Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 10
10 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR ÚTAF! Japanski mótorhjólaökuþórinn Noriyuki Haga sést hér í loftköstum ásamt Yamaha-hjóli sínu eftir útafakst- ur í Superbike-meistaramótskeppni í Cheste við Valencia á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HENSON OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11 - 19 BARA Í DAG STJÓRNMÁL Þó að Vegagerðin hafi metið Breiðafjarðarferjuna Bald- ur á 70-80 milljónir króna var ákveðið í fjármálaráðuneytinu að selja hana fyrir 37,8 milljónir. Verðmatið, sem Einar Her- mannsson skipaverkfræðingur vann fyrir Vegagerðina, lá fyrir í desember 2005. Nokkrum vikum síðar var skipið selt úr ríkiseigu. Fjármálaráðuneytið annaðist söluna og seldi Sæferðum ehf. skipið en fyrirtækið hafði haft það á leigu. Ríkið auglýsti ekki Baldur til sölu eða leitaði tilboða heldur seldi Sæferðum beinni sölu. Tveimur vikum eftir að Sæferð- ir keyptu Baldur seldi fyrirtækið skipið til útlanda fyrir tæpar 100 milljónir. Samkvæmt sérstökum samningi rann hluti ágóðans til ríkisins, tæpar sautján milljónir króna, en eftir stóð söluhagnaður fyrirtækisins – um 45 milljónir króna. Í svari samgönguráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnars- sonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, kemur fram að verð- mat upp á 70-80 milljónir hafi legið fyrir í desember 2005. Kristinn furðar sig á vinnubrögð- unum í kringum sölu Baldurs og telur þau óeðlileg. „Menn eru ekki að ráðstafa eigum ríkissjóðs með eðlilegum hætti,“ segir Kristinn. „Það á að selja eignir ríkissjóðs á matsverði. Ef vikið er frá því á að útskýra það. Það hefur ekki verið gert.“ Kristinn bíður enn svara fjár- málaráðuneytisins við fleiri spurningum um málið en segir að næst á dagskrá sé að grennslast fyrir um skýringar á því að sölu- verðið var miklu lægra en mats- verðið. „Mér finnst yfir- bragðið vera að menn hafi vit- andi vits selt á þessu verði og fært eigið fé inn í Sæferðir. Það er óeðlilegt að menn telji sér skylt að styrkja ákveðna þjónustu en ef þeir ætla að gera það verða þeir að hafa allt uppi á borðinu.“ Kristni finnst líklegt að vitn- eskja um áframsölu Sæferða á Baldri hafi legið fyrir innan rík- isins. Í því ljósi sé söluverðið furðulegt. „Þeir fá á milli 40 og 50 milljónir í hagnað fyrir að eiga skipið í tvær vikur. Mér sýnist að þetta hafi allt legið fyrir og spyr; ef ríkið vissi að hægt væri að selja skipið á 100 milljónir af hverju var það selt á tæpar 40 milljónir?“ bjorn@frettabladid.is Seldu Baldur á helmingi matsvirðis Ríkið seldi ferjuna Baldur á 37,8 milljónir þó fyrir hafi legið að virði hennar næmi 70-80 milljónum króna. Þingmaður furðar sig á þessu og segir að ríkiseign hafi verið ráðstafað með óeðlilegum hætti. LANDFESTAR LEYSTAR Baldur var seldur í tvígang á tveimur vikum. Ríkið seldi ferjuna á tæpar 40 milljónir en kaupandinn á tæpar 100 milljónir. Þegar ríkið seldi lá fyrir að virði skipsins væri á milli 70 og 80 milljónir. KRISTINN H. GUNNARSSON VINNUMARKAÐUR SFR stétt- arfélag í almannaþjónustu krefst þess að lágmarks- laun SFR-félaga verði ekki undir 200 þúsund krónum á mánuði og að sérstök jafn- launagreiðsla verði tekin upp, að bættur verði réttur starfsmanna vegna veik- inda og slysa, að sí- og end- urmenntunarúrræði verði styrkt og að orlofsréttur verði bætt- ur, svo að nokkur atriði séu nefnd. Þetta kom fram á fyrsta fundi samninganefndar SFR og samninganefndar ríkisins sem haldinn var nýlega. „Það er markmið SFR að ríkið greiði félagsmönnum SFR sömu laun fyrir störf sín og greidd eru á almenn- um markaði fyrir sambæri- leg störf,“ segir í kröfu- gerð SFR. „Í því felst krafa um að réttlæti ríki á vinnu- markaði á Íslandi.“ Næsti samningafundur verður haldinn mánudaginn 14. apríl. - ghs Kjaraviðræður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu: Vill sérstaka jafn- launagreiðslu ÁRNI ST. JÓNSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.