Fréttablaðið - 09.04.2008, Page 8
9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
20
08
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
41
90
5
0
4.
20
08
Fjármálakvöld Landsbankans
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“,
röð fjármálanámskeiða fyrir almenning. Á námskeiðunum
fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjár-
málum heimilanna, fjárfestingartækifærum og skatta-
málum. Fjármálakvöldin hefjast kl. 20 og eru öllum opin
án endurgjalds. Í boði eru kaffi og veitingar.
Dagskrá fjármálakvölda
24. jan. Höfðabakki Fjármál heimilisins
7. feb. Akranes Fjárfestingartækifærin
21. feb. Laugavegur 77 Skattamál
6. mars Mjódd Skattamál
27. mars Vesturbær Fjárfestingartækifærin
3. apríl Ísafjörður Fjármál heimilisins
10. apríl Fjarðargata, Hafnarfj. Fjárfestingartækifærin
Fjárfestingartækifærin
Sérfræðingar frá Landsbankanum fara yfir hvar fjárfest-
ingartækifærin liggja, hvert stefnir á hlutabréfamarkaði,
hvert krónan er að fara og hvað er á döfinni í vaxtamálum.
Skráning á fjármálakvöldin fer fram á landsbanki.is eða
í Ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 4000.
Nánari upplýsingar á www.landsbanki.is
ALÞINGI Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra færði rök fyrir nauðsyn þess að Ísland reki
virka utanríkisstefnu í umræðum um utanríkismál á
Alþingi í gær. Hún sagði stundum látið að því liggja
að Ísland ætti helst ekki að kveðja sér hljóðs á
alþjóðavettvangi og ætti þar takmarkað erindi. „Enn
heyrist að Íslandi farnist best að taka aðeins þátt
þegar um þröngt skilgreinda sérhagsmuni er að
ræða. Þetta sjónarmið kann að hafa átt við hér áður
fyrr, en ekki í dag,“ sagði Ingibjörg.
Hún sagði utanríkisstefnu landsins byggja á
þríþættum styrkleika landsins; reynslu á sviði
sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda, þekkingu af
nýtingu endurnýjanlegrar orku og merkra sögulegra
áfanga í jafnréttisbaráttu kvenna og sterkrar
ímyndar íslenskra kvenna. Ingibjörg rakti nokkur
helstu viðfangsefnin á sviði utanríkismála og
staldraði meðal annars við Afríku. Sagði hún unnið að
heildstæðri framkvæmdaáætlun um málefni
álfunnar sem taka mundi til stjórnmálasamskipta auk
þróunarsamstarfs og friðarþróunar. „Það er álit mitt
að við höfum að vissu leyti vanmetið stjórnmálalegt
mikilvægi Afríkuríkja og einblínt um of á aðstoðar-
þáttinn í samskiptum okkar við þau.“ Ingibjörg sagði
Ísland hafa fengið áheyrnaraðild að Afríkusamband-
inu og til að fylgja því eftir og efla enn frekar
samstarf við samtökin og einstök Afríkuríki yrði
Svavar Gestsson, sendiherra í Kaupmannahöfn,
sérstakur fulltrúi Íslands gagnvart Afríkusamband-
inu, með aðsetur í Addis Ababa í Eþíópíu. Mun hann
gegna því verki samhliða störfum sínum í Kaup-
mannahöfn. Gat hún þess að vera hans þar myndi
gagnast framboðinu til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Í sérstökum kafla um framboðið sagði
Ingibjörg að á annað hundrað ríki hefðu veitt
skriflegt vilyrði um stuðning.
Ingibjörg sagði mikið hafa verið unnið í því
augnamiði að flétta mannréttindaáherslur inn í
stefnu og aðgerðir Íslands í ólíkum málaflokkum
alþjóðamála, enda varði átakamál samtímans oftast
mannréttindi. Kvaðst hún nefna þetta þar sem heyrst
hefðu háværar kröfur frá fámennum hópi um að
Ísland ætti að ganga lengra heldur en önnur lönd í
Evrópu og slíta stjórnmálasambandi við ríki sem
gagnrýnd væru fyrir mannréttindabrot. „Slík
viðbrögð skila ekki endilega árangri en leiða augljós-
lega til áhrifaleysis, í einskis þágu. Þolendur mann-
réttindabrota um víða veröld eru engu bættari,“ sagði
hún og bætti við að Ísland ætti ekki að slíta stjórn-
málasambandi, heldur beita því í þágu friðsamlegrar
lausnar deilumála. bjorn@frettabladid.is
Aukin pólitísk sam-
skipti við Afríkuríki
Íslendingar hafa vanmetið stjórnmálalegt mikilvægi Afríkuríkja og horft um of
á aðstoð við þau, að mati utanríkisráðherra. Þessu á að breyta. Svavar Gestsson
sendiherra verður sérstakur fulltrúi Íslands í Afríku næstu mánuði.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Utanríkisráðherra flutti ræðu
um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á fót vettvangi
fyrir samráð formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi
um þjóðaröryggismál. Er gert ráð fyrir að þeir hittist vor
og haust og ræði um stöðu og þróun mála varðandi
þjóðaröryggi og hættumat, stöðu mála innan alþjóða-
stofnana og samráð við helstu samstarfsríki. Með þessu
er yfirlýsing ríkisstjórnarinnar úr stjórnarsáttmálanum
komin til framkvæmda. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra upplýsti þetta í ræðu sinni um utan-
ríkismál á Alþingi í gær.
SAMRÁÐ UM
ÞJÓÐARÖRYGGISMÁL
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs, sagði margt í ræðu
utanríkisráðherra og stefnu Íslands í utanríkis-
málum hljóma mjög vel. En best væri að horfa
á stefnuna eins og hún birtist og velta fyrir sér
hvort innistæður væru fyrir fögru orðunum.
Komst hann að því að svo væri ekki.
Steingrímur gagnrýndi skort á samráði við
utanríkismálanefnd áður en oddvitar stjórnar-
flokkanna héldu á leiðtogafund Nató og þátttöku
Íslands í aðgerðunum í Afganistan. Lýsti hann
jafnframt áhyggjum af loftlagsbreytingum og
sagði íslensk stjórnvöld draga lappirnar gagnvart þeirri vá.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, ítrekaði þá afstöðu
flokks síns að Ísland ætti að segja sig úr Nató.
Magnús Stefánsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins, og Kristinn H. Gunnarsson, þing-
flokksformaður Frjálslynda flokksins, lýstu báðir
nokkurri ánægju með utanríkisstefnuna. Fagnaði
Magnús þeim sinnaskiptum sem greinilega hefðu
orðið í röðum Samfylkingarþingmanna því þeir
hefðu í tíð fyrri ríkisstjórnar gagnrýnt fjárframlög
til utanríkisþjónustunnar en ekki væri annað að
sjá en að nú ætti að efla hana.
Kristinn var sama sinnis en sagði mikilvægt að
leita leiða til að lágmarka kostnað. Harmaði hann
líka hve treglega gengi að koma á samráði ráðherra og
utanríkismálanefndar.
Steingrímur J. efast um innistæður
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Gagnrýni á að utanríkisráðherra hafi ekki fundað með
utanríkismálanefnd í aðdraganda leiðtogafundar Atl-
antshafsbandalagsins í Búkarest í síðustu viku er rétt-
mæt, að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. „Að sjálf-
sögðu hefði átt að halda fund með utanríkismálanefnd
og fara yfir málin,“ sagði Ingibjörg á Alþingi í gær. Hún
sagði að svo hefði háttað til að þingið hefði verið í fríi
til 30. mars og aðeins starfað í tvo daga eftir páskaleyfi
áður en fundurinn ytra hófst. Því hefði ekki gefist rúm
til að hafa eðlilegt samráð við utanríkismálanefnd.
RÉTTMÆT GAGNRÝNI Á
SAMRÁÐSLEYSI
STJÓRNMÁL Flug ráðamanna með
leiguþotum kostaði tæplega 850
þúsund krónum meira en hefðu
þeir flogið með áætlunarflugi,
samkvæmt tilkynningu sem for-
sætisráðuneytið gaf út í gær.
Samkvæmt henni hefði kostnað-
ur við áætlunarflug, hótel og
öryggismál við Búkarestförina
verið um 3,7 milljónir króna ef
farið hefði verið með áætlunar-
flugi. Leiga á þotu frá flugfélag-
inu IceJet kostaði 4,2 milljónir
króna. Fimm vinnudagar spöruð-
ust við að fara þessa leið, sem
verðlagðir eru á um 200 þúsund
krónur og dagpeningar á um 100
þúsund krónur.
Ráðherrar flugu til Svíþjóðar
með flugvél frá flugfélaginu Erni
og nam leigan á henni 2.680.000
krónum, en kostnaður með áætl-
unarflugi hefði verið 1.106.000
krónur samkvæmt upplýsingum
frá ráðuneytinu. Þá eru 360 þús-
und krónur sagðast hafa sparast
með færri nóttum á hóteli og
sparnaði í dagpeningum og vinnu-
dögum. Samanlagður kostnaðar-
auki miðað við áætlunarflug er
því tæplega 850 þúsund krónur.
Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðar-
maður forsætisráðherra, segir að
ráðuneytið hafi orðið að gefa
kostnaðinn upp samkvæmt upp-
lýsingalögum. Forsætisráðherra
mun fljúga með áætlunarflugi í
ferð til N-Ameríku sem hann fer í
apríl, að því er kemur fram í til-
kynningunni. - kóp
Kostnaður við flug með leiguþotum kunngerður:
850 þúsund krónum dýrara
ÞOTA ICEJET Dornier-vélin sem Geir H.
Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
flugu með til Búkarest. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI