Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 6
6 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR 2 fyrir 1 UMHVERFISMÁL Al Gore, fyrrver- andi varaforseti Bandaríkjanna og friðarverðlaunahafi Nóbels, tjáði troðfullum stóra sal Háskólabíós í gær að þótt Íslendingar sýndu gott fordæmi með heimsforystu í nýt- ingu endurnýjanlegra orkugjafa yrðu þeir eins og aðrar þjóðir heims að leggja meira á sig til að vinna gegn loftslagsbreytingum af völd- um losunar gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið. Það væri „sið- ferðisleg skylda“ núlifandi kyn- slóðar jarðarbúa gagnvart komandi kynslóðum. Gore kom víða við í nærri tveggja tíma löngum fyrirlestri sínum. Hann hóf mál sitt á að þakka Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, fyrir að bjóða sér hingað og fyrir áratuga gagnkvæma vináttu sem hefði hafist er þeir báðir voru óbreyttir þingmenn. Líkt og í hinni verðlaunuðu kvik- mynd og bók sinni, „Óþægilegum sannleika“, lýsti Gore margvísleg- um dæmum um þær afleiðingar sem síhækkandi hlutfall koltvísýr- ings í lofthjúpi jarðar og gróður- húsaáhrifin muni hafa í för með sér. Gore sagði að í höfuðdráttum væru þrír þættir sem yllu því að hraði loftslagsbreytinga hefði verið að aukast á síðustu árum og stefndi í að aukast enn frekar, ef ekkert yrði að gert. Í fyrsta lagi ylli fólks- fjölgunarsprenging síðustu ára- tuga ört vaxandi eftirspurn eftir matvælum sem ylli því að æ stærri hlutar frumskógarins í hitabeltinu – „lungu jarðar“ - væri eytt til að ryðja land til ræktunar og búsetu. Þessi skógareyðing veldur fjórð- ungi hinnar árlegu aukningar á kol- tvísýringslosun í heiminum. Með iðnvæðingu þróunarlandanna stór- eykst líka notkun þeirra á jarðefna- eldsneyti. Í öðru lagi yllu tækniframfarir því að mannkynið gerist æ stór- tækara í inngripum sínum í náttúr- una, svo sem í landbúnaði, fiskveið- um, námuvinnslu og mannvirkjagerð. Í þriðja lagi væri það hugsunar- háttur fólks. Honum þyrfti að breyta. Að sínu áliti væri vænleg- ast til árangurs að „setja verðmiða á kolefnið“. Það er að segja að koma á kerfi þar sem allir losendur gróð- urhúsalofttegunda væru látnir greiða fyrir losunina með því að vera gert að kaupa sér losunar- heimildir. Gore sagði mikið undir því komið fyrir framtíð lífs á jörðinni að þjóð- ir heims sameinuðust um það á loftslagsráðstefnu SÞ í Kaup- mannahöfn á næsta ári að setja sér bindandi markmið um að draga svo um munar úr losuninni á komandi árum. Enginn mætti skorast undan því að taka þátt í að axla þá byrði – allra síst hans eigið land, Bandarík- in. Komandi kynslóðir muni þakka okkur fyrir það. audunn@frettabladid.is Siðferðisleg skylda að leggja baráttunni lið Al Gore, þekktasti baráttumaður heims fyrir hnattrænum aðgerðum gegn hlýnun loftslags, segir það siðferðislega skyldu Íslendinga og annarra þjóða að gera það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. GORE Í HÁSKÓLABÍÓI Húsfyllir var á fyrirlestrinum, sem Glitnir og Háskóli Íslands stóðu að. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VINIR Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Gore báru lof hvor á annan og þökkuðu fyrir áralanga vináttu. ATVINNUMÁL Óljóst er hvaða olíufé- lag, eða félög, hefur áhuga á því að reka olíuhreinsunarstöð á Vest- fjörðum. Ólafur Egilsson, annar tveggja eigenda Íslensks hátækni- iðnaðar, sem unnið hefur að kynn- ingu olíuhreinsunarstöðvar hér á landi, segist ekki geta gefið upp á þessari stundu hvaða olíufyrirtæki séu að baki hugmyndinni um olíu- hreinsunarstöðina. „Við brjótum ekki trúnað,“ sagði Ólafur. Starfs- menn á upplýsingasviði rússnesku olíufélaganna LUKOIL og Gaz- prom Neft, olíuhluta rússneska rík- isfyrirtækisins Gazprom, neituðu því í samtali við Fréttablaðið í gær að félögin hefðu nokkuð með hug- mynd um olíuhreinsunarstöð að gera. Það sama gerði Eirik Hauge, yfirmaður olíufyrirtækisins Exxon Mobil í Noregi. „Við komum ekki að þessari hugmynd með neinum hætti og höfum það ekki á stefnu- skránni,“ sagði Eirik í samtali við Fréttablaðið. Fyrirtækið Katamag-Nafta, sem er dótturfyrirtæki Geostream, hefur átt í viðræðum við Íslenskan hátækniiðnað en það fyrirtæki hefur í gegnum árin starfað mikið með fyrrnefndum olíufyrirtækjum í Rússlandi. Markmið olíuhreinsunarstöðvar er að sögn Ólafs Egilssonar að treysta undirstöður íslensks efna- hagslífs, auka fjölbreytni þess og efla framleiðslu sem byggir á full- vinnslu hráefnis úr náttúrunni, það er jarðolíu. Helst er stefnt á að hafa stöðina í Arnarfirði eða á Söndum í Dýrafirði. - mh Ekki er ljóst hverjir standa að hugmyndinni um olíuhreinsunarstöð: Neitar að upplýsa um bakhjarl ARNARFJÖRÐUR Íslenskur hátækniiðn- aður vinnur að framgangi hugmyndar um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/BB MÓTMÆLI Verði breytingar á stefnu ríkisstjórnarinnar hvað varðar olíumál og samgöngur er þeirra ekki að vænta fyrr en að loknu næsta haustþingi, segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Hann fundaði með fulltrúum atvinnubíl- stjóra í gær. Árni segir fundinn hafa verið góðan, bílstjórar hafi náð að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. „Ég mun koma á fundi bílstjóra og þeirra sem vinna að þessum málum fyrir okkur svo raddir þeirra heyrist vel inni í þeirri vinnu. Í vinnu nefndanna þarf að sameina fjölmörg sjónarmið,“ segir Árni og vísar þar í þrjár nefndir sem vinna að málinu. Nefnd á vegum fjármála- ráðuneytisins sem skoðar samræm- ingu á gjaldtöku á ökutækjum og eldsneyti út frá umhverfissjónar- miðum, nefnd um almenningssam- göngur á vegum samgönguráðu- neytisins og nefnd á vegum viðskiptaráðuneytisins um land- flutninga. Sturla Jónsson, talsmaður bíl- stjóra, segir ýmislegt gagnlegt hafa komið fram, en aðgerðir vanti. „Við getum ekkert beðið fram á haust eða enn lengur,“ segir Sturla og telur frekari aðgerðir vísar. Ráðherra segir ríkisstjórnina ekki munu funda sérstaklega um aðgerðir og kröfur bílstjóra. - kóp Fjármálaráðherra fundaði með atvinnubílstjórum: Breytingar ekki mögulegar fyrr en að loknu haustþingi SVÍÞJÓÐ Maður hefur verið handtekinn grunaður um aðild að hvarfi tíu ára gamallar stúlku, Englu Juncosa-Höglund, í Svíþjóð. Maðurinn er atvinnubílstjóri og gamall kunningi lögreglunnar. Hann hefur neitað aðild, að sögn sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. Engla hvarf á laugardaginn þegar hún var að hjóla heim til sín. Fyrir tilviljun voru myndir teknar af Englu á leiðinni og umhverfinu. Á einni myndinni sést í rauðan bíl. Hinn handtekni á rauðan Saab. Ef Engla finnst ekki á næstunni er talið víst að hún sé látin, að sögn lögreglu. - ghs Hvarf stúlku í Svíþjóð: Handtekinn maður neitar ÓÁNÆGÐIR BÍLSTJÓRAR Bílstjórar voru ekki ánægðir með þau svör sem þeir fengu hjá fjármálaráðherra. Vilt þú að íslenskir ráðherrar leigi þotur til ferðalaga? Já 32,1% Nei 67,9% SPURNING DAGSINS Í DAG Munu pálmatré skjóta rótum á Íslandi á okkar tímum? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.