan-
verðu með rigningu
eða slyddu en sum-
staðar snjókomu.
Eftir hádegi dregur
úr þessari úrkomu.
Norðan til og austan
má hins vegar búast
við stöku snjó- eða
slydduéljum í dag
og allra syðst verður
úrkomuloft viðloð-
andi til kvölds.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Dópsali fékk einn mánuð
Karlmaður var í gær dæmdur í eins
mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir
að hafa í vörslu sinni um 114 grömm
af marijúana sem lögregla fann við
húsleit. Efnin voru ætluð til sölu.
DÓMSTÓLAR
LÖGREGLUMÁL Yfirhundaþjálfari
ríkislögreglustjóra afhenti
formlega í fyrradag fíkniefnaleit-
arhundinn Codie til embættis
lögreglustjórans á Seyðisfirði.
Hundurinn hefur verið grunn-
þjálfaður og nú tekur embættið
við honum til áframhaldandi
þjálfunar hunds og hundamanns.
Kaup á hundinum voru fjármögn-
uð með gjafafé. Hann verður
notaður jöfnum höndum í þágu
lög- og tollgæslu í baráttunni
gegn meðferð, sölu og innflutn-
ingi á fíkniefnum. - jss
Ríkislögreglustjóri:
Fíkniefnahund-
ur á Seyðisfjörð
Fá inni á heimasíðunni
Listamönnum í Vogum á Vatnsleysu-
strönd verður að ósk sinni og fá
svæði á heimasíðu sveitarfélagsins til
að kynna sjálfa sig.
VOGAR
LÖGREGLUMÁL Sturla Jónsson,
talsmaður bílstjóra, hefur verið
boðaður til skýrslutöku hjá
lögreglunni klukkan 9 í dag. Sturla
var boðaður
vegna aðgerða
bílstjóra síðustu
daga.
„Það virðist
vera bannað að
mótmæla á
Íslandi, ég get
ekki séð annað,“
segir Sturla.
Hann segir
bílstjóra fráleitt hætta mótmælum.
„Nei, við ætlum að klára málið
og munum fara af stað einhvern
tímann á næstu dögum. Menn eru
að ræða stóra stoppið,“ segir
Sturla, en þar á hann við það að
skilja fjölda trukka eftir mann-
lausa í umferðinni. - kóp
Sturla Jónsson bílstjóri:
Boðaður í
skýrslutöku
STURLA JÓNSSON
GENGIÐ 08.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
146,7342
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
72,43 72,77
143,07 143,77
114,09 114,73
15,291 15,381
14,32 14,404
12,18 12,252
0,7087 0,7129
118,47 119,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR