Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2008 17
UMRÆÐAN
Hvíldartími atvinnu-
bílstjóra
Vegagerðin hundeltir engan og síst af öllu
flutningabílstjóra. Vega-
gerðin sinnir hins vegar
lögbundnu hlutverki
sínu um að hafa eftirlit
með því að aksturs- og
hvíldartími sé virtur. Í
mótmælum flutningabílstjóra hafa
komið fram sjónarmið hjá sumum
sem ekki eiga við nein rök að styðj-
ast. Hvað sem líður háu eldsneytis-
verði er betra að hafa staðreyndir á
hreinu. Bílstjórar eru ekki sektaðir
nema þeir hafi brotið reglurnar og
það gerir mikill minni-
hluti þeirra. Flestum
hefur gengið vel að fara
eftir reglunum sl. ár.
Reglur þær um akst-
urs- og hvíldartíma sem
nú eru gagnrýndar hafa
verið í gildi síðan árið
2000, þeim var lítillega
breytt árið 2006. Sam-
kvæmt þeim gildir sú
meginregla flestra
launamanna að þeir
eiga rétt á 11 tíma hvíld á sólar-
hring en þó mega ökumenn tvisvar
í viku stytta þann hvíldartíma niður
í 9 tíma.
Varðandi aksturstímann sérstak-
lega þá skulu menn á hverjum sam-
felldum 4,5 tímum í akstri taka sér
45 mínútna hvíld. Henni má skipta í
þrennt og taka hvenær sem er á
þessum 4,5 tímum. Menn mega í allt
keyra í níu tíma á sólarhring og þá
er ekki verið að tala um þann tíma
sem það tekur að lesta bílinn. Ein-
ungis þann tíma sem bílstjórinn er
að keyra bílinn. Tvo daga í viku má
lengja þennan tíma í 10 tíma.
Það þarf enginn að stöðva á Holta-
vörðuheiðinni og horfa niður á Brú.
Fari maður úr Reykjavík og norður,
telst einungis sá tími þegar ekið er.
Fullnægja má hvíldinni með 15 mín-
útna stoppi í Borgarnesi og hálf-
tíma í nefndri Brú, svo dæmi sé
tekið. Þá hefst annað 4,5 tíma tíma-
bil og því varla snúið að aka áfram
hvort heldur er á Ísafjörð eða Akur-
eyri.
Vegagerðin hefur ekki farið eftir
stífasta bókstaf reglnanna enda
felst ákveðið svigrúm í sektarreglu-
gerð samgönguráðherra.
Á vegum landsins er fjöldi staða
þar sem hægt er að stöðva bílinn og
hvílast. Þeir sem hafa atvinnu af
því að keyra um vegina hljóta að
þekkja til þessara staða. Þótt ekki
séu sjoppur á þeim öllum eru aðrar
leiðir færar.
Eflaust má bæta þjónustu á
áningarstöðum verulega en það er
önnur og stærri spurning sem Vega-
gerðin svarar ekki því í það þyrfti
þá að leggja mikið fé. Það er Alþing-
is að taka ákvörðun um það.
Rétt er að hafa í huga að reglurn-
ar um hvíldar- og aksturstíma eru
settar til að auka umferðaröryggi í
flutningum, til að tryggja jafna
samkeppnisstöðu fyrirtækja í þess-
um rekstri og koma á samræmdri
vinnulöggjöf ökumanna.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Vegagerðarinnar.
Vegagerðin er ekki í eltingarleik
UMRÆÐAN
Miðborgin
Örygg-istil-
finning er
marg-
slungið
fyrirbæri.
Kannanir
sýna að
íbúar upp-
lifa sig
óörugga á
svæðum
sem þeir
þekkja
lítið. Það hljómar nokkuð rökrétt
og því er eðlilegt að þeir sem búa
fjærst miðborginni upplifi örygg-
isleysi í miðborg Reykjavíkur.
Það hefur tekið langan tíma að
byggja upp kraftmikla og lifandi
miðborg. Ímynd hennar byggir
að þó nokkru leyti á umfjöllun
um hana, í fjölmiðlum og úr
munni þeirra sem hæst eru sett-
ir.
Það er mikið ábyrgðarstarf að
vera borgarstjóri. Borgarstjóri
nær athygli fólks auðveldlega og
margir hlustuðu á hann í fréttum
í síðustu viku þar sem hann lýsti
því yfir að miðborgin væri hættu-
leg. Þetta sagði borgarstjórinn
sem ætti núna að stappa stálinu í
fólk, blása í hvetjandi lúðra og
snúa vörn í sókn. En í stað þess
fælir hann fólk frá, gesti og við-
skiptavini. Miðborgin þrífst á því
mannlífi sem hefur skapast und-
anfarin áratug, með menningar-
stofnunum, menningarviðburð-
um, með kaffihúsum og krám,
með verslunum. Því megum við
ekki fórna með gáleysislegum
yfirlýsingum.
Ásýnd miðborgarinnar er ekki
góð um þessar mundir, um það
deilir enginn. Átak gegn veggja-
kroti með fegrun og hreinsun og
samstillt átak í skipulagsmálum
eru ákaflega mikilvægir þræðir í
marglitum vefnaði borgarbrags-
ins. Virðing borgaranna og vellíð-
an helst í hendur við þá þræði.
Eitt af verkefnum borgaryfir-
valda er að hafa úrræði fyrir
fíkla og utangarðsmenn, í sam-
starfi við velferðar- og heilbrigð-
isyfirvöld sem og lögreglu.
Áherslan ætti að vera á sýnilega
löggæslu, vandaða stjórnsýslu og
að virða kraft, töfra og sérstöðu
miðborgarinnar.
Það var ábyrgðarlaust af borg-
arstjóra að lýsa því yfir að mið-
borgin væri hættuleg, það er
vafasöm alhæfing. Borgarstjór-
inn á ekki að tala miðborgina
okkar niður. Það er mikil hætta
fólgin í því. Í kvöld ætlar Sam-
fylkingin að blása til opinnar
hugmyndasmiðju um miðborgina
á Hallveigarstíg 1 með þátttöku
íbúa, verslunareigenda, listafólks
og annarra áhugasamra um
mannlíf, menningu – hreina, fal-
lega og örugga miðborg. Borgar-
stjóri er hjartanlega velkominn.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Miðborg-
in okkar
G. PÉTUR MATTHÍASSON
Í mótmælum flutningabílstjóra
hafa komið fram sjónarmið
hjá sumum sem ekki eiga við
nein rök að styðjast. Hvað sem
líður háu eldsneytisverði er
betra að hafa staðreyndir á
hreinu.
ODDNÝ
STURLUDÓTTIR
Nám samhliða starfi
- styrktu stöðu þína á vinnumarkaði
Kynningarfundur verður haldinn
í húsi Endurmenntunar 17. apríl kl. 17:00
Rekstrar- og viðskiptanám
Mannauðsstjórnun
Þjónustustjórnun
Gæðastjórnun
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun
NÁM SAMHLIÐA STARFI
Leiðsögunám á háskólastigi
Markaðssamskipti - stefnumörkun
og framkvæmd
Þekkingarmiðuð þjónustustjórnun
Nám í verðbréfaviðskiptum
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444
endurmenntun.is