Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Daníel Geir Moritc kennaranemi hefur víða komið enda ferðalangur mikill. Ein af ferðum Daníels tók óvænta stefnu í Búdapest. „Ég fór í árshátíðarferð með Byggingafélagi náms- manna til Búdapest. Á sama tíma var þar verið að fagna fimmtíu ára afmæli byltingar sem gerð var gegn Sovétríkjunum,“ segir Daníel. Efnt hafði verið til mikilla hátíðarhalda vegna afmælisins að hans sögn, en hópur manna greip þá tækifærið til að mótmæla þáverandi ríkisstjórn landsins vegna lyga forsetans um fjárhagsstöðu landsins. „Við vorum í sakleysi okkar á leiðinni niður í bæ að taka þátt í skrúðgöngu. Sungum þar með fólkinu Via Via Hungaria og vorum í dúndrandi stemningu. Settumst úti á veitingastað og nutum veðurblíðunnar. Skyndilega fórum við að finna einkennilega lykt og fólk kom hlaupandi í áttina að okkur. Við spáðum ekkert í þetta fyrr en þjónninn kom, bankaði í borðið okkar og bað okkur um að koma inn,“ útskýrir Daníel. Þar sem Daníel og félagar hans litu út um gluggann á staðnum sáu þeir hvar fleiri hundruð manns flúðu undan táragasi lögreglurnar. Forvitnin yfirtók þó smám saman skynsemi félaganna, sem fundu sig knúna til að kíkja út. Þeir komust þó ekki langt þar sem lögreglan var fljót að stöðva ferð þeirra. „Búið var að loka fjölmörgum götum. Við fórum einhverja krókaleið og komum inn í stóran almenn- ingsgarð og lentum þar í miðju mótmælanna. Við fylgdumst með í vissri fjarlægð og áður en við vissum urðu lætin svo rosaleg að við urðum að flýja undan lögreglunni,“ rifjar Daníel upp. Eftir þetta ákváðu félagarnir að snúa aftur upp á hótel, þar sem þeir kveiktu á fréttunum í sjónvarpinu til að sjá hvað væri á seyði. „Í fréttum var sagt frá því að einn mótmælandi hefði slasast en við trúðum því varla þar sem við sáum lögregluna lemja mun fleiri. Það var samt viss upplifun að lenda í þessu og sjá alvöru mótmæli, ólíkt bílflautinu á Íslandi,“ segir Daníel með bros á vör. mikael@frettabladid.is Lenti í miðju mótmæla Daníel Geir fór í saklausa árshátíðarferð sem endaði með miklum látum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON RAFORKA ÚR METANÓLI Efnarafall sem framleiðir sjálfur orku getur veitt ferðalöngum aukið frelsi þar sem ekki er nauðsynlegt að leggja á stæði með rafmagnstenglum. BÍLAR 2 LÚÐRAR HLJÓMA Í þýska bænum Bad Orb eru haldin lúðrasveitamót og koma sveitir alls staðar að. Íslenska lúðrasveitin Svanur- inn vekur samt ávallt athygli. FERÐIR 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.