Fréttablaðið - 09.04.2008, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2008 13
SAMGÖNGUR Fulltrúar Vegagerðarinnar,
Íslenskra aðalverktaka og Marti Contractors
frá Sviss skrifuðu í gær undir samninga um
gerð jarðganga undir Óshlíð. Línuhönnun hf./
Geotek mun hafa eftirlit með framkvæmdun-
um.
Verktaki mun fljótlega koma sér upp
vinnubúðum og hefja hreinsun frá ganga-
munna. Sprengingar hefjast í sumar og
samkvæmt útboði á verkinu að vera lokið að
fullu 15. júlí 2010. Um er að ræða 5,1 kíló-
metra löng göng ásamt 310 metra löngum
vegskála og gerð um þriggja kílómetra langra
vega og byggingu tveggja steinsteyptra brúa
yfir Hnífsdalsá og Ósá.
Tilboð verkkaupa hljóðaði upp á tæpan þrjá
og hálfan milljarð, eða um 88 prósent af
áætluðum verktakakostnaði.
Grímur Atlason, bæjar-
stjóri Bolungarvíkur, segir
að jarðgöngin muni ger-
breyta samgöngum á
svæðinu. Mikil umferð sé
um Óshlíðina og hún muni
aukast til muna með tilkomu
ganganna. „Þetta tengir
byggðirnar saman og gerir
þær auðveldar að einu
atvinnusvæði. Þó svo sé í
dag eru menn alltaf með
áhyggjur af færð og geta orðið tepptir.
Samgöngur hafa hamlað frekari samvinnu á
svæðinu,“ segir Grímur.
„Við fögnum því að losna við stóran hluta af
hættunni, þó að Eyrarhlíðin verði áfram
hætta.“ - kóp
Skrifað undir samning um göng frá Ísafirði til Bolungarvíkur:
Óshlíðargöng verða að veruleika
FYRIRHUGUÐ JARÐGÖNG Framkvæmdir hefjast í sumar
og á þeim að vera lokið sumarið 2010.
GRÍMUR ATLASON
VIÐSKIPTI Stjórn Straums fjárfest-
ingarbanka ætlar að leggja til að
5,6 milljarða króna arður verði
greiddur til hluthafa á komandi
aðalfundi félagsins. Fundurinn
verður haldinn 15. þessa mánaðar.
Stærstu hluthafarnir í bankan-
um eru Samson Global Holdings,
sem er í eigu Björgólfsfeðga en
skráð í Lúxemborg. Fyrir
næststærsta hlutnum er skráður
Landsbankinn í Lúxemborg, svo
Landsbanki Íslands hér heima og
loks Straumur sjálfur.
Í fundarboði er lagt til að
samþykktum bankans verði breytt
þannig að allir hluthafar megi tala
á hluthafafundi. - ikh
Aðalfundur Straums banka:
Sex milljarða
arður greiddur
VIÐSKIPTI Sviptingar voru í hópi
erlendra fjárfesta á lista yfir
tuttugu stærstu hluthafa Existu í
síðustu viku.
Danske Bank, sem keypt hefur í
kauphallarfélögum á borð við FL
Group, SPRON og fleirum, hefur
verið tíður gestur í hluthafahópi
Existu í gegnum tíðina. Félagið
var í hópi tíu stærstu hluthafa í
byrjun síðustu viku, hvarf af lista
um stundarsakir en birtist
jafnskjótt aftur í vikulokin.
Í síðustu viku voru nýir á lista
10 stærstu Singer & Friedlander
með 2,2 prósent og bandaríski
bankinn Citigroup, með 0,44
prósent. Breski bankinn var
horfinn af lista á mánudag. - jab
Sviptingar í hópi fjárfesta:
Útlendingar tíð-
ir gestir Existu
ÁGÚST OG LÝÐUR GUÐMUNDSSYNIR
Talsverðar hreyfingar voru í síðustu viku yfir
erlenda hluthafa Existu. MARKAÐURINN/GVA
KASAKSTAN, AP Þegar Soyuz-
geimflaugin hóf sig til lofts frá
geimferðastöð Rússa í Baikonur í
Kasakstan í gær fögnuðu Suður-
Kóreumenn fyrstu geimferð
landa síns og það leið yfir móður
hins stolta nýja geimfara.
Geimskotið tókst að því er
virtist óaðfinnanlega og Soyuz-
farið var komið á sporbaug um
tíu mínútum síðar. Um borð eru
leiðangursstjórinn Sergei Volkov,
rússneskur landi hans Oleg
Kononenko og hin 29 ára gamla Yi
So-yeon, líftæknifræðingur frá
Suður-Kóreu. Ferðinni er heitið í
Alþjóðlegu geimstöðina. - aa
Geimskot frá Baikonur:
Fyrsta geimferð
S-Kóreumanns
GEIMGLEÐI Yi So-yeon, fyrsti geimfarinn
frá Suður-Kóreu, og rússneski geim-
skipstjórinn Sergei Volkov á spjalli fyrir
geimskotið í Baikonur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Staðardagskrá samþykkt
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur
samþykkt Staðardagskrá 21. Um er að
ræða framtíðarstefnumótun til ársins
2010, en aðalskipulag sveitarfélagsins
gildir til sama tíma.
SVEITARSTJÓRNARMÁL