Fréttablaðið - 09.04.2008, Síða 38
30 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
GAMLA MYNDIN
LÁRÉTT
2. sett 6. rún 8. skordýr 9. tangi 11.
ryk 12. bersýnilega 14. hégómi 16.
tveir eins 17. titill 18. umfram 20.
tímaeining 21. murra.
LÓÐRÉTT
1. áfengisblanda 3. frá 4. planta 5.
næði 7. starfræksla 10. sjón 13. skarð
15. ruddi 16. efni 19. íþróttafélag.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lagt, 6. úr, 8. fló, 9. nes,
11. im, 12. skýrt, 14. snobb, 16. tt, 17.
frú, 18. auk, 20. ár, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. púns, 3. af, 4. glitbrá, 5.
tóm, 7. rekstur, 10. sýn, 13. rof, 15.
búri, 16. tau, 19. kr.
„Ég er algjör græjufíkill. Og var
að flytja inn nætursjónauka og
vasaljós meðal annars. Var svo
kominn með vasaljós sem lögregl-
an notar og í framhaldi af því fór
mér að bjóðast umboð frá Banda-
ríkjunum fyrir hitt og þetta meðal
annars rafbyssur,“ segir hinn góð-
kunni útvarpsmaður Kristófer
Helgason á Bylgjunni.
Fyrirtæki Kristófers, KHelga-
son heildverslun, flytur inn ýmis
tæki sem lúta að heilsu og heil-
brigði, öryggismálum og lög-
gæslutækjum. Kristófer, sem
stjórnar Reykjavík síðdegis ásamt
Þorgeir Ástvaldssyni, segir fyrir-
liggjandi að menn lifi ekki á
útvarpslögunum einum saman.
Og bendir sposkur á að Þorgeir
syngi með Ragga Bjarna, Bjarni
Ara syngi í brúðkaupum og Ívar
Guðmundsson selji orkudrykki og
heilsunammi. Hann flytur inn
græjur. Meðal þess sem KHelga-
son flytur inn eru rafbyssur sem
lögreglan er nú með til athugunar
hvort ekki sé vert að taka til notk-
unar við löggæslustörf hér á
landi.
Rafbyssurnar fara aldrei um
hendur umboðsaðilans heldur
beint til lögreglu. Kristófer hefur
þó kynnt sér þær í þaula. Sjálfur
hefur hann meira að segja verið
skotinn með slíkri byssu. Og er
sprelllifandi til frásagnar eins og
útvarpshlustendur þekkja. Krist-
ófer fór í skóla til Bandaríkjanna,
til höfuðstöðva Taser Internation-
al, í Phoenix Arizona. „Þar var ég
í nokkurn tíma að læra á tækið og
virkni þess. Og hluti námskeiðs-
ins var að vera skotinn til að skilja
tækið betur. Þetta var vont, á að
vera vont en um leið og lokað var
fyrir strauminn var allur sársauki
fyrir bý og engin eftirköst.“
Kristófer segir ótrúlega mikils
misskilnings gæta um rafbyss-
urnar og virkni þeirra. Þeir sem
tali mest um byssurnar viti oft
minnst og fréttaflutningur af
þeim oft beinlínis rangur. „Ég veit
ekkert hvenær það liggur fyrir
hvort og/eða hvenær lögreglan
tekur þessar byssur til notkunar,“
segir Kristófer. Hann bendir á að
viðamiklar rannsóknir hafi farið
fram og fyrst af Bandaríkjamönn-
um, The Home Office, og birtu
þeir 13 þúsund blaðsíðna skýrslu
um umræddar rafbyssur. Bret-
arnir tóku þetta upp, vildu ekki
treysta rannsóknum Bandaríkja-
manna og kostuðu milljónum
punda í rannsóknir á áhrifum
byssnanna á líkamann. Ítarleg
rannsókn þeirra sýndi að tækið er
öruggt sem valdbeitingartæki,
mun öruggara en öll önnur sem
eru í notkun lögreglu. „Ekki bara
er það öruggara fyrir hina hand-
teknu heldur ekki síður lögreglu-
menn sjálfa,“ segir Kristófer og
bendir jafnframt á þá athyglis-
verðu staðreynd að slysatíðni
meðal lögreglumanna á Íslandi er
mest á Norðurlöndunum og þótt
víðar væri leitað.
jakob@frettabladid.is
KRISTÓFER HELGASON: LIFIR EKKI AF ÚTVARPSLÖGUM EINUM SAMAN
Landsþekktur útvarpsmað-
ur skotinn með rafbyssu
KRISTÓFER HELGASON Hér með félaga sínum Þorgeiri en hann flytur inn rafbyssur
sem lögreglan vill taka í gagnið.
TASER-BYSSA Kristófer segir að Taser-
rafbyssurnar séu öruggari en flest önnur
valdbeitingartæki sem lögreglan notar.
„Þetta gerðist á föstudaginn á
Eskifirði. Ég ætlaði að öskra í
míkrafóninn hvort allir væru
ekki í stuði þegar rafmagnið tók
öll völd og ég kastaðist heilan
metra aftur á bak. Ég hélt að
þetta væri bara mitt síðasta og
stóð alls ekki á sama,“ segir
Arnar Þór Gíslason, trommuleik-
ari Dr. Spock, sem fékk töluvert
raflost á tónleikum sveitarinnar
í Valhöll á föstudaginn. Brotin
ljósapera reyndist vera söku-
dólgurinn en hún lá á járni sem
Arnar komst í snertingu við með
fyrrgreindum afleiðingum. „Mér
leið eins og hestur hefði sparkað
í brjóstið á mér,“ segir Arnar
sem hér eftir verður kallaður Dr.
Elektro af félögum sínum í sveit-
inni. Reyndar stóð Spock-liðum
ekki á sama þegar þeir sáu hvað
var í gangi og menn töldu sig
hafa séð bláa blossa þegar Arnar
fékk stuðið beint í æð.
Arnar segist hafa athugað
fyrst hvort eitthvað af líkams-
hárunum mikilvægu hefðu sviðn-
að af við raflostið. „En sem betur
var það ekki raunin þannig að
karlmennskan brann ekki yfir,“
segir Arnar sem vann sér inn
marga punkta hjá sveittum rokk-
aðdáendum á Eskifirði í kjölfar-
ið. Því hann var byrjaður að
berja bumburnar eftir aðeins
nokkurra mínútna hlé.
En raflostið var kannski við
hæfi enda skildi trommuleikar-
inn við ungæðingsháttinn í gær
þegar hann fagnaði þrítugsaf-
mæli sínu og var þar með tekinn
í fullorðinna manna tölu. Og
fleiri stórtíðinda er að vænta á
árinu því trommuleikarinn geð-
þekki á von á sínu fyrsta barni
með unnustu sinni, Láru Rúnars-
dóttur.
- fgg
Rafmagnaður trommari í Valhöll
SLAPP VEL Arnar slapp vel frá raflosti á
Eskifirði þótt mönnum hafi nú ekki stað-
ið á sama meðan á því stóð.
Rock-Star hetjan Magni Ásgeirs-
son hefur vart undan að feta í
fótspor stórstjarna í rokkheimin-
um. Hann bregður sér í líki Mick
Jagger þegar margir af fremstu
hljóðfæraleikurum landsins leika
lög Rolling Stones á föstudaginn á
Players í Kópavogi. Og eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum
mun Magni einnig stíga á svið
sem Freddy heitinn Mercury í
sérstakri söngskemmtun Fjöl-
brautaskóla Suðurlands en þar
verða lög hinnar bresku Queen
flutt. „Ég hlýt að vera í einhverri
krísu um hver ég er,“ segir Magni
léttur þegar Fréttablaðið nær tali
af honum.
Magni er ekki í vafa um hvor sé
betri, Jagger eða Mercury.
„Freddie Mercury hefur sigur
þegar kemur að bæði hæfileikum
og sviðsframkomu. Hins vegar
hefur Jagger vinninginn í
töffaraskap,“ segir Magni. Hann
fæst aftur á móti ómögulega til að
gefa upp hvor hljómsveitin sé
betri. „Óneitanlega eru lagasmíð-
ar Queen mun merkilegri og
metnaðarfyllri því Stones eru
bara að spila þriggja gripa,
sóðalegan blús,“ segir Magni, sem
setur þessar tvær hljómsveitir á
stall með Bítlunum.
„Þær eru fremstar í
sínum flokki þótt
ólíkar séu; Stones og
Bítlarnir eru
frumkvöðlarnir
og eru áhrifa-
mestar enda
fundu þær upp
nútíma rokk/
popp-tónlist.“
- fgg
Magni í krísu
MAGNI ÁSGEIRSSON
„Söfnunin gengur stórvel. Öll
markmið hafa náðst. Í dag [gær]
var gert upp við Laxness-fólkið,”
segir Friðbjörn Orri Ketilsson.
Hann gengst fyrir fjársöfnun til
að standa straum af kostnaði við
málaferli Hannesar í
því sem Friðbjörn
nefnir annars
vegar „Mál-
frelsismálið“ og
tengist meið-
yrðamáli sem
Jón Ólafsson höfðar á hendur
Hannesi og hins vegar „Laxness-
málið“ sem snýr að skaðabótum
og lögfræðikostnaði í tengslum
við frægt skaðabótamál og varðar
höfundarrétt.
Að öll markmið hafi náðst þýðir
að þegar er búið að safna að
minnsta kosti þremur milljónum
en skaðabótakrafa til Auðar Lax-
ness hljóðaði upp á 1,5 milljónir og
1,6 í lögfræðikostnað. En líklega
hefur safnast talsvert meira fé í
söfnuninni. Friðbjörn Orri segist
bundinn trúnaði og getur ekki
gefið upp neinar tölur. „Þessi
pakki er í það minnsta uppgerður.
En markmiðið er að styðja við
bakið á Hannesi en í málfrelsis-
málinu hafa þegar verið greiddar
23 milljónir og sjö milljónir eru í
skuld,” segir Friðbjörn Orri.
Nú lítur sem sagt allt út fyrir að
Hannes Hólmsteinn þurfi ekki
að fara í eigin vasa til að
greiða fyrir málarekstur
og í skaðabætur en það er
markmiðið. „Enda frá-
leitt að menn geti misst
allt sitt við að tjá skoðan-
ir sínar á Íslandi. Ég er
reyndar gáttaður á því
hversu margir vilja koma
honum til aðstoðar
í þessu máli,
fjöldinn
skiptir
hundruð-
um sem
þegar
hefur látið fé af hendi rakna, fólk
sem er honum sammála: Allt frá
mennskælingum sem leggja til
tvö þúsund krónur til þeirra sem
betur eru stæðir. Öll flóran.
Gríðarlegur stuðningur. En
auðvitað ekki frá fjandmönn-
um hans,“ segir Friðbjörn
Orri Ketilsson.
- jbg
Hannes þarf ekki að borga krónu sjálfur
HANNES HÓLMSTEINN Á góða
vini og nú lítur allt út
fyrir að hann þurfi
ekki að seilast í
eigin vasa til að
gera upp við lög-
menn og borga
skaðabætur.
FRIÐBJÖRN ORRI
Hannes nýtur víðtæks
stuðnings og þegar hafa
hundruð manna lagt
söfnuninni til stuðn-
ings Hannesi lið.
„Þetta er árið sem ég útskrifað-
ist úr Þjóðleikhússkólanum. Ef
ekki væri fyrir hárið hefði ég
haldið að þetta væri annar hvor
sonurinn. Þessi mjóslegni piltur,
nokkuð vannærður eftir erfiðan
vetur, er líklega á leið í sumar-
vinnu til Bolungarvíkur.“
Arnar Jónsson leikari.
Myndin er tekin í maí 1964.
Ekki er auðvelt að ná tali af Ólafi
Gunnarssyni sem er einn þeirra
sem neitar að vera með farsíma.
Hann fer nú að skila af sér nýrri
skáldsögu og sólundar tímanum
með því að rúlla á milli bílaverk-
stæða, fá sér kaffi og kjafta en
Ólafur er forfallinn bíladellukarl. Ný
skáldsaga frá Ólafi sætir tíðindum
en hana hefur Ólafur verið með
í smíðum í tvö ár og er bókin
á fimmta hundrað blaðsíður.
Umfjöllunarefnið er hippatíminn og
möndull bókarinnar,
sá sem hún snýst
um, er heim-
sókn Led Zepp-
elin til Íslands.
Þeir sem til
þekkja segja
bókina líkjast
mest Vetrarferð-
inni í höfundarverki
Ólafs.
Tökum á gamanþáttaröð-
inni Ríkinu er lokið en
þar koma við sögu
margir af fremstu
gamanleikurum
þjóðarinnar.
Leikstjóri
er Silja
Hauks-
dóttir en
meðal
leikara
sem
koma
við sögu
eru Víkingur
Kristjánsson og Halldóra Geir-
harðsdóttir, fóstbræðurnir Sveppi
og Auddi og Inga
María Valdi-
marsdóttir. Þá
leika Benedikt
Erlingsson,
Þorsteinn Bach-
mann og Katla
Margrét einnig í
þáttunum auk Elmu
Lísu Gunnars-
dóttur.
- jbg/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI