Fréttablaðið - 09.04.2008, Síða 19
[ ]
Þegar birtir og hlýnar gefast
tækifæri til tiltektar og við-
halds í húsunum heima. Stund-
um eru handtökin óljós og þá
gott að njóta liðsinnis fagfólks
sem ástandsskoðar húseignir
áður en hafist er handa.
„Með ástandsskoðun er fasteign
yfirfarin með tilliti til viðhalds,
farið yfir hvað þarf að gera strax
og hvað má geyma þar til seinna,“
segir Davíð Karl Andrésson, húsa-
smíðameistari hjá Arði ehf.
„Ástandsskoðun fasteigna nýt-
ist þeim sem hyggja á viðhald og
endurbætur, en einnig þeim sem
eru að kaupa fasteignir svo finna
megi leynda galla og ófyrirsjáan-
legt og aðkallandi viðhald. Slík
útköll eru vaxandi hérlendis, en
þess má geta að í Svíþjóð er skylt
samkvæmt lögum að fá skoðunar-
mann til að yfirfara íbúðarhús-
næði áður en kaup fara fram. Þá
skoðar hann íbúðarhúsnæðið
vandlega og metur kostnaðarhlið-
ina ef eitthvað þarf að lagfæra, en
í samræmi við hans úttekt verður
seljandi annaðhvort að lækka
verðið sem því nemur eða greiða
viðhaldskostnað og viðgerðir úr
eigin vasa,“ segir Davíð Karl og
minnir á að um aleigu fólks sé að
ræða þegar kemur að fasteign-
um.
„Fólk lætur hiklaust ástands-
skoða bíla sína, en trassar að gera
hið sama við húsnæði sitt. Gott er
að ástandsskoða húseignir á
þriggja ára fresti, en með ástands-
skoðun er átt við að finna vanda-
mál, orsakir og lausnir. Sumt
getur fólk svo lagfært sjálft á
meðan annar vandi kallar á
úrlausnir fagmanna,“ segir Davíð
Karl, sem segir lekavandamál
alvarlegasta vanda húseigenda.
„Vatnsskemmdir geta verið svo
leyndar og ekki alltaf augljóst
hvaðan vatn kemur né hvað það er
að skemma. Stundum smitar vatn
í gegnum veggi, en einnig glugga,
og oft er þak orðið lélegt án þess
að eigandinn verði þess var. Við
komum og finnum rót vandans,
skilum skýrslum um ástand eigna,
og gerum kostnaðaráætlun við-
gerða, ef fólk kýs,“ segir Davíð
Karl, en eftir hans þjónustu kalla
húseigendur og húsfélög í stórum
stíl til að meta útveggi, gler, tré-
verk, glugga og þak, ásamt fleiru.
„Endingartími glerja miðast við
tuttugu ár, en þakklæðningar end-
ast að jafnaði í þrjátíu ár. Við
athugum aldur og metum end-
ingu, en skoðum einnig hurðir og
glugga; hvort viður sé farinn að
þorna eða þéttni að minnka.“
Sjá nánar á www.matfasteigna.
is. thordis@frettabladid.is
Hlúð að aleigunni
Davíð Karl Andrésson segir vanta upp á að Íslendingar láti ástandsskoða fasteignir
sínar með reglulegu millibili, eins og þeir gera hiklaust við bifreiðir sínar með góðum
árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gunnlaugur Helgason stýrir
þáttunum Hæðin þar sem
íbúðir eru innréttaðar. Stutt er
síðan hann sjálfur stóð í fram-
kvæmdum.
„Ég er nú alltaf að hengja upp
eina og eina hillu fyrir konuna
en stærsta breytingin var þegar
ég færði eldhúsið yfir í stof-
una,“ segir Gulli.
Gamla eldhúsinu var
breytt í sjónvarpsher-
bergi, gólf voru endur-
nýjuð og ný innrétting
sett upp. Fjölskyld-
an bjó í húsinu
meðan á fram-
kvæmdum stóð
en þær tóku
tvo og hálfan
mánuð og
kláruðust
fyrir jólin.
„Þetta
kláraðist
þrjátíu sekúndum fyrir jól og ég
fékk svo upp í kok að ég hef ekki
hreyft litlaputta síðan. Ég vara
fólk við því að taka of stóra bita í
einu þegar breyta á heimilinu,“
segir Gulli hlæjandi en hann sá að
mestu sjálfur um framkvæmd-
irnar.
„Við keyptum okkur
hús sem er sjö ára verk-
efni og ætlum að taka
það í gegn í einingum.
Nú erum við að klára
að velja allt inn fyrir
næsta skref. En
fólk á ekki að
breyta einu
né neinu fyrr
en það er
búið að
ákveða og
helst útfæra
allt áður en
það byrjar
að rústa
heimilinu
sem það
býr í.“ - rat
Gulli Helga breytir
Fyrir breytingarnar var lítið vinnuherbergi
í horninu.
Eftir breytingar. Fjölskyldan náði að
borða jólamatinn í nýja eldhúsinu.
Kaffiboð er upplífgandi að halda reglulega fyrir vini og fjöl-
skyldu. Gerðu þér dagamun og notaðu sparistellið.
M
YN
D
/G
U
LL
I H
EL
G
A
Gulli stýrir
þessa dagana
þáttunum
Hæðin.