Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 12
9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is/td
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík skapar og miðlar þekkingu í tölvunarfræði, kerfisfræði,
stærðfræði, hugbúnaðarverkfræði og skyldum greinum.
Útskrifaðir nemendur eru afar eftirsóttur starfskraftur hjá fyrirtækjum og stofnunum á
fjölmörgum sviðum, frá hugbúnaðargerð til fjármálaþjónustu.
Tölvunarfræðingar fást við allt frá hagnýtum verkefnum til fræðilegra rannsókna, frá
tölvuumsjón til smíði flókinna hugbúnaðarkerfa, frá hönnun til stjórnunar.
Við bjóðum nýja nemendur til náms og starfa við öflugustu tölvunarfræðideild landsins, þar sem
þeir geta búið sig undir fjölbreytt, krefjandi og vel launuð störf í upplýsingatækni og
hátækniiðnaði framtíðarinnar.
ÖFLUGASTA TÖLVUNARFRÆÐIDEILD LANDSINS!
Vélmennið Skundar sem nemendur og starfsmenn
tölvunarfræðideildar HR hönnuðu í sameiningu.
VINNUÞRÓUN Framhaldsskólakenn-
arar telja að þeir hafi dregist aftur
úr í launaþróun síðustu árin miðað
við Bandalag háskólamanna, BHM,
sem heild og það þó að framhalds-
skólarnir séu í sama launakerfi og
mörg önnur stéttarfélög opinberra
starfsmanna.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, segir að tekið hafi verið upp
sams konar launakerfi í framhalds-
skólunum og viðgengst í mörgum
opinberum stofnunum en þrátt
fyrir það skili kjarasamningurinn
framhaldsskólakennurum lakari
launaþróun en öðrum.
„Bilið heldur áfram að breikka.
Við höfum tölur um þetta frá því
um mitt síðasta ár og þá var munur-
inn um sjö prósent. Eftir það hefur
bilið haldið áfram að breikka og við
óttumst að launamunurinn sé nú
kominn í tveggja stafa tölu. Við
erum mjög ósátt við þróunina,“
segir hún.
Aðalheiður bendir á að fram-
haldsskólakennarar séu ekki að
kvarta undan því að hafa ekki feng-
ið umsamda launaþróun eða að
kjarasamningnum þeirra hafi verið
fylgt heldur sé það þjóðfélagsþró-
unin, launaskrið og launaþróun
umfram umsamdar kjarabætur
sem ekki hafi borist inn í fram-
haldsskólana. „Við höfum setið eftir
og hljótum að horfa mjög til þess í
komandi kjarasamningum að við
þurfum leiðréttingu,“ segir hún.
Kjarasamningur framhaldsskóla-
kennara rennur út um næstu mán-
aðamót. Samninganefnd framhalds-
skólakennara hefur hitt
samninganefnd ríkisins og kynnt
áherslur sínar. Aðalheiður segir að
áhersla sé lögð á að ná „jafnstöðu í
launum á við hefðbundnar viðmið-
unarstéttir. Við höfðum jafnstöðu í
launum, náðum henni um síðustu
aldamót að undangengnu harðví-
tugu verkfalli og héldum henni í eitt
ár. Síðan hefur bilið breikkað,“ segir
hún.
„Grundvallaratriði er að ná aftur
jafnstöðu og halda henni. Þá erum
við að tala um einhvers konar trygg-
ingar þannig að launaþróunin í
framhaldsskólunum haldist til
frambúðar á sama stigi og gengur
og gerist í öðrum opinberum stofn-
unum. Svo er launamunurinn milli
opinbera markaðarins og almenna
markaðarins 20-30 prósent og auð-
vitað hljóta allir opinberir starfs-
menn að horfa á það.“
Grunnskólakennarar eru með
lausa samninga 1. júní. Samninga-
viðræður eru í fullum gangi.
ghs@frettabladid.is
Launamunur-
inn í tveggja
stafa tölu
Framhaldsskólakennarar telja að þeir hafi dregist
aftur úr í launaþróun miðað við hefðbundna við-
miðunarhópa síðustu ár. Þeir óttast að launamunur-
inn sé kominn í tveggja stafa tölu.
Þá erum við að tala um
einhvers konar trygg-
ingar þannig að launaþróunin í
framhaldsskólunum haldist til
frambúðar á sama stigi og gengur
og gerist.
AÐALHEIÐUR STEINGRÍMSDÓTTIR,
FORMAÐUR FÉLAGS FRAMHALDSSKÓLA-
KENNARA.
TÆKNI Vaskir starfsmenn Símans
og Sensa gengu upp á Hvannadals-
hnúk um síðastliðna helgi með það
að markmiði að prófa sambandið
við nýja 3G senda sem settir hafa
verið upp á Háöxl, rétt undir
Vatnajökli og Háfelli, sem er rétt
austan Víkur í Mýrdal.
Gengið var í blíðskaparveðri og
gekk allt að óskum. Nokkrum sinn-
um á leiðinni var staldrað við og
hringt í fjölskyldumeðlimi sem
fylgdust með göngunni sem var í
beinni útsendingu á netinu í gegn-
um 3G netkort í fartölvu. - kg
Síminn prófaði nýtt 3G kerfi:
Í beinni frá hálendinu
HVANNADALSHNÚKUR KLIFINN Starfs-
menn Símans og Sensa í blíðunni uppi
á Hvannadalshnúk.
VILJA TRYGGINGAR Framhaldsskólakennarar náðu jafnstöðu um aldamótin en tókst
ekki að halda henni. Núna vilja þeir tryggingar til að halda jafnstöðunni. Hér sjást
nemendur í menntaskólanum Hraðbraut.
NÁ JAFNSTÖÐU
Aðalheiður
Steingrímsdóttir,
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara, segir að
áhersla sé lögð á
að ná „jafnstöðu
í launum á við
hefðbundnar
viðmiðunarstéttir“
og halda henni.