Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2008 11 NOREGUR Búið er að staðsetja lík fjórða mannsins sem saknað er í rústum hússins í Álasundi í Noregi sem hrundi er bjarg féll á það í síðasta mánuði. Verður reynt að ná honum út á næstunni. Fimm manna var saknað í húsinu og á því aðeins eftir að finna einn, að sögn fréttavefjar norska dagblaðsins VG. „Við höfum góða von um að finna þann síðasta líka,“ segir Anders Jölstad, yfirmaður upplýsingamála. Ekki er enn búið að bera kennsl á líkin þrjú sem þegar er búið að ná út úr rústunum og er ekki vitað hvenær því verður lokið. - ghs Rústirnar í Álasundi: Fjórða líkið fundið pr in t co py sc an fa x Just because you’ve purchased your printer or MFP doesn’t mean you stop spending. With most devices you are bound to run up against huge unexpected costs, which can dramatically exceed the original purchase price. These hidden costs may compromise your budget and it may well be a case of sink or swim for your business. But with Kyocera, your business will be in safe hands. Based on our unique ECOSYS technology, our printers and MFPs feature long-life components making them highly reliable and cost-effective. Our devices produce far less waste than other products and offer extremely low TCO. Steer away from unpleasant surprises. Choose Kyocera. BRETLAND, AP Mohamed Al Fayed heldur enn í þá kenningu sína að breskir leyniþjónustumenn hafi átt þátt í dauða Díönu prinsessu og sonar síns Dodis, að því er talsmaður hans greindi frá í gær. Kviðdómur dánardómstóls úrskurðaði á mánudag að ábyrgð- arlaus hegðun bílstjórans og ljósmyndara sem eltu parið hefði valdið dauða þess. „Það er hugsanlegt að MI6 hafi átt hlut að máli,“ sagði talsmað- urinn Katharine Witty í sjón- varpsviðtali. Dánardómstjórinn hafði tjáð kviðdómnum að lögmenn Fayeds hefðu ekki lagt fram eitt einasta sönnunargagn sem benti til að leyniþjónustan MI6 hefði með nokkrum hætti tengst banaslys- inu í París 31. ágúst 1997. - aa Dauði Díönu og Dodis: Al Fayed heldur í samsæristrú SIMBABVE, AP Talsmenn stjórnar- andstöðunnar í Simbabve sökuðu í gær stjórnarflokk Roberts Mugabe forseta um að standa fyrir ofbeldisöldu í afskekktum sveitahéruðum landsins í því skyni að hræða íbúana til að „kjósa rétt“ í síðari umferð forsetakosninga sem líklegt þykir að efnt verði til. Þessar ásakanir komu fram um leið og fregnir bárust af því að útsendarar stjórnarflokksins hefðu efnt til nýrrar herferðar til að flæma burt þá fáu hvítu bændur sem eftir eru í landinu. Mugabe hefur svo gott sem viðurkennt að hafa ekki unnið kosningarnar 29. mars. Opinber úrslit hafa enn ekki verið birt. - aa Ástandið í Simbabve: Saka stjórnar- liða um ofbeldi ÁSAKANIR Tendai Biti, talsmaður stjórnarandstöðuflokksins Lýðræðisfylk- ingarinnar, á blaðamannafundi í Harare. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN, AP David Petraeus, æðsti hershöfðingi Bandaríkja- hers í Írak, mælti í gær með því að hætt yrði við þá fækkun í her- liðinu sem boðuð hefur verið í sumar. Hann lýsti með þessu ugg um að ástand öryggismála í land- inu kynni að fara úr böndunum ef liðsfækkunaráformin gengu eftir og endurspegla áhyggjur hans þá auknu hörku sem hlaup- ið hefur í átök milli ólíkra hópa Íraka að undanförnu. Petraeus sagðist telja ráðleg- ast að fáir ef nokkrir hermenn fengju að fara heim umfram það sem þegar hefur verið ákveðið fyrir lok forsetatíðar George W. Bush forseta í janúar næstkom- andi. Hershöfðinginn mælti með 45 daga „tímabili mats og íhugun- ar“ þegar liðsaukinn sem Bush sendi til Íraks í fyrra hefur horf- ið aftur heim í júlí í sumar. Hann sagðist ekki vilja bindandi áætl- un um liðsfækkun eftir lok þessa 45 daga tímabils. „Við lok þessa tímabils munum við hefja ferli mats á aðstæðum á vettvangi og, eftir því sem aðstæður leyfa, gera tillögur að frekari liðsfækkun,“ tjáði hann þingheimi, þar á meðal forseta- efnunum John McCain, Hillary Clinton og Barack Obama, sem notuðu tækifærið til að vekja athygli á muninum á Íraksstefnu sinni. - aa Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Írak í yfirheyrslum þingnefnda: Vill stöðva fækkun í herliðinu DAVID PETRAEUS Hefur áhyggjur af að frekari liðsfækkun geri ástandið verra. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Ungur maður var látinn laus síðdegis í gær eftir yfirheyrslur hjá lögreglunni á Selfossi. Hann hafði verið handtekinn ásamt tveimur öðrum piltum á svipuðum aldri í fyrradag í tengslum við líkams- árás á ungan dreng á hjólabretta- svæði á Selfossi á sunnudags- kvöld. Við rannsókn málsins kom fram að kúbeini var beitt í árásinni. Það er í vörslu lögreglunnar og rannsóknin á lokastigi. Sá sem fyrir árásinni varð er óbrotinn en bólginn í andliti eftir hnefahöggin og aumur í baki eftir kúbeinið. - jss Rannsókn á lokastigi: Börðu dreng með kúbeini LÖGREGLUMÁL Nokkurt magn fíkniefna fannst við húsleit í vesturbæ Reykjavíkur síðdegis í gær. Talið er að um sé að ræða 200 grömm af marijúana, 40 grömm af amfetamíni og 300 skammta af LSD. Karlmaður um fertugt og kona á þrítugsaldri voru handtekin vegna rannsóknar málsins. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði. Í kjölfar þessa var farið í hús annars staðar á höfuðborgar- svæðinu en þar fundust neyslu- skammtar af fíkniefnum sömu tegundar og áður var getið. - jss Lögregla höfuðborgarsvæðis: Tók hundruð LSD-skammta

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.